Morgunblaðið - 22.03.2018, Side 35

Morgunblaðið - 22.03.2018, Side 35
FRÉTTIR 35Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Morgunblaðið/Ernir Þjónusta Flugfélagið Ernir heldur uppi áætlunarflugi til Sauðarkróks. Nauðsynleg fjárfesting á Alexand- ersflugvelli við Sauðárkrók svo hann geti tekið á móti stórum far- þegaþotum með litlum fyrirvara er á bilinu 4,0–5,1 milljarður króna. Þetta kemur fram í svari Sig- urðar Inga Jóhannssonar sam- gönguráðherra við fyrirspurn frá Bjarna Jónssyni varaþingsmanni VG um varaflugvöll við Sauðár- krók. Ráðherra segir ekki þörf á að fjölga varaflugvöllum. Í svarinu kemur ennfremur fram að rekstrarkostnaður flug- vallarins á ári, án afskrifta og kostnaðar vegna fjárbindingar, væri á bilinu 400–600 millj. kr. Framangreint kostnaðarmat gerir ekki ráð fyrir aðstöðu fyrir af- greiðslu eldsneytis á stærri flug- vélar. Kröfur til slíkrar aðstöðu hafa aukist mjög undanfarin ár, segir ráðherra. Um síðustu áramót tók gildi hér á landi ný og hert reglugerð um flugvernd og gildir hún um flug- velli sem notaðir eru til millilanda- flugs. Til þess að Alexandersflugvöllur uppfylli allar kröfur þyrfti að ráð- ast í miklar og kostnaðarsamar framkvæmdir þar sem flugvöll- urinn var ekki hannaður sem millilandafluvöllur. Sem dæmi um þætti sem byggja þyrfti upp má nefna flugverndaraðstöðu, slitlag á vellinum og aðflugsbúnað. Kostnaður við endurnýjun yfir- borðs flugbrautar og breikkun hennar auk malbikunar er t.d. metinn á 1,5–2,0 milljarða króna. Þá er fjárfesting í flugstöð, sem uppfyllir allar kröfur til húsnæðis, tækjabúnaðar, landamæravörslu og móttöku allt að 200 farþega, metin á um 1,0–1,5 milljarða króna. Akureyrarflugvöllur og Egils- staðaflugvöllur munu því áfram þjóna hlutverki varaflugvalla, seg- ir ráðherra. sisi@mbl.is Ekki þörf á að fjölga varaflugvöllum  Kostnaður við að gera Alexandersflugvöll að varaflugvelli allt að 5 milljarðar Tillaga til þingsályktunar um þjóð- aratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar hefur verið lögð fram á Alþingi. Flutningsmenn eru 23 þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi, nema Samfylkingu og Viðreisn. Fyrsti flutningsmaður er Njáll Trausti Friðbertsson. Sambærilegar til- lögur voru fluttar á tveimur fyrri þingum en náðu ekki fram að ganga. Tillagan hljóðar svo: Alþingi ályktar að efnt skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort flugvöllur og miðstöð innanlands- og sjúkraflugs skuli áfram vera í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Eftirfar- andi spurning verði borin upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni: „Vilt þú að flugvöllur og miðstöð innanlands-, kennslu-, einka- og sjúkraflugs verði áfram í Vatns- mýrinni í Reykjavík uns annar jafn- góður eða betri kostur er tilbúinn til notkunar? Já. Nei.“ Í greinargerð með tillögunni seg- ir m.a. að öll skynsamleg rök hnígi í þá átt að halda flugvellinum og miðstöð innanlandsflugs í Vatns- mýrinni. Verði þar einhver breyting á sé nauðsynlegt að öll þjóðin fái að koma að þeirri ákvörðun á beinan og lýðræðislegan hátt. sisi@mbl.is Þjóðin kjósi um flugvöll Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjótandi ehf. á Hellu átti lægsta tilboð í endur- bætur á 8,3 kíló- metra kafla Þingvallavegar, frá Þjónustu- miðstöðinni að vegamótum við Vallaveg. Tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni s.l. þriðjudag. Alls bárust sjö tilboð í verkið og hljóðaði tilboð Þjótanda upp á 488,2 milljónir. Var það 73,5% af áætluðum verktakakostn- aði, sem var 664 milljónir. Borg- arverk ehf. í Borgarnesi átti hæsta tilboðið, 714,5 milljónir. Verkið felst í styrkingu og breikkun núverandi vegar með áherslu á að auka umferðaröryggi. Fræsa skal núverandi klæðingu, breikka og hækka/lækka veginn eftir atvikum og leggja nýtt malbik. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2019. sisi@mbl.is Ráðist í endurbætur á Þingvallaveginum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.