Morgunblaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 9. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  75. tölublað  106. árgangur  NÁMSKEIÐ UM LÍF OG LIST ÁSMUNDAR SKÁKHNEFALEIKAR GJÖRNINGA- HÁTÍÐ Á SIGLUFIRÐI ROT EÐA MÁT 16 DÝNAMÍK 30YFIRLITSSÝNING 12  Ný könnun Seðlabanka Íslands og Gallup sýnir að stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins telja auknar líkur á því að verðbólga aukist á komandi mánuðum. Þann- ig telja þeir að hún verði næstu 12 mánuði í kringum 3% en undir lok síðasta árs höfðu þeir væntingar um að hún yrði í kringum 2,5% næsta árið. Svipaða sögu er að segja af markaðsaðilum en þar hafa vænt- ingarnar einnig færst til verri veg- ar og telja þeir nú að verðbólgan verði 2,7% næstu 12 mánuði. Undir lok síðasta árs höfðu þeir vænt- ingar um að hún yrði um 2,5%. Í ViðskiptaMogganum í dag kem- ur fram að óverðtryggð útlán til heimilanna í landinu hafa aukist mjög, bæði hjá bönkum og lífeyr- issjóðum. Sú staðreynd kann að benda til aukinna verðbólguvænt- inga hjá almenningi. »ViðskiptaMogginn Telja að verðbólgan muni láta á sér kræla  Sænsk kona sem búið hefur á Ís- landi í átján ár segir að líkja megi íslenskum ferm- ingarveislum við lítil brúðkaup í Svíþjóð. „Mun- urinn á veislunum hér á Íslandi og svo í Svíþjóð er svakalega mikill,“ segir Anna María Hedman. „Það var til dæmis áhugavert að sjá, að þegar ég bauð ættingjum mínum frá Svíþjóð í veisluna fannst þeim það litlu skipta hvort þeir mættu eða ekki. Sumir létu okkur ekki einu sinni vita að þeir myndu ekki mæta,“ segir Anna María sem fannst kostulegt að sjá svipinn á andlitum ættingja sinna þegar þeir gerðu sér grein fyrir stærð veisl- unnar. Hún tekur fram að meira sé lagt upp úr undirbúningi ferming- arinnar í Svíþjóð en hér á landi. »14 Hissa á hvað mikið er lagt í veislurnar Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta eru auðvitað mikil gleðitíð- indi,“ segir Sunna Elvira Þorkels- dóttir, sem legið hefur lömuð á Spáni undanfarna tvo mánuði, en farbanni hennar frá Spáni hefur nú verið af- létt. Þetta staðfesti Páll Kristjáns- son, lögmaður Sunnu, í samtali við Morgunblaðið, en vonir standa til að hún komi til landsins 10. apríl nk. Sunna var sett í farbann í kjölfar handtöku eiginmanns hennar, Sig- urðar Kristinssonar, sem talinn var eiga aðild að fíkniefnainnflutningi. Sunna segir að úrskurður um aflétt- ingu farbannsins sé staðfesting á því sem hún hefur haldið fram frá því að málið hófst. „Ég hef alltaf sagt að ég tengist þessu máli ekki á nokkurn hátt. Ég tel að það hafi verið staðfest með þessu,“ segir Sunna sem hefur verið í endurhæfingu á spítala í Se- villa síðustu vikur. „Ég hef fengið mjög góða umönn- un og það hefur verið mikil stígandi í bataferlinu,“ segir Sunna. Sunna væntanleg til landsins Sunna Elvira Ráðgert er að Sunna komi til landsins á næstunni.  Farbanninu hefur verið aflétt  Kemur heim 10. apríl  HverfisráðReykjavík- urborgar eru tíu talsins. Meirihluti borgarstjórnar kýs í hverf- isráðin á fjög- urra ára fresti þannig að kosningin er pólitísk. Fyrir formennsku í hverf- isráði, sem fundar mánaðarlega, fást um 105 þúsund krónur, en aðrir ráðsmenn, fjórir í hverju ráði, fá helming þeirrar upp- hæðar. »2 105 þúsund kr. fyrir einn fund í mánuði Ráðhús Reykjavíkur Mikið er um að vera á Ísafirði um páskana að venju. Skíðavikan var sett á Silfurtorgi í gær. Hefðbundinn dagskrárliður er sprettgangan í Hafnarstræti. Dagur Benediktsson sigraði og var aðeins sjónarmun á undan Sigurði Arnari Hannessyni. Fjöldi fólks er á skíðum í Seljalands- dal og Tungudal. Ekki má gleyma tónlistarhátíð- inni óviðjafnanlegu „Aldrei fór ég suður“ sem hófst í gær. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Hnífjafnir í mark í sprettgöngunni Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Samfylkingin er stærsti flokkurinn í Reykjavík og Sjálfstæðisflokkurinn næst stærsti. Tvö ný framboð, Við- reisn og Miðflokkurinn, fá fulltrúa kjörna. VG og Píratar bæta við sig fylgi, en Framsóknarflokkurinn, sem nú hefur tvo borgarfulltrúa, þurrkast út. Núverandi meirihluti í borgarstjórn heldur velli. Þetta eru meginniðurstöður nýrr- ar skoðanakönnunar sem Félagsvís- indastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið um fylgi fram- boða við borgarstjórnarkosningarn- ar í vor. Könnunin fór fram dagana 21. til 27. mars. Austur og vestur Fylgi Samfylkingarinnar er nærri óbreytt frá kosningunum 2014, en þá vann hún mikinn sigur. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist lít- illega miðað við sömu kosningar. Athygli vekur mikill munur á fylgi Samfylkingarinnar annars vegar og Sjálfstæðisflokksins eftir hverfum borgarinnar. Í fimm stórum borg- arhlutum er Sjálfstæðisflokkurinn með meira fylgi en Samfylkingin. Fylgið við Sjálfstæðisflokkinn er mest í úthverfunum en við Samfylk- inguna í vesturhluta borgarinnar. Skýrir valkostir Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri og efsti maður á lista Sam- fylkingarinnar, skýrir uppsveiflu flokksins frá síðustu könnunum með því að skýrir valkostir séu að teikn- ast upp fyrir kosningarnar. „Sjálf- stæðisflokkurinn vill hverfa aftur til gamla tímans og hefur kynnt hug- myndir um þróun borgarinnar sem fólk áttar sig betur og betur á að verði vondar fyrir umferðina, þá sérstaklega þessar stóru stofn- brautir,“ segir hann. Eyþór Laxdal Arnalds, efsti mað- ur á lista Sjálfstæðisflokksins, bend- ir einnig á sömu skýru valkosti. Stór hópur borgarbúa vilji breyt- ingar og langstærsti minnihluta- flokkurinn muni því fá góðan stuðn- ing. „Ég skynja það að þeir sem segjast styðja meirihlutaflokkana eru ekki sérstaklega stoltir af verk- um þeirra. Ég tel að það muni skipta máli. Fólk velji breytingar, þegar upp er staðið,“ segir hann. Meirihlutinn heldur velli  Samfylkingin með mest fylgi í Reykjavík  Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í fimm stórum hverfum höfuðborgarinnar  Tvö ný framboð fá fulltrúa MMikill munur eftir hverfum »4, 6 B 2,7% C 7,3% D 27,4% F 3,1% M 5,0% P 7,7% S 31,7% V 12,8% Aðrir 2,3% Fylgi flokkanna í Reykjavík 0 2 7 0 2 1 8 3 Fjöldi borgarfulltrúa samkvæmt könnun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.