Morgunblaðið - 29.03.2018, Side 4

Morgunblaðið - 29.03.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Arndís Jóhannsdóttir ásta créative clothes Sunna Sigfríðardóttir Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Samfylkingin nýtur mest fylgis fram- boða við komandi borgarstjórn- arkosningar í Reykjavík samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Fé- lagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið dagana 21. til 27. mars. Athygli vekur mikill munur á fylgi Samfylkingarinnar annars vegar og Sjálfstæðisflokksins eftir hverfum borgarinnar. Í fimm stórum borg- arhlutum er Sjálfstæðisflokkurinn með meira fylgi en Samfylkingin. Meirihlutinn, sem Samfylkingin leiðir nú í borginni, heldur velli og styrkist raunar þrátt fyrir að einn flokkanna, Björt framtíð, sé ekki í framboði. Fylgi Samfylkingarinnar er nærri óbreytt frá kosningunum 2014, en þá vann hún mikinn sigur. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur auk- ist lítillega miðað við sömu kosn- ingar. „Turnarnir tveir“ Samkvæmt könnuninni njóta Sam- fylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn mests fylgis allra framboða. Tala má um „turnana tvo“ í því sambandi. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 31,7% sem er nánast hið sama og í borgarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum. Þá var fylgið 31,9%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 27,4%, en var 25,7% árið 2014. Samfylkingin fengi 8 borgarfull- trúa nú og Sjálfstæðisflokkurinn 7. Hafa ber í huga að borgarfulltrúum fjölgar nú úr 15 í 23. Til að mynda meirihluta þarf 12 borgarfulltrúa. Þriðji stærsti flokkurinn í Reykja- vík er Vinstrihreyfingin grænt fram- boð (VG) með 12,8% fylgi. Flokk- urinn fengi 3 fulltrúa kjörna. Þetta er umtalsverð fylgisaukning frá kosningunum 2014 þegar flokkurinn naut stuðnings 8,3% kjósenda. Viðreisn fengi 2 fulltrúa Fylgi Pírata og Viðreisnar, sem nú býður fram í fyrsta sinn, er mjög svipað. Fylgi Pírata mælist 7,7% sem er fylgisaukning frá 2014 þegar flokkurinn naut 5,9% fylgis. Þetta gefur tvo borgarfulltrúa. Viðreisn mælist með 7,3%. Fengi flokkurinn einnig 2 fulltrúa kjörna. Ekkert ann- að nýju framboðanna til borg- arstjórnar í ár nær jafn góðum ár- angri og Viðreisn. Miðflokkurinn, sem býður fram til borgarstjórnar í fyrsta sinn, mælist með 5% fylgi. Það gefur einn borgarfulltrúa. Önnur framboð njóta minna fylgis og fá ekki fulltrúa kjörna, samkvæmt könnuninni. Framsóknarflokkurinn, sem hefur nú tvo fulltrúa í borg- arstjórn, þurrkast út. Hann fær að- eins 2,7% fylgi. Flokkur fólksins nýt- ur stuðnings 3,1% kjósenda, Sósíalistaflokkurinn er með 1,4%, Al- þýðufylkingin með 0,8% og Frels- isflokkurinn með 0,3%. Þegar könn- unin var framkvæmd hafði Höfuðborgarlistinn ekki tilkynnt framboð sitt. Þeir sem sögðust kjósa annan flokk eða lista en nefndir eru hér að ofan voru 0,3%. 2,6% sögðust skila auðu og 9,6% sögðust ekki ætla að kjósa. Óvissir voru 14% og 2,8% vildu ekki svara. Sterkastur í úthverfunum Í könnuninni var afstaða þátttak- enda til framboðanna greind eftir bú- setu í borginni. Þar vekur mesta at- hygli munur sem er á fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæð- isflokksins í vesturhluta borgarinnar annars vegar og úthverfunum hins vegar. Í fimm borgarhverfum af níu sem afmörkuð voru reyndist Sjálf- stæðisflokkurinn vera með meira fylgi en Samfylkingin, Grafarvogi, Grafarholti með Úlfarsárdal og Kjal- arnesi, Árbæ, Breiðholti og svo einn- ig Háaleitis- og Bústaðahverfi. Í Vesturbænum nýtur Samfylk- ingin stuðnings 42,6% kjósenda, 39,7% í Hlíðahverfi, 38% í Laugardal og 36% í Miðborginni. Í Grafarholti, Úlfarsárdal og Kjalarnesi mælist stuðningur við flokkinn aðeins 20% og 22,3% í Grafarvogi. Sjálfstæð- isflokkurinn sækir aftur á móti mest- an stuðning til íbúa í Grafarvogi, 42,1% og 37% í Grafarholti, Úlfars- árdal og Kjalarnesi. Þá er fylgi flokksins í Árbæ 36% og í Breiðholti 32,6%. Í Vesturbænum ætla fáir að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 12,1%, og í Hlíðahverfi 17,9%. Háskólafólk kýs Samfylkingu Þegar fylgi flokkanna í könnuninni er greint kemur í ljós mikill munur á afstöðu kynjanna til tveggja flokka, Sjálfstæðisflokksins og VG. Sjálf- stæðisflokkurinn nýtur stuðnings 32,7% karla en aðeins 21,6% kvenna. Þessu er öfugt farið hjá VG. Stuðn- ingur kvenna við flokkinn mælist 18,8% en karla aðeins 7,3%. Fylgi Samfylkingarinnar með tilliti til kynja er mjög svipað. Hvað aldurshópa varðar er fylgi Sjálfstæðisflokksins áberandi minnst hjá fólki á aldrinum 30 til 44 ára. Þar er fylgið 20,7%, Mest er fylgið í ald- urshópnum 45 til 59 ára, en þar er það 32,8%, Athygli vekur einnig að fylgi VG er mest meðal ungs fólks á aldrinum 18 til 29 ára, 19,8%. Talsverður munur er á viðhorfum kjósenda til flokkanna eftir menntun. Háskólamenntað fólk er fjölmennasti stuðningshópur Samfylkingarinnar, 36,5%. Aðeins 19% fólks sem ein- göngu er með grunnskólapróf styðja flokkinn. 22,2% kjósenda Sjálfstæð- isflokksins eru háskólamenntuð, en 36,7% fólks með framhaldsskóla- menntun ætla að kjósa flokkinn. Stuðningsmenn Miðflokksins úr röð- um háskólamenntaðra eru aðeins 2,7%. Ólík viðhorf eftir tekjum Þegar litið er á stöðu þátttakenda í könnuninni á vinnumarkaði kemur á daginn að stærsti kjósendahópur Sjálfstæðisflokks er sjálfstætt starf- andi fólk / atvinnurekendur, 39,9%. Þessi hópur er aftur á móti fámenn- astur meðal væntanlegra kjósenda Samfylkingarinnar og VG. Náms- menn eru fámennasti stuðnings- hópur Sjálfstæðisflokksins, 23,1%. Þegar horft er á heimilistekjur þátttakenda reynast þeir sem eru með 1.100 þúsund krónur eða meira í mánaðarlaun fjölmennastir meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins, 30%. Af kjósendum Samfylkingarinnar er stærsti hópurinn með heimilistekjur á bilinu 751 til 1.000 þúsund á mán- uði. 14% sem svöruðu óviss Tvær spurningar voru notaðar í könnuninni til að meta hvað svar- endur hygðust kjósa í borgarstjórn- arkosningunum 26. maí 2018. Fyrst var spurt: Ef gengið yrði til borg- arstjórnarkosninga í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa? Ef svar- endur sögðust ekki vita hvaða flokk eða lista þeir myndu kjósa voru þeir spurðir: En hvaða flokk eða lista tel- ur þú líklegast að þú myndir kjósa? Tvær leiðir voru notaðar til að ná til kjósenda. Annars vegar var hringt í 373 manna tilviljunarúrtak úr þjóð- skrá meðal fólks á aldrinum 18 til 25 ára með lögheimili í Reykjavík. Hins vegar var send netkönnun til 3089 manna úrtaks úr netpanel Fé- lagsvísindastofnunar Háskóla Ís- lands. Heildarúrtakið var því 3462 einstaklingar. Alls fengust 1792 svör frá svarendum á aldrinum 18-90 ára og var þátttökuhlutfall 52%. Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík Könnunin var gerð dagana 21. til 27. mars 2018. Einnig var spurt um fylgi Sósíalistaflokksins (1,4%), Alþýðufylkingarinnar (0,8%) og Frelsisflokksins (0,3%). Höfuðborgarlistinn hafði ekki tilkynnt framboð sitt þegar könnunin var gerð. Björt framtíð býður ekki fram að þessu sinni. heildarúrtak í könnuninni var 3.462 einstaklingar. 1.792 svöruðu og var þátttökuhlutfall 52%. Kjörnir verða 23 borgarfulltrúar í vor í stað þeirra 15 sem nú eru. 12 fulltrúa þarf til að mynda meirihluta.Úrslit kosninga 31. maí 2014 Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa Könnun 21.-27. mars 2018 Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa 30% 25% 20% 15% 10% 2,7% Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands 2 10,7% 2 7,3% 1 5,9% 2 7,7% 5 31,9% 8 31,7% 1 5,0% 1 8,3% 3 12,8% 4 25,7% 7 27,4% B Framsóknar-flokkur C Viðreisn D Sjálfstæðis-flokkur F Flokkurfólksins M Miðflokkurinn P Píratar S Samfylkingin V Vinstrihreyfingin– grænt framboð 0 0 3,1% Mikill munur eftir hverfum  Ný könnun vegna borgarstjórnar  Samfylkingin stærst  Meirihlutinn heldur  Sjálfstæðis- flokkurinn sterkastur í úthverfunum  Viðreisn með 2, Miðflokkurinn 1  Framsókn þurrkast út Skoða má nánari sundurliðun á könnuninni á mbl.is „Maður fær alltaf smá fiðring í mag- ann þegar það koma tölur,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri inntur eftir viðbrögðum við könn- uninni. „En þetta eru skemmtilegar tölur.“ Fylgi Samfylkingarinnar mælist 31,7% og er á pari við síðustu kosningar, en þó töluvert hærra en mælst hefur í könnunum að und- anförnu. „Ég hef ekki séð svona hátt [frá síðustu kosningum] svo ég muni eft- ir. Við vorum nú með 13% í haust,“ segir hann og hlær. Aðspurður hvað skýri uppsveifluna segist Dagur telja að skýrir valkostir séu að teiknast upp fyrir kosn- ingarnar. „Sjálfstæðisflokkurinn vill hverfa aftur til gamla tímans og hefur kynnt hugmyndir um þróun borgarinnar sem fólk áttar sig betur og betur á að verði vondar fyrir umferðina, þá sérstaklega þessar stóru stofnbrautir.“ Dagur segir markmiðið fyrir kosningarnar skýrt: að sú stefna sem hefur verið rekin fái meirihlutafylgi. „Mér finnst prósenta til og frá hjá Samfylkingunni ekki skipta höfuðmáli í þeim efnum.“ alexander@mbl.is Lykilatriði að sú stefna sem nú er rekin fái meirihlutastuðning Dagur B. Eggertsson „Það er greinilegt að tveir stórir pól- ar koma út úr þessu, með 7-8 fulltrúa hvor, Samfylkingin og Sjálfstæð- isflokkur. Aðrir flokkar eru mun minni. Meirihlutaflokkarnir eru að gefa eftir,“ segir Eyþór Laxdal Arn- alds, efsti maður á lista Sjálfstæð- isflokksins við komandi borg- arstjórnarkosningar. „Þrátt fyrir að nýir flokkar komi inn erum við með meira fylgi en við síðustu kosningar. Ég á von á að við förum vel yfir 30% í kosningunum. Það er mjög stór hópur í borginni sem vill breytingar. Ég trúi því að þegar valkostirnir eru svona skýrir og við langstærsti minnihlutaflokkurinn, munum við fá góðan stuðning,“ segir Eyþór. Meirihlutinn virðist halda, samkvæmt þessari könn- un, en Eyþór telur að flokkarnir sem að honum standa muni gefa enn meira eftir en þessi könnun gefur til kynna. „Ég skynja það að þeir sem segjast styðja meiri- hlutaflokkana eru ekki sérstaklega stoltir af verkum hans. Ég tel að það muni skipta máli. Fólk velji breyt- ingar þegar upp er staðið,“ segir Eyþór. helgi@mbl.is Mjög stór hópur í borginni vill sjá breytingar Eyþór Laxdal Arnalds

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.