Morgunblaðið - 29.03.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
Borgartúni 22 og Dugguvogi 4, Reykjavík, S: 588 8000 • Dalshrauni 11, Hafnarfirði, S: 588 8000
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, S: 421 2720 Gleráreyrum 2, Akureyri, S: 461 2760
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • slippfelagid.is
Litina hennar Sæju
færð þú í Slippfélaginu
GÆÐIN
Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið.
Votur
Volgur Ber
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú færðu stund milli stríða og ættir
að nota hana til þess að koma öllu í röð og
reglu. Áætlanir sem tengjast frímálum, list-
sköpun og börnum ættu að ganga að óskum.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú verður ekki lengur undan því vikist
að taka ákvörðun varðandi starfsvettvang. En
mundu að einbeita þér einungis af því sem þú
hefur áhuga á.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þrátt fyrir vinsældirnar skaltu var-
ast að bera öll þín vandamál á torg vinátt-
unnar. Vertu þakklátur og mundu að sönn
vinátta snýst um það að gefa og þiggja.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú vinnur af öllum kröftum að uppá-
haldsverkefninu þínu. Gerðu eins og þú vilt
og gættu þess að enginn sái fræjum efa-
semda innra með þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gamla reglan um að tala ekki um trúar-
brögð og stjórnmál í kurteisissamræðum
stendur enn. Láttu allar illdeilur á vinnustað
sem vind um eyru þjóta.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú væri kjörið að gera framtíðar-
áætlun. Gættu þess bara að gleyma ekki
hvað skipir raunverulegu máli í lífinu. Nú ríður
á að vera vel undirbúinn fyrir verkefni dags-
ins.
23. sept. - 22. okt.
Vog Leggðu áherslu á að hitta fólk og taka
þátt í umræðum um þau mál sem eru í
brennidepli. Njóttu augnabliksins, því allt
sem þú snertir verður að töfrum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er af og frá að þú þurfir að
vera sammála öllum bara til þess að allt sé
slétt og fellt á yfirborðinu. Fólk leggur sig
fram við að gera þér til hæfis og öfugt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú leggur þig allan fram í starfi
og það vekur almenna hrifningu yfirmanna
þinna. Sá sem fer með mannaforráð verður
umfram allt að vera sanngjarn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft á öllum þínum innri styrk
að halda svo þú skalt leggja þig fram um að
varðveita hann. Innsæi þitt leiðir þig ná-
kvæmlega þangað sem þú átt að vera.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Varastu að taka fljótfærnislegar
ákvarðanir í fjölskyldumálunum í dag. Stund-
um er besta ráðið bara að gera ekki neitt og
búa sig undir næsta dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú getur treyst reglum sem þú setur
þér sjálfur. Haltu öllum óþægindum frá þér
og einbeittu þér að lífsins björtu hliðum. Ein-
hver gæti gefið þér gjöf eða gert þér greiða.
Ég vissi ekki hvernig ég átti aðbyrja Vísnahornið á skírdegi,
sem „kenndur er við stofnun heil-
agrar kvöldmáltíðar“ eins og segir
í „Íslenskri orðabók“. Ég kaus að
fletta upp í Skáldu Jóhannesar úr
Kötlum. 29. apríl 1866 fæddist
Emil Petersen og við hann stend-
ur þetta vel kveðna erindi eftir
hann:
Hátt í lofti leika
loðin þokuflögð,
flaksa, riðlast, reika
römm við stormabrögð,
ólmast, elta, flýja
- en þótt leikur gráni
skýst á milli skýja
skjannafölur máni.
Þessu erindi læt ég fylgja eina
af spakmælavísum Jóns á Arnar-
vatni þótt skyldleiki sé enginn,
hvorki að efni né formi:
Orðin eru fyrst á ferð
fram til allra gerða,
en séð hef eg ástaraugnagerð
orðunum fyrri verða.
Ég hef alltaf haft gaman af
þessari limru Kristjáns Karls-
sonar:
Sól skín um borð og bekki
bjartari en ég þekki.
Annars er myrkur
manninum styrkur
meðan hann lagast ekki.
Kristján og Jóhann S. Hann-
esson skiptust á limrum fyrir vest-
an svo að ég tek hér eina eftir Jó-
hann sem ég varð að lesa tvisvar
og með sérstökum áherslum og
þögnum til að njóta hennar:
Það er rétt gott að segja alltaf satt,
en satt best, þá finnst mér það pjatt
ef satt, rétt og gott
eru úr sitt hverjum pott
að setja þau undir einn hatt.
Munnmælin lýsa skilnaði Natans
Ketilssonar og Skáld-Rósu svo, að
honum hafi farist illa við hana og
drengskaparlaust. Rósa sendi Nat-
an mikið ljóðabréf og er sagt að
Natan hafi kveðið eftir að hafa
lesið það:
Allt er þetta amorslega kveðið.
Það hefur ruglað seljan seims,
sárkvalin af girndum heims.
Af einhverjum ástæðum kom
Æri-Tobbi upp í hugann:
Hér getur enginn komist í kör fyrir
kæsisdöllum.
Þambara vambara þeysingssköllum,
Þórarinn bóndi á Hvítárvöllum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skjannafölur máni
og maðurinn sjálfur
„ÉG FALDI ÞJÖL Í KÖKUNNI – ÞAÐ ER, MYND
AF HENNI Á MINNISKUBBI MERKT „1001 LEIÐ
TIL ÞESS AÐ LÁTA TÍMANN LÍÐA.““
„ÉG ÞOLI EKKI AÐ SJÁ BLÓÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú ferð í
galleríið í staðinn fyrir
að horfa á fótboltann.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ERTU BÚINN AÐ LESA
GREININA UM MIG ÞÁ?
ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ
KOMAST HJÁ ÞEIM!
BÚIÐ YKKUR UNDIR AÐ
MÆTA ÓVININUM!
MÁ ÉG FÁ GREIÐUNA
ÞÍNA LÁNAÐA?
Þegar Víkverji var barn vildi hannalltaf að páskaeggið sitt væri
sem stærst og mest. Jafnvel þá var
þegar ljóst að Nói-Siríus vann flest-
ar vinsældakosningar í vinahópnum
og þeir allra óheppnustu urðu að
gera sér egg frá Mónu, sem brögð-
uðust alltaf svo sérkennilega, að
góðu. Víkverji lofaði sjálfum sér því,
að þegar hann yrði fullorðinn myndi
hann kaupa stærsta páskaegg sem
hann gæti fundið, gott ef þetta risa-
stóra sem var alltaf í Kringlunni var
ekki bara á innkaupalistanum.
x x x
Síðan er mikið vatn runnið til sjáv-ar og Víkverji er kominn á full-
orðinsár, að minnsta kosti líkam-
lega. Þá vill svo til að hann hefur
eiginlega ekki áhuga á því að fá sér
páskaegg. Eða ekki það mikinn að
hann myndi fara út í búð að kaupa
sér það ef vinnan væri ekki svo væn
að gefa honum egg. Víkverji er mjög
þakklátur fyrir það en finnur að
sama skapi að eftir því sem árunum
fjölgar er hann æ lengur að klára
eggin.
x x x
Eitt enn: hvað varð eiginlega umbotninn í þessum páskaeggjum?
Þegar Víkverji var lítill var botninn
alltaf nánast gegnheill. En nú er svo
komið að Víkverji telur sig heppinn
ef botninn er ekki hreinlega brotinn
löngu áður en eggið á að opnast. Var
kannski bara allt betra í gamla
daga? Víkverja er spurn.
x x x
Málshættirnir eru síðan það semveldur alltaf mestum kvört-
unum hjá fjölskyldu Víkverja. Ann-
aðhvort eru málshættirnir í eggj-
unum of „normal“, neyðin kennir
naktri konu að spinna sko, eða þeir
eru einhvers konar samtíningur af
einhverju sem óheppnasti starfs-
maður súkkulaðiverksmiðjunnar
hefur þurft að galdra fram á fimm
mínútum. „Sjaldan er ein báran
spök“, eða „Vont er að kenna göml-
um hundi að sitja reiðhjól“. Það
skiptir því engu máli hvaða leið
málsháttahöfundarnir fara; þeir
sitja alltaf uppi með skömmina. Vík-
verji vill því hrósa þeim fyrir að
nenna þessu. vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að af náð eruð þið hólpin orðin
fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka.
Það er Guðs gjöf.
(Efesusbréfið 2.8)