Morgunblaðið - 29.03.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.03.2018, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Recep Tayy-ip Erdog-an Tyrk- landsforseti ákvað fyrr í vikunni að lýsa því yfir að Tyrkir stefndu enn að því að verða fullgildir meðlimir Evrópusambands- ins. Ummælin féllu í aðdrag- anda viðræðna sem Erdogan átti við Donald Tusk, forseta Evrópuráðsins, og Jean- Claude Juncker, forseta fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, um málefni Tyrk- lands í Varna í Búlgaríu. Yfirlýsing Erdogans hljóm- ar óneitanlega nokkuð sér- kennilega því að þrettán ár eru liðin frá því að Tyrkir sóttu formlega um aðild að Evrópusambandinu og vitað var af áhuga þeirra á að ger- ast aðilar að sambandinu í mörg ár þar á undan. Engu að síður hefur raunin verið sú, sérstaklega síðustu fimm árin eða svo, að Tyrkir hafa frekar færst fjær því að uppfylla þau skilyrði sem krafist er af verðandi aðildarríkjum. Og aðild þeirra að sambandinu hefur raunar allan tímann verið afar fjarstæðukennd. Sá virðist hins vegar ekki vera skilningur Tyrkja, því að Binali Yildirim, forsætisráð- herra landsins, ákvað að greina frá viðræðum Erdog- ans við forystu sambandsins með þeim hætti, að þar hefði ekkert komið fram sem ætti að hindra að Tyrkland gerðist aðili. Sagði Yildirim beint út að Tyrkir hefðu uppfyllt allar kröfur, en að Evrópusam- bandið ætlaði sér að láta bar- áttu landsins gegn „hryðju- verkamönnum“ standa í veginum. Vísaði hann þar til baráttu tyrkneska hersins gegn Kúrdum í Sýrlandi. Er ljóst af orðum þeirra Yildirims og Erdogans að Tyrkir ætla ekki að draga að- ildarumsókn sína til baka að fyrra bragði, jafnvel þó að nær engar líkur séu á að hún verði samþykkt, alltént ekki á meðan stjórnmálaástandið í Tyrklandi er eins og það er. Á sama tíma virtust þeir nánast mana forystu sambandsins til þess að stíga fyrsta skrefið til þess að slíta viðræðunum. Nánast engar líkur eru þó á því, þar sem Evrópusam- bandsríkin eiga umtalsverðra hagsmuna að gæta þegar kemur að samskiptunum við Tyrkland. Fyrir utan þá stað- reynd, að Tyrkir settu neyðarhemil á straum sýr- lenskra flóttamanna gegn um- talsverðri þóknun, mega hvorki Evrópusambandið né Bandaríkin við því í hinu flókna ástandi sem nú ríkir í Mið-Austurlöndum, að Erdog- an halli sér enn frekar upp að Pútín Rússlandsforseta og Ír- an. Engu að síður munu sam- skiptin við Tyrki áfram verða stirð, sér í lagi þar sem flest bendir til þess að Erdogan muni á næstunni reyna enn frekar að festa sjálfan sig í sessi sem alvald Tyrklands. Hvort það sýður endanlega upp úr mun velta að mestu leyti á langlundargeði vestur- veldanna gagnvart þessum erfiða bandamanni sínum. Tyrkir „stefna enn að aðild“ að ESB} Þrettán ára þrautaganga Michael Sauga,yfirmaður Berlínarskrifstofu Der Spiegel, segir að á meðan þingið í Katalóníu haldi aukafund vegna handtöku Carles Puigdemont, fyrrverandi forseta Katalóníu, velti Þjóðverjar því fyrir sér hvers vegna ríkisstjórn An- gelu Merkel hafi tekið svo harða afstöðu með ríkisstjórn- inni í Madríd. Svarið blasir við, segir hann. Hjá Merkel hafi þetta ekki snúist um að sýna skilyrð- islausa samstöðu með kollega sínum Mariano Rajoy, heldur hafi aðgerðir Þýskalands átt að vera aðvörun til aðskiln- aðarsinna í systurflokki henn- ar flokks, CSU í Bæjaralandi. Sauga bendir á að áhrifa- menn í CSU hafi gert það lýðum ljóst að þeir hafi ekki trú á stefnu kanslarans og að þeir vilji að Bæj- araland komi sér upp eigin landamæragæslu. Og hann veltir því fyrir sér hvort Merkel hyggist taka ákvæði um slíka uppreisnar- tilburði inn í refsilöggjöf landsins. Það er umhugsunarvert að blaðamaður Der Spiegel skuli velta upp slíkum spurningum. En þær eiga rétt á sér. Og það sem meira er, slíkar vangavelt- ur geta átt við um fleiri ríki Evrópusambandsins. Sem kann að skýra fálæti þessara ríkja og sambandsins. En það skýrir ekki fálætið annars staðar. Var Puigdemont handtekinn til að senda skilaboð innan Þýskalands?} Handtaka til heimabrúks H vað gera þingmenn eiginlega? Utan frá virðast þingmenn bara mæta í ræðustól Alþingis og segja misgáfulega hluti um misalvarleg mál. Sitja svo bara á nefndarfundum allan daginn, vita ekkert hvernig gengur og gerist með lífið almennt og fá ofurlaun fyrir endalaus frí? Það sorglega er að það er sannleikskorn í þessu. Það þarf ekki nema einn þingmann til þess að „staðfesta“ þessa skoðun, jafnvel ekki nema eitt dæmi um að einhver einn þingmaður líti út fyrir að vita ekkert um daglegt líf eða eitt dæmi um „ranga“ skoðun eða sjálftöku, þá eru allir þingmenn ómögulegir. Það er hins vegar ekkert sjálfsagt að vita né skilja hvert þingmannsstarfið er. Það er engin kennslustund sem fólk fer í um það. Stjórnarskráin gerir ráð fyrir því að hver þingmaður sé sjálfstæður út frá eigin sannfæringu. Frá því sjón- arhorni getur þingmaður í raun gert hvað sem hann vill, nema hann sé staðinn að glæp. Flestir vilja hins vegar gera sitt besta fyrir þjóðina og spurningin er þá hvernig? Hvert er hlutverk þingmanns? Hlutverkið skiptist í tvo hluta, að samþykkja lög og að hafa eftirlit með framkvæmd laga. Til þess að geta sam- þykkt lög á heiðarlegan hátt samkvæmt sannfæringu sinni þá þarf þingmaður að fá upplýsingar og álit. Það er nefnilega ekki gert ráð fyrir því að þingmaður sé sér- fræðingur í einu eða neinu. Sérstaða þingmannsins er sannfæring hans, m.ö.o. samviska. Sú sannfæring birtist í ræðu, álitum og atkvæðagreiðslum á þingi. Hitt hlutverkið er eftirlitshlutverk. Að mínu mati er það hlutverk miklu mikilvægara því ef lögin væru í lagi þá væri það eina hlutverkið sem þingmaður myndi sinna. Eftirlits- hlutverkið snýst um að skoða verk ráðherra, kalla eftir upplýsingum og meta hvort rétt sé farið með vald. Þess vegna erum við með stjórnsýslulög, upplýsingalög og lög um ráð- herraábyrgð. Svo nokkur dæmi séu nefnd. Lög um hvernig á að vinna, hvað á að vera að- gengilegt og hver ber ábyrgð. Þessi tvö hlutverk stíga ákveðinn dans um samfélagsleg vandamál. Fyrir hvert vanda- mál, þarf reglur? Hvernig lýsir vandamálið sér og hvaða áhrif myndu reglur hafa á það? Þegar reglurnar eru svo settar þá þarf að fylgjast með að þær skili tilætluðum árangri og meta hvort einhver beri ábyrgð ef eitthvað fer úr- skeiðis. Því miður sinna allt of fáir eftirlitshlutverkinu að mínu mati og úr verður þessi ræðustólakeppni þar sem ásakanir og strámenn fljúga á milli óháð því hvað er satt og hvað ekki. Rök víkja fyrir fyrirsögnum og málþóf verður mikilvægara en málefnið. Það er einfaldlega auð- veldara að rífast um hugmyndafræði en að sinna gæða- eftirliti. Það er auðveldara að segja stór orð en að standa undir þeim. Það er auðveldara að gagnrýna spurninguna en að svara henni bara heiðarlega. Björn Leví Gunnarsson Pistill Þið verðið að segja mér satt Höfundur er þingmaður Pírata bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Endurskoða þarf nám á há-skólastigi út frá þörfumatvinnulífsins í ljósi þessmisgengis sem hefur orðið milli háskólanáms og atvinnulífs, þar sem hópur háskólamenntaðra sem fær ekki vinnu við hæfi að loknu há- skólanámi fer vaxandi. Um þetta eru aðilar vinnumarkaðarins sammála. Upp úr páskum munu fulltrúar atvinnulífsins og launafólks eiga fund með Lilju Alfreðsdóttir mennta- málaráðherra og óska eftir stuðnigi ráðuneytisins við fagháskólanám hér á landi. Skipulag og uppbygging fagháskólanáms byggist á nánum tengslum við atvinnulífið og hefur at- vinnutengd lokamarkmið. Þá er starfsmenntun eða starfstengd sér- menntun oft viðurkenndur undirbún- ingur fyrir fagháskólanám. Þrátt fyrir ljósa punkta inn á milli hefur fagháskólanám gengið í gegnum vissan öldudal á liðnum ár- um. Hlutfall nemenda í faghá- skólanámi féll á árunum 2007 til 2014 úr 8,1 prósenti niður í 5,4 prósent af heildarfjölda nemenda í framhalds- menntun á Íslandi og er Ísland mikill eftirbátur nágrannaríkjanna þegar litið er til fagháskólamenntunar á há- skólastigi. Á því sviði hafa Finnar vinninginn en rétt tæplega helmingur nemenda í finnskum háskólum stund- ar nám við fagháskóla samanborið við rúmt prósent hér á landi, samkvæmt skráningu Hagstofunnar. Þá gekk samkomulag sem Illugi Gunnarsson, fyrrv. mennta- málaráðherra, gerði við aðila vinnu- markaðarins um fjármögnun til- raunaverkefna á sviði fagháskólamenntunar til baka eftir að Illugi lét af embætti, en um var að ræða 150 milljóna króna verkefni, þar sem hið opinbera hugðist koma með 100 milljónir króna á móti 50 millj- ónum frá vinnumarkaðinum. Tilraunaverkefnin sem ráðast átti í voru þrjú; nám ætlað sjúkralið- um í öldrun, tækninám á háskólastigi fyrir byggingar-, málm- og bílgreinar og diplómanám í verslunarstjórnun. Nýtt nám í verslunarstjórnun Síðastnefnda verkefnið varð þó að veruleika þrátt fyrir að til- raunaverkefnið í samstarfi við ráðu- neytið hefði ekki gengið eftir. Um miðjan febrúar sl. fór af stað sérstök námsleið í samstarfi aðila verslunar- innar, Háskólans í Reykjavík og Há- skólans á Bifröst. Um er að ræða 60 ECTS-eininga diplómanám í við- skiptafræðum og verslunarstjórnun en þeir 20 nemendur sem eru skráðir í námið hafa flestir víðtæka reynslu af verslunarstörfum. Einingarnar í dip- lómuna má síðar nýta upp í há- skólagráðu í viðskiptafræði. Stefnt er á að nám fyrir starfsmenn í stjórn- sýslunni fari af stað í haust en þar er um að ræða samstarfsverkefni SFR, fjármálaráðuneytisins og Háskólans á Bifröst. Hefðbundnum skólum fjölgar Runólfur Ágústsson sem kom að vinnu verkefnahóps um faghá- skólanám, sem skilaði af sér skýrslu árið 2016, segir ávinninginn af faghá- skólum fyrst og fremst felast í því að út í atvinnulífið skili sér fólk sem eft- irspurn er eftir. Hann segir að á sama tíma og mikilvægt sé að búa yfir öflugum rannsóknarháskólum hér á landi sé það brýnt að bjóða upp á hagnýta menntun. „Á sama tíma og fjöldi þeirra nemenda sem innritast í há- skóla hefur tvöfaldast hefur nem- endum í starfsnámi fækkað og þeir skólar á háskólastigi sem áður skil- greindu sig sem sérskóla hafa runn- ið saman við stærri hefðbundna skóla eða fært sig nær slíkri skilgreiningu. Menntun sem mætir þörfum atvinnulífs Morgunblaðið/Eggert Skóli Aðilar vinnumarkaðarins vilja sjá breyttar áherslur í framhalds- menntun hér á landi. Ísland er eftirbátur nágrannaríkja í fagmenntun. Halldór Grönvold, aðstoð- arframkvæmdastjóri ASÍ, segir aðila vinnumarkaðarins hafa leitt vinnuna við aukna fag- menntun hér á landi en segir frumkvæðinu ekki hafa verið of vel tekið hjá menntayfirvöldum. „Við höfum verið sammála Samtökum atvinnulífsins um að það sé mikil þörf fyrir endur- skoðun náms á háskólastigi út frá möguleikum einstaklinga og atvinnulífsins til að skapa fólki störf og tekjumöguleika,“ segir Halldór. Hann segir að endurskoða þurfi menntakerfið m.t.t. þess hversu mikil vöntun er á fólki með góða verk- og tækni- menntun og endurskoða þurfi mennta- kerfið út frá þeim for- sendum. Brýnt að mæta þörf ASÍ VILL BREYTINGAR Halldór Grönvold

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.