Morgunblaðið - 29.03.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
Fjarðalistinn, L-listi félagshyggju-
fólks í Fjarðabyggð, var sam-
þykktur á opnum félagsfundi í vik-
unni. Á listanum eiga sæti átta
konur og tíu karlar. Eydís Ás-
björnsdóttir, bæjarfulltrúi L-
listans, er í fyrsta sæti og Sigurður
Ólafsson, verkefnastjóri hjá SVN,
er í öðru sæti. Næst á eftir þeim
koma Hjördís Helga Seljan Þór-
oddsdóttir umsjónarkennari og
Einar Már Sigurðarson skólastjóri.
Eydís verður efst á
Fjarðalistanum
Fjarðabyggð Stærstur hluti frambjóð-
enda á Fjarðalistanum í kosningunum í vor.
Framboðslisti bæjarmálafélagsins
Fyrir Kópavog var samþykktur í
netkosningu félagsmanna nýverið.
Um er að ræða nýtt framboð fyrir
kosningarnar í vor. Efstur á listan-
um er Ómar Stefánsson, fv. bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins í
Kópavogi.
Í næstu fimm sætum á eftir Óm-
ari eru Jóna Guðrún Kristinsdóttir,
Rebekka Þurý Pétursdóttir, Hlynur
Helgason, Valgerður María Gunn-
arsdóttir og Guðjón Már Sveinsson.
Fyrir Kópavog Sex efstu frambjóðendur á
nýjum lista fyrir kosningar í Kópavogi.
Fyrir Kópavog með
Ómar efstan á lista
Helgi Kjartans-
son verður odd-
viti T-listans í
Bláskógabyggð í
sveitarstjórnar-
kosningunum nú
í vor. Uppstill-
ingarnefnd lagði
fram tillögu um
röðun á listann á
fundi í Aratungu
og var hún samþykkt samhljóða. Í
næstu sætum verða Valgerður Sæv-
arsdóttir, Kolbeinn Sveinbjörnsson,
Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir og
Róbert Aron Pálmason.
Helgi efstur á T-lista
í Bláskógabyggð
Helgi Kjartansson
Framboðslisti D-lista sjálfstæðis-
manna og óháðra fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar í Grund-
arfirði hefur verið samþykktur.
Jósef Ó. Kjartansson leiðir
listann en í næstu sætum eru Heið-
ur Björk Fossberg Óladóttir, Unnur
Þóra Sigurðardóttir og Rósa Guð-
mundsdóttir.
Grundarfjörður Fjögur efstu á listanum.
Jósef efstur á D-
lista í Grundarfirði
2018
Tryggingastofnun ríkisins (TR) hef-
ur verið sýknuð af kröfu Flokks
fólksins vegna máls sem tengist út-
borgun lífeyris í ársbyrjun 2017.
Málið er rekið í nafni Sigríðar Sæ-
land Jónsdóttur, móður Ingu Sæ-
land, formanns Flokks fólksins. Inga
sagði í samtali við mbl.is að flokk-
urinn myndi áfrýja dómnum til
Hæstaréttar.
Forsaga málsins er sú að þegar
Alþingi breytti lögum skömmu fyrir
áramót 2016/2017 féll fyrir mistök út
ákvæði sem heimilaði skerðingu á líf-
eyri eldri borgara vegna greiðslna
sem þeir fá úr lífeyrissjóði. Trygg-
ingastofnun skerti samt sem áður
greiðslur lífeyrisþega um næstu
mánaðamót og sendi stjórnvöldum
ábendingu um mistökin. Því var lög-
unum breytt til að setja aftur inn
heimild fyrir skerðingunni. Sú
breyting var afturvirk. Nam skerð-
ingin alls um fimm milljörðum kr.
Áfrýja máli gegn
TR til Hæstaréttar
Morgunblaðið/Hari
Dómsmál Sigríður Sæland og dóttir hennar, Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, fyrir utan dómsal, eftir að niðurstaða lá fyrir í málinu gegn TR.
Rekið í nafni móður Ingu Sæland
Við þökkum þolinmæðina og hlökkum til
að taka á móti ykkur í glæsilegri Vínbúð.
LOKAÐ
ÍAPRÍL
VÍNBÚÐIN SKÚTUVOGI
Vínbúðin í Skútuvogi verður lokuð
í apríl vegna breytinga. Við bendum
viðskiptavinum á að næstu Vínbúðir
eru í Skeifunni og Borgartúni.