Morgunblaðið - 29.03.2018, Qupperneq 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
Kerruöxlar
& íhlutir
ALLT TIL
KERRUSMÍÐA
ingaverðlaun skólamálaráðs Reykja-
víkur. Auk þess hefur Kristín gefið út
barnabækur og átt ljóð í ljóðasöfnum.
„Sumarið 1959 var sveitaprestur
austan af Hornafirði, Rögnvaldur
Finnbogason, að aka jeppanum sín-
um um Hringbrautina með vini sínum
Árna Pálssyni. Kom hann þá auga á
stúlkukind að paufast upp steyptu
tröppurnar á Þjóðminjasafninu. Hver
er þessi fallega stúlka? spurði prest-
ur. Þetta er hún Systa Toll, svaraði
Árni. Og fáum dögum seinna hitti
Rögnvaldur kunningja sinn, Ragnar
Arnalds, sem þá var að gera hosur
sínar grænar fyrir skólasystur sinni
og systur minni, og Rögnvaldur slóst
í för með honum upp í Bólstaðarhlíð
og þar hittumst við fyrst.
Rögnvaldur var þekktur fyrir að
fara ekki alltaf troðnar slóðir og hann
hreykti sér af því að hann hefði
krækt sér í kostagrip af Þjóðminja-
safninu öfugt við flesta presta aðra,
sem margir máttu sjá af forláta alt-
aristöflum, predikunarstólum, kal-
eikum og öðrum merkisgripum inn í
sýningarsali Þjóðminjasafnsins. Ekki
veit ég hvort ég varð honum kosta-
gripur, en sjö börn áttum við. Elsta
soninn misstum við af slysförum, og
vissulega finnst manni ekki réttlátt
að börnin fari á undan foreldrum sín-
um. En svo segir hinn vísi Salómon:
Barnabörnin eru kórónur öldung-
anna, og ég á 18 barnabörn, sem öll
eru auðvitað afbragð annarra barna.“
Fjölskylda
Eiginmaður Kristínar var Rögn-
valdur Finnbogason, f. 15.10. 1927, d.
3.11. 1995, sóknarprestur á Staðastað
í Staðarsveit. Foreldrar hans: hjónin
Finnbogi Jónsson, f. 29.6. 1892, d.
1.11. 1974, verkamaður í Hafnarfirði,
og Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 20.3.
1893, d. 20.6. 1970, húsfreyja í Hafn-
arfirði.
Börn: 1) Áslaug Thorlacius, f. 3.7.
1955, þýðandi í Danmörku, maki
Sven Aschberg; 2) Ingibjörg f. 8.2.
1961, bókasafnsfræðingur og deild-
arstjóri Upplýsingamiðstöðvar
Tækniskóla, maki Árni Þór Vésteins-
son; 3) Ragnhildur f. 16.8. 1962, leik-
skólakennari í Danmörku, maki
Markús Gunnarsson; 4) Sigurður
Thorlacius, f. 11.1. 1964, d. 25.10.
1999, doktor í jarðeðlisfræði, maki
Nanna Lind Svavarsdóttir; 5) Finn-
bogi f. 1.6. 1965, jarðfræðingur og
kennari í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands, maki Sæbjörg Kristmanns-
dóttir; 6) Örnólfur Einar, f. 7.1. 1969,
doktor í stjarneðlisfræði í Kaup-
mannahöfn, maki Magnea Þóra Ein-
arsdóttir; 7) Ólafur f. 16.5. 1975, dokt-
or í eðlisfræði og á fyrirtækið Belg-
ing, maki María Edwardsdóttir.
Barnabörnin eru átján og barna-
barnabörnin fjögur.
Systkini: Örnólfur, f. 9.9. 1931, d.
5.2. 2017, rektor MH, Hrafnkell, f.
1937, d. 17.6. 2007, arkitekt, Hallveig,
f. 1939, brúðuleikari, og Kristján, f.
1941, kennari og fv. áfangastjóri í
Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Foreldrar: Hjónin Áslaug Krist-
jánsdóttir f. 21.11. 1911, d. 16.4. 2014,
ritari, og Sigurður Thorlacus, f. 4.7.
1900, d. 17.8. 1945, skólastjóri
Austurbæjarskólans í Reykjavík.
Úr frændgarði Kristínar Thorlacius
Kristín Thorlacius
Anna Sigurðardóttir
húsfr. á Fremstafelli
Guðlaugur Ásmundsson
b. á Fremstafelli, af Skútustaðaætt
Rósa Guðlaugsdóttir
húsfr. á Fremstafelli
Kristján Jónsson
b. á Fremstafelli í Köldukinn
Áslaug Kristjánsdóttir
ritari í Rvík
Rannveig Jónsdóttir
húsfr. á Hriflu
Jón Kristjánsson
b. á Hriflu, af Hvassasfellsætt
Helga Kristjánsd., skólastj. Húsmæðraskólans
á Akureyri og húsfr. á Silfrastöðum
Jónas Kristjánsson forstöðum.
Stofnunar Árna Magnússonar
Jón Kristjánsson b. á Fremstafelli
Kristján Thorlacius
form. BSRB
Gylfi Thorlacius
hrl.
Birgir J. Thorlacius
ráðuneytisstj.
Markús Möller
hagfræðingur
Hallveig
Thorlacius
brúðuleikari
Helga Arnalds brúðu-
leikari og eigandi
leikhússins Tíu fingur
Pétur Eggerz
sendiherra
Sigurður Eggerz
alþm. og ráðherra
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfr. í Akureyjum
Pétur Eggerz
kaupstjóri í Akureyjum
Ragnhildur Pétursdóttir Eggerz
húsfr. á Búlandsnesi
Sigurður Thorlacius
skólastj. Austurbæjarskóla í Rvík
Jónas Jónsson frá
Hriflu alþm. og ráðh.
Auður Jónasdóttir
húsmæðrakennari
Sigurður Steinþórsson
jarðfræðiprófessor
Gerður Steinþórsdóttir
Cand.mag.
Ólafur Thorlacius
læknir á Búlandsnesi
Kristín Rannveig
Tómasdóttir Thorlacius
systurdóttir Jónasar
Hallgrímssonar skálds, af
Hvassafellsætt
Þorsteinn Thorlacius
hreppstj. á Öxnafelli
Ólöf Margrét Þorsteins-
dóttir húsfr. á Akureyri
Vilhjálmur Þór kaupfélagsstj.
KEA, bankastj. og ráðherra
Einar Júlíus Hallgrímsson b. á
Munkaþverá, sonur Hallgríms
Tómassonar, bróður Kristínar
Tómasdóttur Thorlacius
Kristín
Jónsdóttir
frá Munka-
þverá,
myndlistar-
maður
Margrét Einarsdóttir
Thorlacius húsfr. á
Grund í Eyjafirði
Jón Marinó
Júlíus-
son b. á
Munka-
þverá í
Eyjafirði Jón Thorlacius
pr. í Saurbæ í Eyjafirði, systursonur Álfheiðar,
langömmu Einars Guðfinnssonar útgerðarmanns
Kristján
Thorlacius
kennari og
áfangastj.
í Fjölbraut
við Ármúla
Áslaug Thorlacius
myndlistarm.
og skólastj.
Myndlistaskólans í
Reykjavík
Sigríður Thorlacius
söngkona
Þorsteinn Gíslason fæddist 29. mars
1924 í Reykjavík. Foreldrar hans
voru hjónin Gísli Jónsson, vélstjóri
og alþingismaður Barðstrendinga, f.
1889 á Álftanesi, d. 1970, og Hlín
Þorsteinsdóttir, f. 1899 í Reykjavík,
d. 1964.
Þorsteinn var stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1944.
Hann nam við Massachusetts Insti-
tute of Technology frá 1945 til 1947
og útskrifaðist með BS-gráðu í véla-
verkfræði. Síðan var hann við Har-
vard University 1947 til 1948 og út-
skrifaðist þaðan með MS í verk-
fræði.
Eftir nám kom Þorsteinn heim til
Íslands störf sem verkfræðingur við
tæknideild Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna 1949. Hann flutti síð-
an til Boston og hóf störf hjá Spor-
lan Valve Company við sölu-
mennsku. Þaðan flutti hann til St.
Louis 1957 þar sem Þorsteinn starf-
aði sem verkfræðingur í tæknideild
hjá Sporlan. Þorsteinn var útnefnd-
ur yfirverkfræðingur fyrirtækisins
1962.
Sama ár var Þorsteinn ráðinn til
Coldwater Seafood Corporation í
New York sem forstjóri. Hann réðst
í mikla uppbyggingu á starfsemi
fyrirtækisins og á þeim 22 árum sem
Þorsteinn var forstjóri Coldwater
jókst velta fyrirtækisins yfir tífalt og
safnaðist upp töluverður arður. Fé-
lagið varð leiðandi í sölu alls freðins
botnfisks á Bandaríkjamarkaði og
seldi yfirgnæfandi meirihluta alls
freðfisksútflutnings Íslendinga á
þeim árum. Þorsteinn lét af störfum
hjá Coldwater 1984.
Eftir það flutti Þorsteinn til
Rhode Island og vann þar að þróun-
ar- og tæknistörfum á eigin vegum
þar til hann hætti störfum.
Fyrri eiginkona Þorsteins var
Ingibjörg Ólafsdóttir, en þau skildu.
Eignuðust þau synina Þorstein, f.
1947, og Ólaf, f. 1952. Þorsteinn
kvæntist síðan Marianne Becker
Lane, f. 1942.
Þorsteinn lést í Newport, Rhode
Island 24.2. 2017.
Merkir Íslendingar
Þorsteinn
Gíslason
Skírdagur
85 ára
Petra Mathilda J.
Guðbrandsson
Þórir E. Magnússon
80 ára
Guðjón Haraldsson
75 ára
Andri Valur Hrólfsson
Guðrún G. Bergmann
Sveinn Henrik H.
Christensen
Unnur Tómasdóttir
70 ára
Björn Baldursson
Edda Eðvaldsdóttir
Hallur Steingrímsson
Ingimar Þór Gunnarsson
Marta E. Sigurðardóttir
Ruth Barbara Zohlen
Sigurjón Sigurðsson
60 ára
Bára Benediktsdóttir
Bjarni Sigurðsson
Björgvin Ómar
Hafsteinsson
Björn Friðþjófsson
Haraldur H. Hermannsson
Ingvar Pétursson
Linda María Runólfsdóttir
Nadege D. Prat
Ragnheiður Gunnarsdóttir
Sigríður Stefánsdóttir
Sæunn Halldórsdóttir
50 ára
Ananya Rodpitak
Ewa Szewczyk
Kristín Bjarnadóttir
Óskar Einarsson
Páll Ólafsson
Sverrir Ingi Jónsson
40 ára
Aðalbjörg Birna
Guttormsdóttir
Aðalheiður M.
Steindórsdóttir
Anita Hólm Sigurðardóttir
Bryndís Björnsdóttir
Dagný Ósk Ásgeirsdóttir
Dorota Obuch
Finnborg Elsa
Guðbjörnsdóttir
Guðmundur Magnússon
Hreiðar Smári Marinósson
Iwona Wesolowska
Jón Guðmundur
Björgvinsson
Katrín Rósa Friðriksdóttir
Krasimir Nenkov Koychev
Krzysztof Michalczuk
Ragnar Hansson
Rakel Kristjánsdóttir
Sara Guðmundsdóttir
30 ára
Admir Sabljic Dedic
Ásdís Árnadóttir
Björn Ívar Björnsson
Daníel Þ. Fjeldsted
Davíð Stefánsson
Dragos-Valentin Coada
Haraldur Haraldsson
Hulda Laxdal Hauksdóttir
Jakub Leonard Lecki
Jekaterina Gjurdzinjana
Meghan Anne Korten
Sohjung Park
Sylvía Rós Dagsdóttir
Teresa Tinna Ríkharðsd.
Thi Thanh Tam Pham
Viktor Örn Björnsson
Yairina Beatriz Z. Rodriguez
Föstudagurinn
langi
85 ára
Arinbjörn Kristjánsson
Hinrik Vagnsson
Ingunn Pálsdóttir
Kristín R. Thorlacius
Vilborg Þórey
Reimarsdóttir
80 ára
Hrefna Bjarnadóttir
Ingibjörg Magnúsdóttir
Oktavía Erla Stefánsdóttir
Trausti Þorláksson
75 ára
Ágúst Húbertsson
Erla J. Marinósdóttir
Guðfinna S. Ragnarsdóttir
Hermann Georg Karlsson
Ingigerður Traustadóttir
Lilja Tómasdóttir
70 ára
Ástráður Örn Gunnarsson
Björn Halldórsson
Hjördís Stefánsdóttir
Vilhelmína Sigurðardóttir
60 ára
Anna Lísa Sigurjónsdóttir
Ásgerður Ágústsdóttir
Baldur Svavarsson
Guðjón Ásbjörn
Ríkharðsson
Guðrún Ágústsdóttir
Iðunn Thors
Karl Jensson
Kristín Margrét Hallsdóttir
Sigurður Baldursson
50 ára
Agnieszka Urszula Spalding
Ari Magnússon
Ásthildur Margrét
Otharsdóttir
Birgir Björnsson
Björgvin Steingrímsson
Bryndís Brynjarsdóttir
Evelyn Consuelo Bryner
Hannibal O. Guðmundsson
Margrét Ingólfsdóttir
Ólafur Hreinn Jóhannesson
Robert Szymanski
Sigurður Þór Jónsson
Sindri Einarsson
Steinn Árni Ásgeirsson
Svava Ólafsdóttir
Tryggvi Þorsteinsson
40 ára
Anna Agnieszka Ratajska
Ásdís Lilja Pétursdóttir
Ástbjörg Ýr Gunnarsdóttir
Cornelia Spandau
Evangelos Dimitropoulos
Gréta Kristín
Hugrúnardóttir
Guðrún Ásta Gunnarsdóttir
Hjalti Þór Sverrisson
Hólmfríður Selma
Haraldsdóttir
Kristjana Sæmundsdóttir
Ragnar Eggert Ágústsson
Spencer Osobhawo
Sveinn Halldór O. Zoéga
30 ára
Alberta Albertsdóttir
Bartlomiej Jan Górecki
Björn Gísli Gíslason
Brynjar Ögmundsson
Hlynur Freyr Gíslason
Júlía Margrét Birgisdóttir
Karen Einarsdóttir
Karen Sif Randversdóttir
Kristján H. Bergsveinsson
Kristófer Fannar Gunnarss.
Lukasz R. Buchowiecki
Maartje T. Nel Oostdijk
Marcin Zarnowski
Ólöf Anna Rudolfsdóttir
Ólöf Ösp Halldórsdóttir
Sigurður Magnús Gestsson
Sonja Margrét Ólafsdóttir
Steinfríður F. Margrétard.
Úlfur Hansson
Þórður Ingason
Ævar Geir Jónasson
Til hamingju með daginn