Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 1
PLASTMENGUN Í HAFINU ER VÁKEPPNI Í FRUMKVÆÐI
Rimowa ferðatöskur í anda götutísku Supreme. 4
Unnið í samvinnu við
Í Junior Achievement keppninni fær
ungt fólk tækifæri til þess að sjá hvað
það útheimtir að vera frumkvöðull. 14
Hildur Petersen rekur nú fyrirtækið Vistvæn framtíð
og vill vekja almenning til umhugsunar um þá vá
sem plastmengun í hafi nu er orðin.
VIÐSKIPTA
4
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Orðnar jafn stórar landbúnaði
Velta bílaleigufyrirtækja hér á landi
nam um 51 milljarði króna á síðasta
ári en það er jafn há upphæð og land-
búnaðurinn íslenski velti á nýliðnu ári
skv. nýjum bráðabirgðatölum frá
Hagstofu Íslands. Hefur gjörbreyt-
ing orðið á stöðu atvinnuveganna síð-
asta áratuginn. Þannig hefur land-
búnaðurinn vaxið úr 31,6 milljörðum
árið 2008 í ríflega 51 milljarð á síðasta
ári (á verðlagi hvors árs fyrir sig) og
nemur raunvöxtur greinarinnar um
12,2%. Á sama tíma hafa umsvif bíla-
leiganna vaxið úr 7,6 milljörðum árið
2008 í um 51 milljarð á síðasta ári (á
verðlagi hvors árs fyrir sig). Að raun-
gildi nemur vöxturinn hins vegar
370% yfir tímabilið.
Í nýrri skýrslu Íslandsbanka um
stöðu ferðaþjónustunnar kemur fram
að floti bílaleigufyrirtækjanna hafi
fimmfaldast frá árinu 2007 og að þeg-
ar mest lét síðastliðið sumar hafi bílar
á þeirra vegum á götunum verið 25
þúsund talsins. Svipað verði uppi á
teningnum nú í sumar.
Elvar Orri Hreinsson, sem kom að
ritun fyrrnefndrar skýrslu, segir
vöxtinn gríðarlegan en að nú sé kom-
ið að ákveðnum tímamótum í grein-
inni.
„Reksturinn hefur gengið vel og
hagnaðarhlutfallið á svipuðum slóð-
um og hjá flestum öðrum greinum
ferðaþjónustunnar en almennar
kostnaðarhækkanir ásamt launa-
hækkunum og styrkingu krónunnar
hafa þrengt að framlegðarhlutföllum
í greininni. Og nú þegar hægir á fjölg-
un ferðamanna held ég að það skapist
ákveðið svigrúm til að fara ofan í
reksturinn með það fyrir augum að
viðhalda eða auka framlegð.“ Hann
bendir á að bílaleigurnar hafi, líkt og
flest önnur ferðaþjónustufyrirtæki,
haft fangið fullt og þurft að bregðast
sífellt við gríðarlegum vexti fram til
þessa. „Sú staða sem nú er komin upp
kann að leiða af sér almenna hagræð-
ingu í rekstri en einnig gætu átt sér
stað sameiningar fyrirtækja.“
Í fyrrnefndri skýrslu Íslandsbanka
er bent á að fjöldi bílaleiga með 50
bíla eða fleiri á sínum snærum hafi
verið 42 í fyrra og hafi vaxið úr 36.
Hins vegar séu 10 stærstu leigurnar
með 75% flotans á sinni hendi. Elvar
bendir á að EBITDA-hlutfall bílaleig-
anna sé afar hátt í samanburði við
flestar aðrar greinar ferðaþjónust-
unnar. Það skýrist m.a. af því að
rekstur bílaleiga er í eðli sínu fjár-
festingafrekur og fyrirtækin afskrifa
bílana fremur hratt í bókum sínum.
„Skuldsetning bílaleiga er hærri en
hjá öðrum greinum innan ferðaþjón-
ustunnar. Það á sér eðlilegar skýr-
ingar, m.a. vegna þess að í fyrirtækj-
unum hefur verið nokkurt dulið eigið
fé því þeim hefur tekist á síðustu ár-
um að selja bílana frá sér á hærra
verði en bókfært virði þeirra gefur til
kynna. Þá gerir há framlegð bílaleiga
þeim einnig kleift að bera hærri
skuldsetningu en aðrar greinar ferða-
þjónustunnar alla jafna.“
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Umsvif bílaleiga hérlendis
eru orðin jafn mikil og land-
búnaðarins í heild. Sér-
fræðingur segir hagræð-
ingu í kortunum í greininni.
51,1
31,6
7,6
51,0***
Velta bílaleiga og landbúnaðarins 2008-2017
50
40
30
20
10
0
milljarðar kr.
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
*Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum. **Ræktun nytjajurta, búfjárrækt og tengd
þjónustustarfsemi. ***Nóv. 2016-okt. 2017. Heimild: Hagstofa Íslands.
Bílaleigur* Landbúnaður**
Á verðlagi hvers árs
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
12.10.‘17
12.10.‘17
11.4.‘18
11.4.‘18
1.730,05
1.761,19
130
125
120
115
110
124,1
121,65 „Í okkar huga er Ísland land í vexti
og því erum við að skoða hvernig við
getum vaxið enn frekar,“ segir Dag
Rasmussen, forstjóri Lagardère
Travel Retail, sem er stærsta fyrir-
tæki heims í rekstri ferðamanna-
verslunar. Lagardère rekur nú veit-
ingasölu á Keflavíkurflugvelli.
„Við vonumst til þess að hlutdeild
okkar á flugvellinum muni aukast og
þá ekki einungis í veitingaþjónustu.
Þó svo að fríhöfnin hér á landi sé vel
rekin myndum við gjarnan vilja vaxa
inn á þann markað ef slíkt tækifæri
myndi gefast einhvern daginn. Við
myndum einnig vilja bæta við okkur
á sviði ferðavarnings ef sá möguleiki
myndi opnast. Þá erum við einnig að
skoða tækifæri utan flugvallarins. Í
ferðamannalandi eins og hér geta
ýmis önnur tækifæri gefist sem við
vonum að við getum gripið þegar
þar að kemur,“ segir Rasmussen í
viðtali í miðopnu í dag.
Lagardère vill meiri umsvif hér
Morgunblaðið/Eggert
Rasmussen (t.h.) ásamt Sigurði
Skagfjörð hjá Lagardère á Íslandi.
Stærsta fyrirtæki heims á
sviði ferðamannaverslunar
skoðar tækifæri hér á landi.
8
Deutsche Bank hefur rekið
forstjórann og skipað nýjan en
ekki eru allir sannfærðir um
að það muni leysa
vanda bankans.
Nýir tímar en
sama stefnan
10
Hlutabréfaverð hjá Callaway
og móðurfélagi Titelist hafa
hækkað um allt að 50% síðasta
árið eftir tiltektir í
rekstrinum.
Lex: Er búið að
laga slæsið?
11