Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 5

Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 5FRÉTTIR VANDAÐ PRENTVERK FYRIR VANDAÐ INNIHALD Í 75 ÁR Í 75ár hefurOddi verið í fararbroddi þegar kemur að prentun og frá- gangi. Reynsla okkar og þekking tryggir að þitt verkefni fær þá meðhöndlun sem það á skilið. Við veitum þér fyrsta flokks ráðgjöf og aðstoðum þig við að finna bestu og hagkvæmustu lausnir varðandi útlit og frágang á prentverki. Hafðu samband og kynntu þérmálið. Ráðgjöf Prentað efni er oft á tíðum andlit fyrirtækisins út á við og því skiptir útlit og vandaður frágangur höfuð- máli, hvort sem um er að ræða útgáfu, kynningarefni eða skrifstofu- gögn.Hjá okkur færðuörugga, skjóta og skilvirka þjónustu, sem er lykilatriði þegar kemur að prentverki, hvort sem verkefnið er flókið eða einfalt ogupplagið stórt eða smátt. Prentun Við erum þínir ráðgjafar í prentun www.oddi.is5155000 Á R N A S Y N IR STOFUSTÁSSIÐ Rafmagnspíanó eru agalega skemmtileg hljóðfæri, og verða bara betri með hverju árinu. Verst hvað þau geta verið ljót, eða a.m.k. sjaldan að þeim prýði á fal- lega innréttuðum heimilum. Grípa sumir til þess ráðs að fela rafmagnspíanóið inni í skáp þegar það er ekki í notkun, eða hreinlega kaupa almennilegt lóðrétt píanó, ellegar flygil ef pláss og staðan á bankareikningnum leyfir. En nú er hljómborðaframleiðandinn Roland kominn með vöru handa smekklega fólkinu. Kiyola-rafmagns- píanóið lítur út eins og það hafi verið hannað af skand- inavískum innanhúsarkitekt og fallega gyllt japönsk eik er notuð í smíðina. Undir húddinu er hljómborðið búið nýjustu tækni, með kröftugum hátölurum og blátannartengingu. Hljóðfæraverslunin Rín flytur inn píanóin frá Rol- and og þar myndi Kiyola kosta rösklega hálfa milljón króna kr, en þarf að panta sérstaklega ai@mbl.is Rafmagnspíanó sem þarf ekki að fela Hljómur og viðnám á að vera til fyrirmyndar. Það mætti halda að Arne Jacobsen eða Hans Wegner hefðu hannað Kiyola. GRÆJAN Enginn veit hvenær löngunin í góðan kokkteil getur skyndilega blossað upp. Er þá hætt við að langt sé í næsta hanastélsbar, með öllum tilheyrandi áhöldum, og lítið hægt að blanda þó svo að ekki vanti hráefnið. Þeir sem vilja vera við öllu bún- ir ættu að skoða þetta bráðsnið- uga áhaldasett fyrir barþjóna, Rabbit Bar Tool Set hefur að geyma síu, sítrónuflysjara, mæli- glas (lokið) og barhníf, og hafa áhöldin verið hönnuð þannig þau leggjast saman eins og spil í stokki og rúmast í litlum hólki. Er því hægt að hafa þau innan seil- ingar hvar og hvenær sem er, s.s. í hanskahólfi bílsins eða ofan í skúffu á skrifborðinu. Settið fæst á Amazon og kostar rösklega 20 dali. ai@mbl.is Settið rúmast allt í litlum stokk. Klár í hana- stél hvar sem er Fleira á ekki að þurfa til að gera hanastél eins og fagmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.