Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 7

Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 7SJÁVARÚTVEGUR Vélasalan rekur viðurkennt þjónustu- verkstæði fyrir Cummins á Íslandi Varahlutir í allar gerðir Cumminsvéla. Snögg og áreiðanleg þjónusta. Verkstæðið er opið 8-17 virka daga Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Margar stærðir og gerðir af land og sjó rafstöðvum án eða í húsi frá Cummins. RAFSTÖÐVAR BÁTAVÉLAR Umhverfisvottaðar vélar í hæsta gæðaflokki Cummins – KRAFTUR – ENDING – ÁREIÐANLEIKI Versluniner opin 8-18virka daga Eigum nmargar stærðir og gerðir af bátavélum frá Cummins. Sparneytinn og áhugaverður valkostur Sími 520 0000 Verðið kemur á óvart, leitið tilboða. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Tæknifyrirtæki í sjávarútvegi uxu um 10-12% í fyrra, sem er í takt við vöxtinn undangengin ár. Þau vaxa hraðast fyrirtækja sem tilheyra sjávarklasanum. Almennt hafa stærri tæknifyrirtæki aukið hraðar við tekjur sínar en hin minni því þau eru betur í stakk búin til að keppa alþjóðlega. Sum minni fyr- irtækjanna hafa vaxið um mörg hundruð prósent á meðan stór hópur stendur í stað. Þetta kemur fram í greiningu Sjávarklasans. „Það er samt sem áður mikill uppgangur hjá sprotafyrirtækjum og þau eiga mikið inni. Við sjáum mikil tækifæri fólgin í samvinnu og samrunum minni fyrirtækja,“ segir Berta Daníelsdóttir, framkvæmda- stjóri Sjávarklasans, í samtali við ViðskiptaMoggann Tæknifyrirtækin eru í fjölþættri starfsemi. Sum hafa vaxið hratt í tækni fyrir fiskeldi, önnur í heild- stæðum lausnum fyrir landvinnslu í hvít- eða uppsjávarfiski eða skip- um. Enn önnur bjóða sérhæfðar lausnir í upplýsingatækni, vöktun, kælingu og fleira. Stærstu fyrirtækin í tæknigeir- anum eru Marel, Hampiðjan og Skaginn3X. Á eftir þeim koma Curio og Valka sem eru hratt vax- andi. Samkvæmt athugun Sjávarklas- ans er velta þessara fimm fyrir- tækja tæplega 40 milljarðar króna sé aðeins horft til starfsemi þeirra er lýtur að sjávartengdum grein- um. Berta bendir á að þessi fyrir- tæki velti nú svipuðum fjárhæðum og öll 60 tæknifyrirtæki sjávarklas- ans veltu í upphafi áratugarins. 65 tæknifyrirtæki Fram kemur í skýrslu Sjávar- klasans að um 65 íslensk tækni- fyrirtæki sem sinni sjávarútvegi og bjóði tækni sem þróuð sé af fyrir- tækjunum sjálfum. Þau 60 fyrir- tæki sem koma á eftir téðum fimm stærstu velta samanlagt um 30 milljörðum. Berta segir að til þess að inn- lendur sjávarútvegur geti aukið verulega við tekjur sínar án þess að auka kvóta þurfi að fjárfesta í betri tækjum. „Tækninni hefur fleygt fram. Íslenskar vinnslur nýta nú þegar betur aflann en þekkist er- lendis. Tæknin er orðin feikilega öflug og vatnsskurðarvélar, svo dæmi sé tekið, eru orðnar hárná- kvæmar, sem mun styðja við það að útflutningsverðmæti sjávar- útvegs á að geta tvöfaldað veltu fyrirtækja er afar gott. Það dregur væntanlega úr löngun margra starfsmanna til þess að stofna eigið fyrirtæki. Það er af hinu góða að hér á landi eru stór og öflug tækni- fyrirtæki. Innan veggja stórra fyrirtækja sér stað mikil nýsköpun og vöruþróun. Þau leggja ákveðið hlutfall af tekjum, sem eru miklar hjá stærri fyrirtækjum, í rann- sóknir og þróun, og eru með sér- hæft starfsfólk sem sinnir þeirri vinnu. Stærri tæknifyrirtæki eru sömu- leiðis með djúpar rætur í sjávar- útvegi og eiga í ríkulegum sam- skiptum við markaðinn. Enda eru þau eru stöðugt að leita eftir því hvernig þjónusta megi viðskiptavini betur. Í ljósi langra viðskipta- sambanda eru þau með betra að- gengi að fiskvinnslum og útgerðum en einyrki sem er að leggja af stað með sitt fyrirtæki. Að þessu sögðu má ekki líta fram hjá því að fyrrverandi starfsmenn burðugra tæknifyrirtækja eiga það til að stofna eigin fyrirtæki, “ segir Berta og bætir við hún vilji þó áfram sjá ný fyrirtæki verða til sem geta hrist upp í geiranum og eflt samkeppni. Breytt samkeppni Að hennar sögn hefur samkeppni tæknifyrirtækja breyst. Ekki sé langt síðan algengt var að íslensku tæknifyrirtækin stunduðu harða samkeppni á erlendum mörkuðum, undirboð voru algeng og álagning lítil. Þá voru erlendar eftirlíkingar algengar. „Með aukinni hátækni í vinnslu hefur reynst erfiðara fyrir fyrirtæki að búa til eftirlíkingar af tækni annarra. Aukin hátækni og hagræðing sem af henni hlaust er einnig helsta ástæða fyrir því að álagning jókst og afkoman batn- aði,“ segir Berta. Fari fram úr þorskflökum Sjávarklasinn hefur spáð því um nokkurt skeið að þess verði ekki langt að bíða að útflutningur tækni- búnaðar, þekkingar og annarra afurða í sjávarútvegi verði meiri en útflutningur á þorskflökum. Fram kemur í skýrslunni að ef fram held- ur sem horfir sé líklegt að enn skemmri tíma taki fyrir tækni- fyrirtækin að búa til meiri verð- mæti úr tækniþekkingu Íslendinga en úr þorskflökum. Tæknifyrirtækin vaxa um 10-12% Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Tæknifyrirtæki í sjávar- útvegi vaxa hraðar en önn- ur sem tilheyra klasanum. Minna er um stofnun tæknifyrirtækja en áður, samkvæmt greiningu Sjávarklasans. „Vatnsskurðarvélar, svo dæmi sé tekið, eru orðnar hárnákvæmar, sem mun styðja við það að útflutningsverðmæti sjávarútvegs á að geta tvöfaldað veltu sína á tíu árum með aukinni tækniþróun,“ segir Berta Daníelsdóttir. sína á tíu árum með aukinni tækniþróun. Það er himinn og haf á milli þess hve nákvæm manns- höndin sé að snyrta fisk og vatns- skurðarvélar.“ Færri tæknifyritæki stofnuð Fram kemur í skýrslunni að mun minna sé um stofnun nýrra tækni- fyrirtækja en áður. „Skýringuna má eflaust rekja til þess að stærri fyrirtækin bjóða fleiri og betri atvinnutækifæri fyrir tæknifólk,“ segir Berta. „Starfsmennirnir hefðu ugglaust sett á laggirnar sín eigin fyrirtæki ef áhugaverð tækifæri væru ekki fyrir hendi í starfandi fyrirtækjum í iðnaðinum. Starfsumhverfi stærri tækni- Berta Daníelsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sjávarklasans, tel- ur að tæknifyrirtækjum sem þjón- usta sjávarútveg muni fækka á komandi árum. Samkvæmt athugun Sjávarklasans eru fyrir- tækin um 65 tæknifyrirtæki. „Það eru tækifæri til aukinnar samþjöppunnar á markaðnum. Einkum og sér í lagi ef stærri tæknifyrirtæki taka frumkvöðla upp á sína arma, fjárfesta í hug- myndum þeirra og ráða þá til vinna áfram að hugmyndinni, meðal annars til að breikka vöru- línu viðkomandi fyrirtækis og samtvinna hana betur að þeirra tækni. Frumkvöðlar og stærri fyritæki hafa hag að því. “ Tæknifyrirtækjum mun fækka á komandi árum Berta Daníelsdóttir Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.