Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 8
hér er framúrskarandi að mínu mati. Þetta er
íslenskt félag með rætur hér, sem sækist eftir
að bjóða upp á íslenskar vörur.“
Lagardère leggur áherslu á að sérkenni
hvers lands haldi sér í verslunum og veit-
ingastöðum fyrirtækisins, að sögn Rasmus-
sens. „Við viljum gera hlutina með sérstökum
hætti á hverjum stað. Við viljum ekki að veit-
ingastaðirnir á Keflavíkurflugvelli séu ná-
kvæmlega þeir sömu og eru í París, London
eða annars staðar. Við bjóðum upp á alþjóðleg
vörumerki en auk þess erum við með sérhönn-
uð vörumerki sem við erum mjög stolt af og eru
algerlega innlend.“
Lagardère hefur mikla reynslu af útboðum
víða um heim og segir Rasmussen að í útboði
fari flugvellir fram á að bjóðandi komi með til-
lögu að skipulagi. „Hann mun spyrja hvaða
vörumerki þú hyggist koma með og hvers kon-
ar mat þú ætlar að bjóða upp á, ef um er að
ræða veitingaþjónustu. Svo þú þarft að sann-
færa kaupandann um gæði þíns tilboðs. Náist
samningar þarf að greiða leigu sem yfirleitt er
ákveðin prósentutala af sölu auk lágmarks-
tryggingar, sem gæti verið tiltekin fjárhæð eða
í hlutfalli af farþegafjölda. Því ræðst þetta
bæði af því hver býður hæstu leiguna og bestu
veitingastaðina.“
Njóta góðs af tengiflugi
Mikill vöxtur hefur verið í alþjóðlegu far-
þegaflugi á undanförnum árum með sífellt
lægri flugfargjöldum. Fyrirtæki sem byggir
afkomu sína á aðgengi að flugfarþegum hlýtur
að njóta góðs af miklum vexti lággjaldaflug-
félaganna, eða hvað? Dag Rasmussen segir
svarið við því vera bæði já og nei. „Já, vegna
þessa að lággjaldaflugfélögin leiða til meiri
gegnumstreymis farþega. En nei, vegna þess
að farþegar þeirra eyða minna en aðrir.“ Hann
segir þó að hér á landi njóti félagið vissulega
Dag Inge Rasmussen er forstjóri Lagardère
Travel Retail, ferðamannaverslunararms
Lagardère-samstæðunnar frönsku sem stend-
ur meðal annars að bak við fjölmiðlarekstur,
bóka- og tímaritaútgáfu, viðburðastjórnun og
rekstur íþróttamannvirkja. Ferðamannaversl-
un fyrirtækisins er sú stærsta í heimi á sínu
sviði og nam veltan í fyrra yfir 4,5 milljörðum
evra, jafngildi um 550 milljarða króna, á flug-
völlum og lestarstöðvum víða um heim. Fyr-
irtækið er með starfsemi á 240 flugvöllum í 34
löndum, auk 750 lestastöðva, og eru starfs-
menn yfir 18.000 talsins.
Með ferðamannaverslun (e. travel retail) er
átt við sölu á hvers kyns varningi og þjónustu
fyrir ferðalanga. Lagardère Travel Retail er
skipt upp í þrjár einingar þar sem sem tæplega
helmingur heildartekna fyrirtækisins kemur
frá ferðavarningi (e. travel essentials), minja-
gripum og tæknivörum sem seldar eru á flug-
og lestarstöðvum undir verslunarheitinu
Relay. Um 40% sölutekna koma frá fríhöfnum
og fataverslunum á flugvöllum og um 13%
teknanna eru vegna veitingasölu. Það er ein-
mitt á því sviði sem Lagardère hefur markað
sér sess hér á landi en félagið varð ásamt fleiri
aðilum hlutskarpast í útboði vegna veitingasölu
í Leifsstöð árið 2014 og hóf þar rekstur árið eft-
ir. Nú er svo komið að Lagardère er fjórði
stærsti veitingasalinn á Íslandi.
Innlend þekking og alþjóðleg kunnátta
Lagardère á Íslandi er að meirihluta í eigu
franska móðurfélagsins á móti íslenskum hlut-
höfum og er undir stjórn Íslendinga. „Við nýt-
um okkur dreifða stjórnun og vinnum með
staðbundnum stjórnendum,“ segir Rasmussen.
„Yfirleitt er innlendum aðilum að miklu leyti
falinn rekstur og ábyrgð innan hvers lands.
Hér á landi eigum við 60% hlut í íslenska félag-
inu á móti 40% hlut innlendra aðila. Við teljum
þetta æskilega blöndu innlendrar þekkingar og
alþjóðlegrar sérþekkingar okkar.“
Rasmussen segir að slík eignaskipting sé þó
ekki algild hjá Lagardère. „Víðast hvar eigum
við félögin að fullu, en í nýjum löndum viljum
við helst fara í samstarf með fólki sem þekkir
umhverfið. Við þekktum ekki til Íslands nema
sem ferðamenn, og ekki á faglegan hátt. Við
töldum því vænlegast að starfa með íslenskum
aðilum til þess að ná samningum, og þá ekki
síður til að starfrækja reksturinn í samræmi
við gerðan samning. Þetta höfum við gert í
nokkrum öðrum löndum með góðum árangri.“
Hann metur það því svo að þetta hafi átt sinn
þátt í að Lagardère varð fyrir valinu í útboði
Isavia um rekstur veitingaþjónustu í Leifsstöð
árið 2014, sem hann tekur fram að hafi verið
mjög faglega framkvæmt. „Þetta var mjög
gegnsætt ferli. Á þeim tíma sýndu ekki mörg
alþjóðleg fyrirtæki Íslandi áhuga. Við höfðum
hins vegar áhuga eftir að hafa kynnt okkur
málin. Auk þess er ég sjálfur Norðmaður og
hjarta mitt sækir norður, og þar af leiðandi
lagði ég persónulega kannski enn meiri áherslu
á þetta. Við hófum reksturinn árið 2015 og höf-
um séð hraðan vöxt síðan þá. Fyrirtækið okkar
góðs af nýjum flugfélögum. „Vöxturinn hér
hefur verið góður í ljósi hentugrar staðsetn-
ingar Keflavíkurflugvallar, þar sem tekist hef-
ur að skapa tengistöð á Íslandi. Það er því ekki
einungis aðdráttarafl Íslands sem laðar að,
heldur hefur tekist að draga hingað fjölda
nýrra flugfélaga sem hafa gert Keflavík-
urflugvöll að tengistöð. Þannig að vöxturinn er
bæði í ferðaþjónustunni hér á landi, en einnig í
lággjaldaflugfélögum og hefðbundnum flug-
félögum sem nota Keflavíkurflugvöll sem teng-
ingu. Við höfum vissulega notið töluverðs vaxt-
ar af þeim sökum.“
En hröðum vexti fylgja jafnframt vaxt-
arverkir, eins og Rasmussen bendir á. „Þar
sem flugvöllurinn er ennþá fremur lítill þurfum
við að vera mjög skilvirk til þess að ná að þjón-
usta viðskiptavini hratt. Að öðrum kosti mun
salan hjá okkur ekki aukast. Flugvöllurinn
stendur frammi fyrir afar viðamiklu verkefni í
að stækka og auka plássið. Það er nauðsynlegt.
Keflavík er margverðlaunaður flugvöllur sem
er þekktur fyrir gæði víða um heim. En hann
glímir við það vandamál að ná að stækka nógu
hratt, því umferðin fer sífellt vaxandi og nær
væntanlega 10 milljónum farþega á þessu ári.
Það þarf að auka rými fyrir farþega og versl-
anir.“
Í hröðum vexti á ört vax
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Lagardère hóf starfsemi með
bókasölu á lestarstöð í Frakklandi
um miðja 19. öld en er nú al-
þjóðleg fyrirtækjasamsteypa sem
meðal annars rekur verslanir og
þjónustu í 240 flugstöðvum víða
um heim, þar með talið í Leifsstöð.
Forstjóri Lagardère Travel Retail
segir mikil sóknarfæri í alþjóðlegri
ferðamannaverslun og hann sér
jafnframt tækifæri fyrir ferkari vöxt
hér á landi, en félagið er þegar einn
stærsti veitingasali landsins.
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018VIÐTAL
Það er ekki algengt að forstjórar fyrirtækja í
Frakklandi beri erlend nöfn, hvað þá nor-
rænt nafn á borð við Dag Inge Rasmussen.
„Það er vissulega óvenjulegt. Við lítum
reyndar ekki á okkur sem franskt fyrirtæki
með alþjóðlega starfsemi, heldur sem al-
þjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar í
Frakklandi. Svo við erum fyrst og fremst al-
þjóðleg.
Hvað mig sjálfan snertir þá er ég norskur
en fæddist í Svíþjóð. Foreldrar mínir fluttu til
Frakklands þegar ég var mjög lítill svo ég
tala í raun betri frönsku en norsku, þótt ég
tali vissulega móðurmálið við fjölskylduna.
Ég lít ekki á mig sem Frakka þar sem ég er
með norskt vegabréf, en ég er Parísarbúi
svo mér finnst ég hvorki vera útlendingur né
innfæddur. Þetta er svolítið sérstök staða,
sem ég er reyndar mjög sáttur við.“
Leið Rasmussen lá í gegnum franskt
skólakerfi, auk doktorsnáms við Wharton-
viðskiptaháskólann í Pennsilvaníu í Banda-
ríkjunum. Hann hóf starfsferil sinn í fyrirtæki
sem annaðist fjarskipti fyrir flugfélög en
lengst af ferilsins hefur hann verið hjá
Lagardère. „Ég hef nú stýrt Lagardère
Travel Retail í sjö ár og á þeim tíma hefur
sala þessa hluta fyrirtækisins meira en tvö-
faldast. Þegar ég tók við kom tveir þriðju
hlutar hagnaðar frá blaða- og tímaritadreif-
ingu en nú erum við alveg hætt í því og erum
einungis í ferðamannaverslun. Það hefur því
verið heillandi að fylgjast með og taka þátt í
umbreytingu fyrirtækisins.“
Hann segir Lagardère trútt því að vera al-
þjóðlegt fyrirtæki og Arnaud Lagardère, for-
stjóri samstæðunnar, leggi enga sérstaka
áherslu á að skipa Frakka í stjórnendastöð-
ur. „Mér finnst gaman að ferðast og fylgjast
með starfseminni á hverjum stað, skiptast á
hugmyndum og fara yfir málin. Ég hef
ánægju af því að fá hugmyndir frá einum
markaði og miðla þeim áfram til annarra
landa.“
Norðmaður og Parísarbúi yfir alþjóðlegu fyrirtæki
„Hjá flugvöllum, þar sem stærsti hluti sölu okkar fer
fram, er mikill vöxtur í fjölda farþega. Þeir eru um 4
milljarðar nú og er talið að fjöldi þeirra muni tvöfald-
ast fram til ársins 2030,“ segir Dag Rasmussen.