Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018FRÉTTIR ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Paul Achleitner, stjórnarformaður Deutsche Bank, lofar hvorki meira né minna en „nýjum tímum“ hjá bankanum undir stjórn Christian Sewing, nýskipaðs bankastjóra. Achleitner neitar því þó að bankinn þurfi að marka sér nýja stefnu. „Við ættum ekki að tala svo mikið um stefnumörkun, heldur frekar framkvæmd,“ sagði Achleitner í við- tali við þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung á mánudag. En margir markaðsgreinendur, fjár- festar og keppinautar bankans eru efins um að þeir „nýju stjórnunar- hættir“ sem Achleitner hefur lofað muni duga til að snúa við rekstr- inum hjá stærsta banka Þýskalands. „Brottrekstur John Cryan leysir ekki grundvallarvandann í rekstr- arstefnu Deutsche,“ sagði einn af stærstu hluthöfum Deutche í viðtali við Financial Times. Að mati Hans- Christoph Hirt hjá Hermes EOS, sem veitir ráðgjöf og er fulltrúi hlut- hafa sem eiga 0,5% atkvæðisréttar í bankanum, þá „blasir ekki beinlínis við hvernig nýr bankastjóri getur komið Deutsche Bank aftur á þá braut að skapa aukið virði“. Viðurkennir gloppur í stefnu Í orðsendingu sem hann sendi starfsmönnum bankans á mánudag, aðeins nokkrum tímum eftir að hafa verið valinn bankastjóri á fjögurra stunda löngum fundi rekstrarráðs bankans á sunnudag, viðurkenndi Sewing óbeint að gloppur væru í stefnumörkun bankans, þegar hann ritaði: „Eðlilega munuð þið hafa spurningar um hver stefna okkar verður í framhaldinu.“ Á meðan hann lagði áherslu á að „stórar áskoranir eru framundan“, og gaf í skyn að ráðist yrði í frekari niðurskurð í fjárfestingarbanka- starfsemi Deutsche, þá var skeytið efnisrýrt að öðru leyti. Ein af stærstu spurningunum sem er ósvarð er framtíð fjárfest- ingarbankastarfsemi Deutsche í Norður-Ameríku. Starfsemi bank- ans í Vesturheimi myndar um þriðj- ung af fjárfestingarbankatekjum Deutsche en bankinn hefur verið að dragast aftur úr bandarískum keppinautum sínum. „Fjárfestingarbankinn stendur illa að vígi bæði hvað varðar mark- aðssvæði, viðskiptavinahóp og vöru- framboð,“ skrifuðu markaðs- greinendur Citi í minnisblaði til viðskiptavina sinna og bentu á hversu lítinn markaðsskerf bankinn hefur í Bandaríkjunum, hversu háð- ur hann er stofnanafjárfestum frek- ar en fyrirtækjum, og einnig háður skuldabréfa-, gjaldmiðla- og hrá- vöruviðskiptum. Neyðarfundur um helgina Einstaklingur sem þekkir til mál- anna hefur greint FT frá að á neyð- arfundinum á sunnudag hafi rekstr- arráð bankans fjallað um hvaða nýju stefnu hann gæti mögulega tekið í framtíðinni, án þess að tekin væri nokkur ákvörðun þar að lútandi. Einn möguleikinn er að minnka verulega markaðsviðskipti bankans í Bandaríkjunum og bjóða aðeins upp á þá fyrirtækjaþjónustu og -ráðgjöf sem þýskir viðskiptavinir Deutsche þurfi í raun á að halda. Hinn valkosturinn væri straumlínu- laga starfsemina í Bandaríkjunum með áframhaldandi markaðs- viðskiptaþjónustu sem við- skiptavinir á borð við vogunarsjóði og eignastýrendur nýta sér. „Vandi bankans felst í því að sum þessara viðskipta eru mjög arðbær,“ sagði sami heimildarmaður. Það eykur á vandamál Deutsche að ef skorið verður niður í fjárfest- ingarbankahliðinni þá mun það væntanlega daga úr hagnaði bank- ans í fyrstu. „Gallinn við mjög rót- tækt „plan B“ er að það er nær öruggt að tekjurnar myndu dragast saman á undan útgjöldunum,“ segir hátt settur stjórnandi hjá Deutsche. „Það þarf að fara varlega til að ekki hljótist tjón af, og engir einfaldir valkostir í stöðunni.“ Uppsöfnuð þörf á nýrri stefni Þó svo að Deutsche vænti þess að útgjöld vegna fjárfestingarbanka- starfseminnar haldist óbreytt fyrir árið 2018 þá hefur þörfin á að breyta um stefnu orðið æ greinilegri á undanförnum mánuðum. Mikil togstreita á milli fyrir- tækjaráðgjafasviðs fjárfesting- arbankans, sem stýrt er af Marcus Schenck í Frankfurt, og markaðs- viðskiptasviðsins sem Garth Ritchie stýrir í London, hefur gert stefnu- mótunarvanda bankans enn erfiðari. „Garth og Marcus hafa bitist um hvaða stefnu fjárfestingarbankinn ætti að taka,“ segir stjórnarmaður í Deutsche, og bætir við að með brotthvarfi Schenck og með því að gera Ritchie einan að yfirmanni fjárfestingarbankasviðsins, þá „virð- ist sem Garth hafi unnið slaginn, að svo stöddu.“ Sú staðreynd að Cryan gerði lítið ef nokkuð til að stöðva þessi innan- hússátök var ein helsta ástæðan fyrir því að hann var látinn fara, að sögn margra innanbúðarmanna hjá bankanum. „Hann lét eins og málið kæmi honum ekki við og tók ekki í taumana,“ segir einn þeirra. Stirt samband við formanninn Sú gjá sem myndaðist milli bankastjórans og stjórnarformanns Deutsche á rætur sínar að rekja til ummæla Cryan fyrir ári þegar hann sagðist geta hugsað sér að vera áfram í starfinu eftir árið 2020 þeg- ar fimm ára samningi hans lýkur. „Það var alltaf ljóst að hann var ein- göngu ráðinn til að stokka upp í rekstri bankans,“ segir heimild- armaður sem þekkir vel til skoðana Achleitners. Sú staðreynd að Cryan hefði, upp á eigin spýtur, hafið vangaveltur um hver tæki við kefl- inu áður en tekist hafði að leysa úr vanda bankans kom stjórnarfor- manninum spánskt fyrir sjónir. Samband þeirra versnaði enn frekar í desember þegar Cryan kom stjórnarformanninum í opna skjöldu með því að ákveða, á síðustu stundu, að stækka bónuspott bankans um einn milljarð evra. Þegar upplýst var að ekki tækist að ná niðurskurð- armarkmiðum ársins 2018 um sem nam sömu fjárhæð, og að frammi- staða fjárfestingarbankasviðsins væri verri en búist var við, varð það til þess að Achleither fór að missa trúna á að Cryan gæti staðið sig eins og til var ætlast. Það að hlutabréfaverð bankans hafi lækkað um 60% þau þrjú ár sem hann var við stjórnvölinn, og sá ósiður hans að tjá sig opinberlega með meinlegum hætti um ofmann- aðar deildir bankans, veikti stöðu Cryan enn frekar. Kom ýmsum umbótum í verk En sumir hafa bent á að banka- stjórinn, sem nú hefur verið vísað á dyr, eigi hrós skilið. „Honum tókst raunar að leysa sum erfiðustu verk- efnin af hendi,“ segir Kian Abouho- ussein hjá JPMorgan, og bætir því við að fráfarandi bankastjóri hafi skorið niður útgjöld, innleitt nýja upplýsingatækni, og skilað „umbót- um sem við sjáum líklega ekki mjög greinilega núna, en ættum að geta séð á næstu árum.“ Cryan afrekaði það líka að greiða úr gömlum lagalegum vandræðum bankans, afla meira en 8 milljarða evra af nýju hlutafé, og koma minni- hlutaeign Deutsche í eignastýringa- fyrirtækinu DWS á hlutabréfa- markað í erfiðu árferði. Núna hvílir það á herðum Sewing að koma rekstrinum í betra horf, en þeir sem til þekkja segja að það eitt að fylgja eftir stefnu forvera hans í starfi verði ekki vel séð. „Stóra spurningin er hvort að Sewing hafi umboð rekstrarráðs bankans til að ráðast í róttækan nið- urskurð eða sölu fjárfestinga- bankasviðsins,“ segir hátt settur starfsmaður hjá keppinaut Deutsche í Frankfurt. „Að gera bara meira af því sama, en gera það betur, á ekki eftir að renna vel niður.“ Deutsche lofar „nýjum tímum“ en sömu stefnu Eftir Olaf Storbeck í Frankfurt Ekki ber öllum saman um hvort sú ákvörðun að skipta um bankastjóra hjá Deutsche Bank muni duga til þess að koma freigát- unni á siglingu á ný. AFP Christian Sewing, nýskipaðs bankastjóra Deusche Bank, bíður það erfiða verkefni að koma rekstri bankans í við- unandi horf. Ljóst er að það eitt að fylgja eftir stefnu John Cryan, forvera hans í starfi, mun ekki verða vel séð. Er ferðavagninn rafmagnslaus? TUDOR TUDOR Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu örugg t start með TUDO R Frístunda rafgeymar í miklu úrvali, AGM þurr rafgeymar eða lokaðir sýrurafgeymar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.