Morgunblaðið - 25.04.2018, Page 16
Við styðjum okkar
keppendur
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Af hverju það lag? Hef alltaf elskað það og
vildi taka íslenskt.
Muntu syngja til einhvers í salnum? Nei,
held ekki.
Uppáhaldslag til að syngja í sturtu? I Fall
Apart.
Palli (Páll Óskar) eða Bubbi (Bubbi Mort-
hens)? Bubbi.
Fullkomið stefnumót? Guð, veit ekki.
Tinder vs. Hot or not? Tinder.
Draumastarf? Leikstjóri.
Lýstu þér í þremur orðum. Fyndinn, góður,
opinn.
Uppáhaldslag með Beyoncé? Single Ladies.
Hvert er þitt átrúnaðargoð? Dwayne John-
son.
Uppáhaldssnappari? Bjartur Jóhannes
Trenton (bjarturlitli).
Besti leikurinn á leikjanet.is? Bubble
Trouble.
Ertu góður í að syngja? Já, ég held það.
Hvert er planið eftir menntó? Háskóli.
iOS vs. android? iOS.
Hefur löggan stoppað þig? Nei.
Síðasta lygi sem þú sagðir? Að ég hefði skil-
að verkefni.
Skrítnasti matur sem þú hefur borðað?
Grillaður skötuselur.
Hver er þinn helsti ótti? Að það verði ekkert
úr mér.
Ef þú gætir eytt einum degi með ein-
hverjum frægum, hver væri það og hvað
mynduð þið gera? Ed Sheeran og örugglega
bara vera inni í stúdíói.
Furðuleg staðreynd um þig? Hef farið úr lið
6 sinnum.
Með hvaða fræga einstaklingi myndirðu
vilja festast í lyftu? Tom Hanks.
Ef þú værir fastur í sjónvarpsþætti í viku,
hvaða þáttur myndirðu vilja að það væri?
Blue Mountain State.
Ertu í sokkum? Já.
Vandræðalegasta móment lífs þíns? Þegar
ég labbaði inn á fólk.
Sykurskert kókómjólk eða bara kókó-
mjólk? Bara kókómjólk.
Coke vs. Pepsi? Pepsi.
Hlölli eða Subway? Subway.
Hundar eða kisur? Hundar.
Ertu A- eða B-manneskja? B-manneskja.
Pönnsur eða vöfflur? Vöfflur.
Ertu femínisti? Já, mundi segja það.
Á hvernig tónlist hlustar þú? Ég get fundið
eitthvað sem mér líkar við í öllum gerðum af
tónlist.
Hvers gætir þú ekki lifað án? Fjölskyldu og
vina.
Hvað borðarðu á morgnana? Cheerios.
Uppáhaldsorð? Vöðvinginn.
Bláir eða svartir pennar? Bláir.
Snap eða insta? Insta.
Ertu með opið instagram eða snapchat?
Opið Insta: aegirlindal en snappið er lokað.
Friends eða How I met your mother? Wow
heyrðu, hahah, verð að segja Friends en mjög
erfitt val.
Ægir Líndal Unnsteinsson er 18 ára nemandi við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ.
Hann ætlar að syngja lagið Thank You með hljómsveitinni Diktu.
Vildi taka eitthvað íslenskt
Af hverju það lag? Þetta er grípandi og
skemmtilegt lag en það er á sama tima með
mikilvægan boðskap, #Égernóg.
Munuð þið syngja til einhvers í salnum?
Við ætlum að syngja til allra í salnum. Textinn
er mjög áhrifamikill og finnst okkur að allir
ættu að taka þennan boðskap til sín.
Uppáhaldslag til að syngja í sturtu? Ég er
nóg, það er svo grípandi lag!
Palli (Páll Óskar) eða Bubbi (Bubbi Mort-
hens)? Páll Óskar.
Fullkomið stefnumót? Góður matur og góð-
ur félagsskapur klikkar ekki.
Tinder vs. Hot or not? Tinder.
Draumastarf? Starf þar sem við fáum að
blómstra og sýna hæfileika okkar en á sama
tíma hafa gaman.
Lýsið ykkur í þremur orðum. Við erum
metnaðarfullar, hæfileikaríkar og góðhjart-
aðar.
Uppáhaldslag með Beyoncé? If I were a
boy er klassík.
Hvert er ykkar átrúnaðargoð? Helga Ásta
Ólafsdóttir hefur hjálpað okkur ótrúlega mikið
og lítum við mikið upp til hennar. Hún er
metnaðarfull og skipulögð og leggur allt í það
sem hún gerir! Hún er kóreógrafer og rekur
dansskólann Danskompaní. Helga sannar það
algerlega að allt er hægt ef maður hefur trú á
sjálfum sér. #égernóg
Uppáhaldssnappari? Arnór Snær – kóngur
FS.
Besti leikurinn á leikjanet.is? Hmmmmm
Dollhouse kemur fyrst í hugann.
Eruð þið góðar í að syngja? Já, við erum ill-
aðar … eða það segir Lovísa kennari allavega.
Hvert er planið eftir menntó? Við stefnum
allar hver í sína áttina en allar mjög langt og
verður spennandi að sjá hvað tekur við og
hvert tíminn leiðir okkur.
iOS vs. android? iOS.
Hefur löggan stoppað ykkur? Nei.
Skrítnasti matur sem þið hafið borðað?
Þorskauga … mælum ekki með því.
Hver er ykkar helsti ótti? Við erum ótta-
lausar.
Ef þið gætuð eytt einum degi með ein-
hverjum frægum, hver væri það og hvað
mynduð þið gera? Við myndum eyða deg-
inum með Beyoncé og sjá hvað hún gerir dags-
daglega.
Furðuleg staðreynd um ykkur? Við vorum
allar saman í leikverki fyrr á árinu.
Með hvaða fræga einstaklingi mynduð
þið vilja festast í lyftu? Zac Effron.
Ef þið væruð fastar í sjónvarpsþætti í
viku, hvaða þáttur mynduð þið vilja að
það væri? Friends.
Eruð þið í sokkum? Já, sínum af hvoru tagi.
Vandræðalegasta móment lífsins? Við
tökum lífinu ekki of alvarlega … #égernóg
Sykurskert kókómjólk eða bara kókó-
mjólk? BARA kókómjólk.
Coke vs. Pepsi? Coke.
Hlölli eða Subway? Subway.
Hundar eða kisur? Hundar.
Eruð þið A- eða B-manneskjur? Mitt á
milli … það fer eftir dögum.
Pönnsur eða vöfflur? Vöfflur.
Eruð þið femínistar? Já, en án þess að fara
út í öfgar.
Á hvernig tónlist hlustið þið? Allskonar.
Hvers gætuð þið ekki lifað án? Tónlistar.
Hvað borðið þið á morgnana? Fer eftir
dögum.
Uppáhaldsorð? Já.
Bláir eða svartir pennar? Svartir allan dag-
inn.
Snap eða insta? Instagram.
Eruð þið með opið instagram eða snapc-
hat? Opið instagram.
Friends eða How I met your mother? Fri-
ends.
Perla Sóley, Júlía Mjöll, Tara Sól, Elma Rún og Margrét Ír eru 16 og 17 ára og keppa fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Þær ætla að syngja lagið Tell me you love me eftir Demi Lovato við íslenskan texta sem
Íris Dröfn Halldórsdóttir samdi. Lagið heitir Ég er nóg.
Stefna hver í sína áttina