Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Hulda Steinunn Valtýs- dóttir, fyrrverandi blaðamaður, þýðandi og borgarfulltrúi, lést sl. sunnudag á 93. aldurs- ári. Hulda fæddist 29. september 1925, dóttir hjónanna Valtýs Stef- ánssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, og Kristínar Jónsdóttur listmálara. Hulda lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1945. Hún hóf snemma að starfa hjá Morgunblaðinu og sagði m.a. í viðtali við blaðið að hún hefði byrjað að send- ast í afgreiðslunni í Austurstræti 10 eða 12 ára gömul. Hún vann sem ritari föður síns í ritstjórastóli og síðar sem blaðamaður. Hulda skrifaði fyrir Les- bók Morgunblaðsins auk þess að rita fasta pistla í blaðið, þar sem umhverf- is- og menningarmál voru henni hug- leikin. Frá 1989 til 2005 sat Hulda í stjórn Ár- vakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, og var varaformaður stjórnar frá 1989 til 1995. Hulda vann við þýð- ingar og þýddi barna- sögur og leikrit, m.a. sögurnar um Bangs- ímon eftir A.A. Milne og leikritin Dýrin í Hálsa- skógi, Kardemommu- bæinn og Karíus og Baktus eftir Thorbjørn Egner, auk fleiri sígildra verka sem Helga systir hennar leikkona las svo ógleymanlega í útvarpi. Barnatími þeirra Helgu og Huldu varð mjög vinsæll og var á dag- skrá Ríkisútvarpsins um árabil og leik- verk Thorbjørns Egners hafa lifað með þjóðinni frá því Þjóðleikhúsið setti þau fyrst á svið. Hulda sat í borgarstjórn Reykjavík- ur fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1982 til 1986 og var varaborgarfulltrúi frá 1986 til 1990. Hún var formaður um- hverfismálaráðs og fyrsti formaður menningarmálanefndar Reykjavíkur. Hulda hafði alla tíð mikinn áhuga á skógrækt og var formaður Skóg- ræktarfélags Íslands frá 1981 til 1999. Þá var hún formaður framkvæmda- nefndar um landgræðsluskógaátakið Ár trésins, sat í stjórn Landgræðslu- sjóðs og í stjórn Rannsóknastöðvar- innar á Mógilsá. Hulda var heiðurs- félagi Skógræktarfélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Hún hlaut stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að skógræktar- málum. Eiginmaður Huldu var Gunnar Hansson arkitekt. Hann lést árið 1989. Þau eignuðust þrjár dætur, Kristínu, Helgu og Hildigunni. Morgunblaðið þakkar Huldu við leiðarlok heilladrjúgt samstarf, stuðn- ing og vináttu og sendir fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Andlát Hulda Valtýsdóttir Breiðafjarðarferjan Baldur gnæfir vel yfir Reykjavíkurhöfn þessa dagana, en í slippnum er nú unnið að viðhaldi á skipinu. Þegar ljósmynd- ari sótti svæðið heim var verið að mála skrokk- inn, en skammt frá voru erlendir ferðamenn allt um kring enda slippurinn heillandi. Morgunblaðið/Hari Baldur kominn á þurrt í Reykjavík Jón Birgir Eiríksson Jbe@mbl.is Langt er í land í kjaradeilu ljós- mæðra og íslenska ríkisins. Ljós- mæður standa við kröfur sínar og komu ekki til móts við ríkið að neinu leyti á samningafundi hjá ríkissátta- semjara síðdegis í gær. Samningaviðræður hafa staðið yf- ir frá 5. febrúar sl. og lítið gengið í viðræðunum. Á þessu tímabili hefur nokkur fjöldi ljósmæðra sagt upp störfum, yfir 20 á Landspítalanum, þar sem yfir 150 ljósmæður starfa, og helmingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fjórar af átta. Sumar þeirra leita nú nýrra starfa. „Við komum ekki til móts við ríkið og það kom ekkert frá ríkinu heldur, við erum enn að bíða eftir því. Þetta snýst um að fá leiðréttingu á launa- setningunni – þar stendur hnífurinn í kúnni,“ segir Katrín Sif Sigurgeirs- dóttir, formaður samninganefndar ljósmæðra. Hún nefnir að eina til- lagan sem fram hafi komið frá samn- inganefnd ríkisins sé launahækkun upp á 4,51%. „Við höfum mætt full- komnum ósveigjanleika,“ segir hún, en nefnir þó að frá því á síðasta fundi hafi samninganefnd ríkisins hlustað betur og veitt útskýringar á svig- rúmi ríkisins til hækkana. Hætta störfum á háannatíma Stærstur hluti þeirra sem sagt hafa upp mun hverfa frá störfum 1. júlí nk., en þær fyrstu hafa þegar hætt störfum. Að sögn Guðrúnar Gunnlaugsdóttur, ljósmóður á Land- spítalanum, er álagstoppur um þetta leyti vegna sumarleyfa og fjölgunar fæðinga yfir sumartímann, en hún telur það alls ekki öruggt að ljós- mæðurnar snúi aftur til starfa, náist góður samningur. „Það er synd að við séum að missa þessa reynslu og þekkingu úr húsi. Því lengra sem líður því ákveðnari erum við í því að koma ekki til baka,“ segir hún. „Ég þekki dæmi um að einhverjar hafi ráðið sig í störf við eitthvað allt annað. Ein er búin að skrá sig í háskólann í haust og ein ætlar að vera í afleysingum. Ríkið getur ekki búist við því að allur þessi hópur komi aftur til starfa.“ Samninganefndin tók saman fyrri röksemdir sínar fyrir launahækkun fyrir forsvarsmenn ríkisins í gær. „Það kom fram gagnrýni um þetta um helgina og við tókum þetta sam- an núna og afhentum. Staðan er óbreytt, en það er samtal að eiga sér stað núna, sem er kannski frábrugð- ið því sem áður var. Á síðasta fundi hófst það og er vonandi fyrsta skref- ið í átt að lausn,“ segir Katrín Sif. Ljósmæður leita í önnur störf  Engin niðurstaða á samningafundi með ljósmæðrum í gær  Ljósmæður standa fast við kröfur sínar  Yfir tuttugu hafa sagt upp störfum á LSH  Reynsla og þekking tapist með uppsögnum ljósmæðra Morgunblaðið/Árni Sæberg Samningafundur Ljósmæður og fulltrúar ríkisins ræddu saman í um klukkustund síðdegis í gær. Engin niðurstaða náðist á fundinum. Karitas hefur sagt upp samningi við Sjúkratryggingar Íslands og mun að óbreyttu hætta starfsemi 1. september nk., skv. tilkynningu, en Karitas hefur sent bréf til heil- brigðisráðherra, Svandísar Svav- arsdóttur, og óskað eftir fundi. Karitas sinnir fólki með lang- vinna eða lífsógnandi sjúkdóma á höfuðborgarsvæðinu og býður upp á sólarhringsþjónustu í heimahús- um sem gerir mikið veiku fólki kleift að vera heima. Karitas hefur starfað skv. samningi við Sjúkra- tryggingar Íslands frá árinu 1994, sem hefur lítið breyst frá upphafi, þrátt fyrir ítrekaðar óskir um end- urskoðun hans. „Við fáum einungis greitt fyrir vitjanir samkvæmt samningnum, en ekki fyrir bakvaktir eða aðra þjónustu sem við veitum,“ segir Valgerður Hjartardóttir, hjúkrun- ar- og fjölskyldufræðingur hjá Kar- itas, í samtali við Morgunblaðið. Karitas sinnir árlega 200 til 300 einstaklingum ásamt aðstandend- um og er í nánu samstarfi við Landspítalann og sérfræðinga í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Bakvaktarhluti þjónustunnar hafi þyngst mikið því vaxandi þörf sé fyrir samskipti og stuðning í gegn- um síma og tölvur með breyttu samfélagi. Samningurinn sé barn síns tíma, áherslur í þjónustunni séu breyttar og ekki hafi verið brugðist við því með endurskoðun hans. Karitas geti því ekki lengur boðið hjúkrunarfræðingum sínum samkeppnishæf starfsskilyrði og kjör. ernayr@mbl.is Karitas segir upp samningi við ríkið  Leggur að óbreyttu niður starfsemi Félag atvinnurekenda (FA) hefur sent landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni, bréf þar sem mótvægisaðgerðum stjórnvalda gegn tollasamningi við ESB er mótmælt og ráðherra krafinn svara. Stefnt er að því að við útreikn- ing á magni tollkvóta við innflutning verði miðað við ígildi kjöts með beini, sbr. tilkynningu á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. „Íslensk stjórnvöld sömdu við ESB um tollalækkanir og kynntu það sem mikinn ávinning til neytenda en vinna nú markvisst að því að eyða honum,“ segir Ólafur Stephensen, fram- kvæmdastjóri FA. Hann telur að þriðjungur ávinnings neytenda glatist við mótvægisaðgerðirnar og bendir á að landbúnaðurinn hafi nú þegar fengið bætur vegna tollalækkana á innfluttu kjöti í gegnum búvörusamn- inginn. Mótvægisaðgerðirnar eru að til- lögu starfshóps fyrrverandi landbún- aðarráðherra, Sigurðar Inga Jó- hannssonar, skipaðra fulltrúa Bændasamtaka Íslands og búgreina- félaga, Samtaka iðnaðarins og utan- ríkisráðuneytis auk fulltrúa sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra. ernayr@mbl.is Stjórnvöld eyða ávinn- ingi neytenda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.