Morgunblaðið - 08.05.2018, Side 8

Morgunblaðið - 08.05.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Nánari upplýsingar áwww.geosilica.is Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is Unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil og mangan í hreinu íslensku vatni. Repair er sérstaklega hannað og þróað fyrir uppbyggingu beina og styrkingu bandvefjar þ.m.t. liðbönd, liðþófar og krossbönd. Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræstikerfi Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Sagt er að bestu rauðvínin batnimeð aldrinum séu þau geymd vel og snúið reglulega.    Upp á síðkastiðhefur af ýms- um tilefnum verið leitað til manna sem eru vel heima, hvort sem horft er fram eða aftur. Warren Buffett sagði sitt fyrirtæki geta ráðið við viðskiptagern- ing upp á 100 millj- arða dollara ef sér þætti hann álit- legur.    Samningur varð-andi þróun kjarnorku undir handarjaðri Íransstjórnar er í upp- námi. Fjölmiðar leituðu til George P. Schulz, fyrrum utanríkis- ráðherra, (sem á allmörg íslensk málverk) um hvernig best væri að halda á málinu. Ekki vantaði upp á að Schultz hefði málefnalegar lausnir á takteinum.    Sagt var frá því í fréttum aðTrump forseti hefði leitað ráða hjá Henry Kissinger varðandi þró- un mála á Kóreuskaga. Ekki var þar farið í geitarhús að leita ullar. Skömmu síðar sótti Kissinger veislu með þeim Trump og Macron forseta Frakklands í Hvíta húsinu.    Það er svo aukaatriði að Buffettverður 88 ára í sumar. George P. Schultz verður 98 ára seint á þessu ári og Henry Kissinger verð- ur 95 ára 27. þessa mánaðar.    Kissinger kom til Íslands 1973með Nixon forseta. Schultz kom 1986 með Reagan forseta en Buffett hefur ekki komið hingað enn, enda sagður flughræddur og líka hræddur við hlutabréf í flug- félögum. Henry Kissinger Sérlega góðir árgangar STAKSTEINAR George P. Schultz Veður víða um heim 7.5., kl. 18.00 Reykjavík 6 rigning Bolungarvík 4 súld Akureyri 8 alskýjað Nuuk -3 heiðskírt Þórshöfn 9 léttskýjað Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 20 heiðskírt Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 20 léttskýjað Lúxemborg 25 heiðskírt Brussel 25 heiðskírt Dublin 19 skýjað Glasgow 18 heiðskírt London 26 heiðskírt París 25 heiðskírt Amsterdam 23 heiðskírt Hamborg 23 heiðskírt Berlín 23 heiðskírt Vín 24 heiðskírt Moskva 20 heiðskírt Algarve 22 léttskýjað Madríd 21 léttskýjað Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Róm 18 þrumuveður Aþena 21 skýjað Winnipeg 24 léttskýjað Montreal 9 léttskýjað New York 19 heiðskírt Chicago 19 heiðskírt Orlando 28 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:36 22:14 ÍSAFJÖRÐUR 4:20 22:39 SIGLUFJÖRÐUR 4:03 22:23 DJÚPIVOGUR 4:00 21:48 Björn Björnsson bgbb@simnet.is Um síðustu helgi var haldin stór og glæsileg atvinnulífssýning í Íþrótta- húsinu á Sauðárkróki. Hefð hefur um það skapast að halda sýningar sem þessa á nokkurra ára fresti, og var þetta sú þriðja. Það var Ásta Pálmadóttir sveitar- stjóri sem setti sýninguna og rakti í stórum dráttum það sem á döfinni er í sveitarfélaginu svo og tilurð sýning- arinnar. Við upphaf sýningar undirrituðu menntamálaráðherra, Lilja Alfreðs- dóttir, og formaður Byggðaráðs Skagafjarðar, Stefán Vagn Stef- ánsson, viljayfirlýsingu um byggingu Menningarhúss á Sauðárkróki. Upp- haf þess máls var að í tíð þáverandi menntamálaráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, var gert samkomulag um byggingu slíks húss, en að beiðni stjórnvalda var framkvæmdum frestað. Það var síð- an í ráðherratíð Illuga Gunnarssonar að ákvörðunin var endurnýjuð og nú var komið að núverandi ráðherra að undirrita samkomulagið. Þá undirrituðu formaður Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, Gunnsteinn Björnsson, Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri og Krist- inn Friðriksson, fulltrúi Nýsköp- unarmiðstöðvar, samkomulag um frumkvöðlakeppni í Skagafirði, sem kynnt verður og auglýst á næstunni. Veitt verða þriggja milljóna króna verðlaun fyrir bestu hugmyndina, sem unnin verður áfram til fram- kvæmdar, en ætla má að margar álit- legar hugmyndir berist, sem leitt gætu til áframhaldandi vinnslu. Gunnsteinn sagði þetta mjög ánægjulegan áfanga og raunar góða leið til að hvetja alla til að koma á framfæri fullmótuðum eða minna mótuðum, nýjum og ferskum hug- myndum, sem ef til vill hefðu legið lengi í gerjun. Fjöldi sýningarbása var á svæðinu og höfðu margir á orði að þeir hefðu ekki haft um það hugmynd, hversu fjölbreytt framleiðslu- og atvinnulíf væri á svæðinu. Fjölmörg skemmtiatriði voru á sviði báða sýningardagana og sagði Sigfús Sigfússon, verkefnisstjóri at- vinnumála, að aðsókn að sýningunni væri mjög góð, engin tök væru á að öðlast vitneskju um fjölda gesta en ætla mætti að hann væru allnokkur þúsund. Ljósmynd/Páll Friðriksson Skagafjörður Lilja Alfreðsdóttir og Stefán Vagn Stefánsson handsala sam- komulag um menningarhúsið, með Karlakórinn Heimi að baki sér. Samið um nýtt menningarhús  Stór atvinnulífssýning á Sauðárkróki Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.