Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta á upphaf sitt í því aðfyrir rúmum fimm árumvorum við að leita leiða tilað styrkja barnastarfið hjá skíðafélaginu á Siglufirði, en dóttir okkar var að æfa þar. Rúnar maðurinn minn fékk þá þessa hug- mynd að halda fjallaskíðamót og bar hana undir Orra Vigfússon heit- inn, Siglfirðing og athafnamann, sem var með miklar taugar til Siglufjarðar. Rúnar hringdi í hann á föstudagsmorgni og Orri var kom- inn norður á laugardagsmorgni í kaffi til okkar á Siglufirði. Það var slíkur hugur í mönnum. Þarna við eldhúsborðið heima á Suðurgötunni varð mótið til, og strax voru gerð drög að því. Með okkur hafa alla tíð starfað stjórn skíðafélagsins og síð- ustu ár sérstök mótsstjórn sem hef- ur tekið að sér að skipuleggja mót- ið,“ segir Sigríður Vigfúsdóttir, en hún er ein af þeim sem skipuleggja Ofurtrölla-fjallaskíðamótið á Trölla- skaga sem fram fer í fimmta sinn á Siglufirði um næstu helgi, eða Su- per Troll Ski Race, eins og það heit- ir á ensku, en mótið er alþjóðlegt. Sigríður segir að á fyrsta mótið árið 2014 hafi ekki komið margir, og fáir útlendingar. „Þetta voru inn- an við tuttugu manns í byrjun, en þetta hefur vaxið hratt og núna er þetta að springa út. Það eru komnar yfir sjötíu skráningar fyrir næstu helgi og um tuttugu prósent af þeim eru útlendingar. Tröllaskaginn hef- ur stimplað sig inn sem fjallaskíða- paradís, sérstaklega fyrir erlent skíðafólk. Á þessum árstíma eru í hverri viku um fjögur hundruð er- lendir ferðamenn á Tröllaskaga að skíða um fjöllin, bæði í þyrluskíðun og að ganga sjálfir upp. Hluti af þessu hefur sannarlega skilað sér á Ofurtröllamótið. Ferðamenn koma líka í gegnum íslenskar ferðaskrif- stofur, til dæmis einn af stuðnings- aðilum mótsins, Arctic Heli Skiing, en þeir eru orðnir risastórir og bjóða líka ferðir til Grænlands og Japans,“ segir Sigríður og bætir við að það sé ákveðinn hópur ferða- manna sem sækist eftir þessari teg- und skíðamennsku. „Eftirspurn eftir fjallaskíða- mennsku eykst mjög hratt. Fólk þarf að hafa fyrir hlutunum, setja þarf skinn undir skíðin til að ganga upp fjallið, en svo eru skinnin tekin af þegar upp er komið og fólk skíðar niður í miklu frjálsræði. Erlent skíðafólk segir að það sem sé svo heillandi við Tröllaskagann sé meðal annars þessi bröttu fjöll og mikli snjór langt fram á sumar, og hversu einstakt það sé að geta farið upp á fjallstopp og skíðað nánast niður að fjöruborðinu. Að sjá til hafs á leið- inni, vera með hafið í fanginu meðan brunað er niður. Þetta eru sér- stakar og heillandi aðstæður.“ Sigríður tekur fram að fjalla- skíðamennska sé fyrir fólk á öllum aldri. „Þetta er fjölskylduíþrótt og við erum núna í fyrsta skipti með tvær leiðir í boði fyrir þátttakendur, önnur er létt leið fyrir alla, Hálf- tröllið, hún er átta kílómetrar og hækkunin 780 metrar og lækkun 920 metrar, en hin leiðin er erfiðari, Ofurtrölið, fimmtán kílómetrar fyrir ofurhugana, þá sem eru lengra komnir, en þar er hækkunin 1.280 metrar og lækkunin 1.100 metrar.“ Gulli Helga ætlar að kynna og keppa líka sjálfur Sigríður segir að í Siglufjarðar- bæ myndist mikil stemning helgina sem Ofurtröllamótið er. „Ef það koma áttatíu kepp- endur þá koma fjölskyldur með þeim, svo fjölgunin á mannfólki í bænum er mikil, kannski hundrað og fimmtíu manns. Dagskráin byrj- ar strax á föstudegi, þá hittast keppendur og farið er yfir búnað, því það þarf eðli málsins samkvæmt að gæta fyllsta öryggis. Þetta hefur alltaf gengið vel og hjálparsveitin er í samstarfi með okkur og sér um öryggisgæslu,“ segir Sigríður og bætir við að Tómas Guðbjartsson hjartalæknir og útivistarmaður hafi ævinlega verið verndari mótsins, nú sem áður. „Það er frábært að hafa hann með á þessu móti, hann er skemmtilegur og mikil stemning í kringum hann. Það er heilmikið skemmtilegt í kringum mótið; „apre-ski“ á hótelinu, matsölustaðir og pöbbar með lifandi tónlist og fleira. Þetta árið ætlar Gulli Helga að vera kynnir á verðlaunaafhend- ingunni og á hátíðarkvöldverðinum, en hann ætlar líka að keppa.“ Sig- Mót sem varð til við eldhúsborð á Sigló Tröllaskaginn hefur stimplað sig inn sem fjallaskíðaparadís. Þar er fólk með haf- ið í fanginu meðan brunað er niður. Á þessum árstíma eru í hverri viku um fjög- ur hundruð erlendir ferðamenn á Tröllaskaga að skíða í fjöllunum, bæði í þyrlu- skíðun og að ganga sjálfir upp. Ofurtröllamótið verður á Sigló um næstu helgi. Morgunblaðið/Hari Sigríður Gaman að skíða og láta gott af sér leiða. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið K371 sófi Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir 3ja sæta 2ja sæta og stólar Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 ❁ Auðveldara að þrífa penslana ❁Gufar ekki upp ❁Má margnota sama löginn ❁Notendur anda ekki að sér eiturefnum ❁ Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum ❁UNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn Hágæða umhverfisvæn hreinsivara Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunum Skíðafélag Siglufjarðar, Skíðaborg, heldur hið árlega Fjallaskíðamót á Tröllaskaga um næstu helgi, dagana 11.-13. maí. Keppendur fá að velja milli tveggja erfiðleikastiga þegar kemur að leiðarvali. Leiðirnar skiptast í „Þjóta & njóta“. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 18:00 Kaffi Rauðka: Farið yfir skíða- og öryggisbúnað, keppnisleiðir og rásnúmer afhent. Lifandi tónlist. LAUGARDAGUR 12. MAÍ 9:00 Kaffi Rauðku. Morgunverður. Tómas læknir mætir og brýnir þáttak- endur til dáða. Ítarleg leiðarlýsing. 11:00 Keppendum keyrt á upphafsstað valinnar leiðar. 12:00 Mótið hefst. 13:00 Tónlist og skíðastemning í Skarðinu. Fjallakofinn verður á staðnum með kynningu á fjallaskíðum og fatbikes. 15-16:00 Síðustu keppendur koma í mark við skíðaskálann. 16-18:00 Apré Ski og lifandi tónlist á Hótel Sigló. 19:00 Lokahóf og verðlaunaafhending á Rauðku. Glæsilegur kvöldverður á góðu verði. Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin á báðum keppnisleiðum: * Þyrluskíðun frá Arctic Heli Skiing * Gisting á Sigló Hótel * Búnaður frá Fjallakofanum * Flugmiðar frá WOW air Ofurtröllamótið á Sigló er fyrir alla fjölskylduna DAGSKRÁ MÓTSINS Á leiðinni upp Fyrst þarf að komast upp, áður en haldið er niður. Ljósmynd/Jón Steinar Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.