Morgunblaðið - 08.05.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta á upphaf sitt í því aðfyrir rúmum fimm árumvorum við að leita leiða tilað styrkja barnastarfið
hjá skíðafélaginu á Siglufirði, en
dóttir okkar var að æfa þar. Rúnar
maðurinn minn fékk þá þessa hug-
mynd að halda fjallaskíðamót og
bar hana undir Orra Vigfússon heit-
inn, Siglfirðing og athafnamann,
sem var með miklar taugar til
Siglufjarðar. Rúnar hringdi í hann á
föstudagsmorgni og Orri var kom-
inn norður á laugardagsmorgni í
kaffi til okkar á Siglufirði. Það var
slíkur hugur í mönnum. Þarna við
eldhúsborðið heima á Suðurgötunni
varð mótið til, og strax voru gerð
drög að því. Með okkur hafa alla tíð
starfað stjórn skíðafélagsins og síð-
ustu ár sérstök mótsstjórn sem hef-
ur tekið að sér að skipuleggja mót-
ið,“ segir Sigríður Vigfúsdóttir, en
hún er ein af þeim sem skipuleggja
Ofurtrölla-fjallaskíðamótið á Trölla-
skaga sem fram fer í fimmta sinn á
Siglufirði um næstu helgi, eða Su-
per Troll Ski Race, eins og það heit-
ir á ensku, en mótið er alþjóðlegt.
Sigríður segir að á fyrsta mótið
árið 2014 hafi ekki komið margir,
og fáir útlendingar. „Þetta voru inn-
an við tuttugu manns í byrjun, en
þetta hefur vaxið hratt og núna er
þetta að springa út. Það eru komnar
yfir sjötíu skráningar fyrir næstu
helgi og um tuttugu prósent af þeim
eru útlendingar. Tröllaskaginn hef-
ur stimplað sig inn sem fjallaskíða-
paradís, sérstaklega fyrir erlent
skíðafólk. Á þessum árstíma eru í
hverri viku um fjögur hundruð er-
lendir ferðamenn á Tröllaskaga að
skíða um fjöllin, bæði í þyrluskíðun
og að ganga sjálfir upp. Hluti af
þessu hefur sannarlega skilað sér á
Ofurtröllamótið. Ferðamenn koma
líka í gegnum íslenskar ferðaskrif-
stofur, til dæmis einn af stuðnings-
aðilum mótsins, Arctic Heli Skiing,
en þeir eru orðnir risastórir og
bjóða líka ferðir til Grænlands og
Japans,“ segir Sigríður og bætir við
að það sé ákveðinn hópur ferða-
manna sem sækist eftir þessari teg-
und skíðamennsku.
„Eftirspurn eftir fjallaskíða-
mennsku eykst mjög hratt. Fólk
þarf að hafa fyrir hlutunum, setja
þarf skinn undir skíðin til að ganga
upp fjallið, en svo eru skinnin tekin
af þegar upp er komið og fólk skíðar
niður í miklu frjálsræði. Erlent
skíðafólk segir að það sem sé svo
heillandi við Tröllaskagann sé meðal
annars þessi bröttu fjöll og mikli
snjór langt fram á sumar, og hversu
einstakt það sé að geta farið upp á
fjallstopp og skíðað nánast niður að
fjöruborðinu. Að sjá til hafs á leið-
inni, vera með hafið í fanginu meðan
brunað er niður. Þetta eru sér-
stakar og heillandi aðstæður.“
Sigríður tekur fram að fjalla-
skíðamennska sé fyrir fólk á öllum
aldri.
„Þetta er fjölskylduíþrótt og
við erum núna í fyrsta skipti með
tvær leiðir í boði fyrir þátttakendur,
önnur er létt leið fyrir alla, Hálf-
tröllið, hún er átta kílómetrar og
hækkunin 780 metrar og lækkun
920 metrar, en hin leiðin er erfiðari,
Ofurtrölið, fimmtán kílómetrar fyrir
ofurhugana, þá sem eru lengra
komnir, en þar er hækkunin 1.280
metrar og lækkunin 1.100 metrar.“
Gulli Helga ætlar að kynna
og keppa líka sjálfur
Sigríður segir að í Siglufjarðar-
bæ myndist mikil stemning helgina
sem Ofurtröllamótið er.
„Ef það koma áttatíu kepp-
endur þá koma fjölskyldur með
þeim, svo fjölgunin á mannfólki í
bænum er mikil, kannski hundrað
og fimmtíu manns. Dagskráin byrj-
ar strax á föstudegi, þá hittast
keppendur og farið er yfir búnað,
því það þarf eðli málsins samkvæmt
að gæta fyllsta öryggis. Þetta hefur
alltaf gengið vel og hjálparsveitin er
í samstarfi með okkur og sér um
öryggisgæslu,“ segir Sigríður og
bætir við að Tómas Guðbjartsson
hjartalæknir og útivistarmaður hafi
ævinlega verið verndari mótsins, nú
sem áður.
„Það er frábært að hafa hann
með á þessu móti, hann er
skemmtilegur og mikil stemning í
kringum hann. Það er heilmikið
skemmtilegt í kringum mótið;
„apre-ski“ á hótelinu, matsölustaðir
og pöbbar með lifandi tónlist og
fleira. Þetta árið ætlar Gulli Helga
að vera kynnir á verðlaunaafhend-
ingunni og á hátíðarkvöldverðinum,
en hann ætlar líka að keppa.“ Sig-
Mót sem varð til við
eldhúsborð á Sigló
Tröllaskaginn hefur stimplað sig inn sem fjallaskíðaparadís. Þar er fólk með haf-
ið í fanginu meðan brunað er niður. Á þessum árstíma eru í hverri viku um fjög-
ur hundruð erlendir ferðamenn á Tröllaskaga að skíða í fjöllunum, bæði í þyrlu-
skíðun og að ganga sjálfir upp. Ofurtröllamótið verður á Sigló um næstu helgi.
Morgunblaðið/Hari
Sigríður Gaman að
skíða og láta gott
af sér leiða.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
❁ Auðveldara að þrífa penslana
❁Gufar ekki upp
❁Má margnota sama löginn
❁Notendur anda ekki að sér eiturefnum
❁ Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum
❁UNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn
Hágæða umhverfisvæn hreinsivara
Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunum
Skíðafélag Siglufjarðar, Skíðaborg, heldur hið árlega Fjallaskíðamót á
Tröllaskaga um næstu helgi, dagana 11.-13. maí. Keppendur fá að velja
milli tveggja erfiðleikastiga þegar kemur að leiðarvali. Leiðirnar skiptast
í „Þjóta & njóta“.
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ
18:00 Kaffi Rauðka: Farið yfir skíða- og öryggisbúnað, keppnisleiðir og
rásnúmer afhent. Lifandi tónlist.
LAUGARDAGUR 12. MAÍ
9:00 Kaffi Rauðku. Morgunverður. Tómas læknir mætir og brýnir þáttak-
endur til dáða. Ítarleg leiðarlýsing.
11:00 Keppendum keyrt á upphafsstað valinnar leiðar.
12:00 Mótið hefst.
13:00 Tónlist og skíðastemning í Skarðinu. Fjallakofinn verður á staðnum
með kynningu á fjallaskíðum og fatbikes.
15-16:00 Síðustu keppendur koma í mark við skíðaskálann.
16-18:00 Apré Ski og lifandi tónlist á Hótel Sigló.
19:00 Lokahóf og verðlaunaafhending á Rauðku. Glæsilegur kvöldverður
á góðu verði.
Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin á báðum keppnisleiðum:
* Þyrluskíðun frá Arctic Heli Skiing
* Gisting á Sigló Hótel
* Búnaður frá Fjallakofanum
* Flugmiðar frá WOW air
Ofurtröllamótið á Sigló
er fyrir alla fjölskylduna
DAGSKRÁ MÓTSINS
Á leiðinni upp Fyrst þarf að komast upp, áður en haldið er niður.
Ljósmynd/Jón Steinar Ragnarsson