Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 30
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Ari Ólafsson keppir í kvöld fyrir
Íslands hönd í fyrri undanúrslitum
Eurovision í Portúgal og syngur lag-
ið „Our Choice“ eftir Þórunni Ernu
Clausen. Nítján lönd taka þátt í
Lissabon í kvöld og er framlag Ís-
lands nr. tvö í röðinni. Keppnin er
sýnd í beinni útsendingu á RÚV, sem
hefst kl. 19.
Ef marka má veðbanka eru litlar
líkur taldar á að Ísland komist í úr-
slitin næsta laugardagskvöld en fyrri
keppnir hafa sýnt að ekki er alltaf að
marka veðbankana. Ari tekur óneit-
anlega þátt í sterkum riðli, með
nokkrum löndum sem spáð er efstu
sætum í úrslitunum, s.s. Ísrael, Kýp-
ur, Tékklandi, Eistlandi og Búlgaríu.
Könnun MMR sýnir að þjóðin er
klofin í afstöðu sinni til þess hvort Ís-
land komist í úrslitin. 51% aðspurðra
telur Ísland ekki komast í úrslit en
49% eru bjartsýn á að lagið fari upp
úr riðlinum í kvöld. Eru konur mun
bjartsýnni en karlar. Aðeins 10%
svarenda telja Ísland enda í efstu tíu
sætum keppninnar.
Töfrar geta gerst á sviðinu
Birgitta Haukdal, sem keppti fyrir
Ísland í Eurovision árið 2003, segist
eiga erfitt með að spá fyrir um gengi
Íslands í ár, hún sveiflist til og frá.
Hvað sem gerist þá muni hún halda
Eurovision-partí í kvöld, grilla og
njóta þess að horfa á keppnina.
„Þetta er lag og flutningur sem við
getum verið stolt af, hvort sem við
komumst áfram eða ekki. Ef sjarm-
inn hans Ara nær í gegn til áhorf-
enda, líkt og hann gerði hér heima,
þá kemst hann áfram. Miklir töfrar
geta gerst á sviðinu, þannig að ég
ætla að kossa fingur og vona að við
rúllum í gegn,“ segir Birgitta.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Eurovisi-
on-sérfræðingur og þátttakandi í
keppninni 1997, segir spá veðbanka
ekki aðalmálið. Það sé alltaf erfitt
fyrir Norðurlandaþjóðirnar að kom-
ast upp úr undanúrslitunum. „Það er
engin leið að treysta því að við séum í
þeirri aðstöðu að geta klappað hvert
öðru á bakið. Við þurfum að hafa í
farteskinu skothelt lag með skot-
heldum flytjanda. Þá munum við
hafa alveg eins mikla möguleika og
hver önnur þjóð,“ segir Páll Óskar
við Morgunblaðið.
Hann segir lagið „Our Choice“
ekki hafa mikla möguleika á að kom-
ast áfram heldur sé að það fyrst og
fremst Ari sjálfur.
„Ef Ari kemst áfram þá er það
fyrst og fremst hópnum og hans
gríðarlegu hæfileikum að þakka. Ari
er með svo stóra og fallega gjöf,
þessa söngrödd sem hann hefur, að
ég held að þessi Eurovision-keppni
sé bara upphitun fyrir glæsilegan
feril sem sér ekki fyrir endann á.
Hann er bara rétt að æfa sig að
syngja fyrir framan myndavélar,“
segir Páll Óskar um íslenska lagið og
flytjandann.
Hann segist ekki hafa áhyggjur af
því þótt veðbankar séu með Ísland
neðarlega, það muni ekki rista djúpt.
„Ari sem listamaður hefur sýnt síðan
hann var smástrákur hvers hann er
megnugur. Ég get lofað því að hann
er að fara að gera eitthvað meirihátt-
ar, ekki endilega bara innanlands
heldur utan. Það er ljóst hvert stefn-
ir með hann.“
Eurovion-ball á Spot
Annars segist Páll Óskar vera
slakur, aðalmálið sé að undirbúa
Eurovision-ball á Spot í Kópavogi
næsta laugardagskvöld. Auk hans
munu stíga á stokk fleiri stjörnur
sem keppt hafa í Eurovision, eins og
Selma Björns, Jóhanna Guðrún,
Hera Björk, Stebbi Hilmars og Eyj-
ólfur Kristjáns.
Ljósmynd/Andres Putting
Eurovision Ari Ólafsson syngur lagið Our Choice í fyrri undanúrslitunum í
Portúgal í kvöld. Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til þess hvort lagið fari áfram.
Telja Ara geta fleytt
laginu áfram í úrslit
Páll Óskar
Hjálmtýsson
Birgitta
Haukdal
Ari Ólafsson verður annar á svið í fyrri undanúrslitum
Röð keppenda í undankeppninni í kvöld
1
Aisel
Aserbaídsjan
X My Heart
2
Ari Ólafsson
Ísland
Our Choice
3 Eugent
Bushpepa
Albanía
Mall
4
Sennek
Belgía
A Matter Of
Time
5
Mikolas Josef
Tékkland
Lie To Me
6 Ieva Zasimau-
skaitè
Litháen
When We're
Old
7
Netta
Ísrael
TOY
8
ALEKSEEV
Hvíta-
Rússland
FOREVER
9 Elina
Nechayeva
Eistland
La Forza
10
EQUINOX
Búlgaría
Bones
11
Eye Cue
F.Y.R.
Makedónía
Lost And
Found
12
Franka
Króatía
Crazy
13 Cesár
Sampson
Austurríki
Nobody
But You
14
Yianna Terzi
Grikkland
Oniro Mou
15
Saara Aalto
Finnland
Monsters
16 Sevak
Khanagyan
Armenía
Qami
17
ZiBBZ
Sviss
Stones
18 Ryan O'Shau-
ghnessy
Írland
Together
19
Eleni Foureira
Kýpur
Fuego
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ninalee A. Craig, stúlkan sem
ítölsku karlarnir stara á í klassískri
ljósmynd Ruth Orkin frá árinu 1951,
lést fyrir helgi í heimaborg sinni, To-
ronto í Kanada. Hún var níræð.
Hún kallaði sig Jinx Allen þegar
hún mætti linsu Orkin á götuhorni í
Flórens fyrir 67 árum og gekk þar
hnarreist framhjá 15 ítölskum körl-
um sem veittu henni óskipta athygli.
Þessi ljósmynd hefur orðið efniviður
kvikmynda, málaferla, tískuþátta –
þetta er ein frægasta ljósmynd 20.
aldar, myndin á næstsöluhæsta ljós-
myndaveggspjaldi sögunnar.
Ninalee Craig var þá 23 ára göm-
ul. Hún var nýútskrifuð úr háskóla í
New York og lagði ein upp í sex
mánaða ferðalag um Evrópu. Í Flór-
ens bjó ljósmyndarinn Ruth Orkin á
sama hóteli. Hún var peningalítil og
þegar þær hittust þennan morgun í
anddyrinu spurði Orkin Allen hvort
hún mætti taka af henni myndir;
Herald Tribune kynni að birta þær í
þættinum „Óþekkt fegurð“. Þeir
greiddu fimmtán dali fyrir.
Ungu konurnar gengu út í daginn
og þegar þær fóru framhjá körl-
unum á torginu tók Orkin mynd.
Henni þótti viðbrögð karlanna svo
forvitnileg, að hún bað Allen að fara
aftur upp á gangstéttina og ganga á
milli þeirra að nýju. Það er þessi
mynd filmunnar sem er sú fræga.
Fyrir áratug hét Jinx Allen Nina-
lee Craig og þá ræddum við saman í
Reykjavík um myndina frægu.
„Þetta er költ-mynd,“ sagði Craig.
„Stundum bregður fólki að heyra
að ég sé konan á myndinni, og missir
út úr sér að það hafi talið fyrirsæt-
una löngu dauða! En ég er sprelllif-
andi og hef það alveg frábært. Þetta
ævintýri með myndina hefur verið
stórskemmtilegt. En það er svo
merkilegt að flestir þessara gaura á
myndinni eru örugglega löngu dauð-
ir – þó ekki greifinn á vespunni,
hann er vinur minn – en engu að síð-
ur eru ennþá að koma fram kallar
sem segjast vera þarna og heimta
peninga. Ég held að þeir 15 séu
orðnir um 450 talsins nú – svo marg-
ir vilja eiga hlut í þessu ævintýri.“
Morgunblaðið/RAX
Fyrirsætan „Flestir þessara gaura á myndinni eru örugglega löngu dauð-
ir,“ sagði Ninalee A. Craig og benti á þá sem dáðust að henni á myndinni.
Stúlkan á mynd
Ruth Orkin látin
Veggspjald Ljósmynd Ruth Orkin
er næstsöluhæsta veggspjaldið.
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is