Morgunblaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Hari Grunnskólafærni Meistaraverkefni Báru Fanneyjar nefnist Grunnskólafærni; markviss kennsla í leikskóla. sinni og bíða eftir svari, biðja kenn- arann kurteislega um aðstoð en í tengslum við þá æfingu settum við upp verkefni, sem við vissum að þau ættu erfitt með að gera ein, og sjötta æfingin fólst í að styrkja bið- lundina,“ segir Bára Fanney og út- skýrir að sjötta æfingin sé gagnleg, til dæmis ef kennarinn getur ekki sinnt nemandanum eins og skot. „Sum börn eru fljót að læra og eiga auðvelt með að aðlaga sig skólaumhverfinu, en þau sem ekki hafi náð ákveðinni grunnfærni í leikskóla standa óneitanlega verr að vígi þegar þau koma í grunn- skóla. Rannsóknir hafa sýnt fram á að góð félagsfærni er vísir að góð- um námsárangri og að hegð- unarvandi yngri barna geti leitt til félags- og námserfiðleika. Niður- stöður rannsóknar minnar lofa góðu. Krakkarnir urðu færari í samskiptum og óæskileg hegðun var á undanhaldi. Með því að skrá framvinduna og árangurinn mark- visst niður sjáum við með vissu hvaða börn ná færninni og hvaða börn þurfa fleiri tækifæri til að æfa sig.“ Gagn og gaman Þótt erlendar rannsóknir sýni að góð félagsfærni sé vísir að góð- um námsárangri, virðist Báru Fanneyju að á lokastigum leikskóla sé lögð meiri áhersla á markvissa kennslu í námsfærni, t.d. að kenna börnum stafina og stærðfræði, heldur en að veita þeim markvissa kennslu í félagsfærni. Hún hefði ekkert á móti því að innleiða PLS- kennsluaðferðina í leikskóla lands- ins og raunar segir hún kennarana í Sjálands leikskóla jákvæða þótt enn sé ekkert afráðið í þeim efnum. Henni finnst þörf á fleiri rann- sóknum á þessari kennsluaðferð, til dæmis á stærri hópum. „Kennslan gekk ljómandi vel, börnin höfðu gagn og gaman af og leikskóla- kennararnir voru ánægðir með samstarfið,“ segir Bára Fanney, sem mun hampa prófskírteini sínu 16. júní og hefja síðan störf sem sálfræðingur hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Við látum framtíðina rætast. Komdu við hjá sérfræðingum okkar að Laugavegi 174 og kynntu þér úrval Volkswagenatvinnubíla í einni fjölhæfustu fjölskyldu landsins. FJÖLHÆFASTA FJÖLSKYLDA LANDSINS? Glæsilegur og vel út búinn pallbíll með 3.0 lítra, 225 hestafla, V6 dísilvél, 550 Nm togi, læst afturdrif, dráttarbeisli, heithúðun á palli, stigbretti, vetrardekk og nú á einstöku tilboðsverði. Volkswagen Amarok verð frá 7.890.000 kr. Hannaður með þarfir iðnaðar- manna að leiðarljósi og með átta þrepa sjálfskiptingu fyrir allar útgáfur. Fjöldi útfærslna á hleðslurými, farþegarými og aðstoðarkerfi. Volkswagen Crafter verð frá 5.610.000 kr. Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi undanfarin ár. Áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum, fjórhjóladrifinn og í fjölda útfærslna. Volkswagen Caddy verð frá2.590.000 kr. Transporter hefur fylgt kynslóðum af fólki sem hefur þurft á traustum og áreiðan- legum vinnuþjarki. Fulkomin stöðugleikastýring, spólvörn og sjö þrepa sjálfskipting. Volkswagen Transporter verð frá4.180.000 kr. Hjólreiðafélagið Tindur og Krónan í samstarfi við Mjölni halda bikarmót Hjólreiðasambands Íslands í fjalla- hjólreiðum í Öskjuhlíð á morgun, laugardaginn 12. maí. Seinna um dag- inn verður All mountain (AM) hjóla- mót opið fyrir almenningsflokk sem hjólar að hluta til í sömu braut en sú braut verður tæknilega erfiðari og hægari yfirferðar. Að sögn Þóru Katrínar Gunnars- dóttur, kynningarstjóra Tinds, er þetta önnur bikarkeppni af fjórum, sem HRÍ stendur fyrir á árinu. Dag- skráin er í grófum dráttum á þá leið að kl. 10 verður svæðið hjá Mjölni (gamla Keiluhöllin) opnað fyrir hjól- reiðar og hálftíma síðar flautað til leiks. Í hádeginu verður boðið upp á hressingu, HRÍ verðlaunaafhending og undirbúningur fyrir fjallahjóla- keppni almennings (AM), sem hefst kl. 13. Á sama tíma hefst sparkhjóla- mót fyrir 2 - 5 ára á grasbalanum vestan við Perluna. Klukkan 14 er barnahjólamót 6 til 12 ára. Skömmu síðar lýkur svo fjallahjólakeppni AM og hamborgarar og drykkir verða í boði gegn tímaflögu. Þóra Katrín segir mótið vera fyrir alla aldurshópa og hina bestu fjöl- skylduskemmtun. Hún hlakkar sér- staklega til að fylgjast með árangri helstu vonarstjörnu Tinds, Fannars Freys Atlasonar, sem byrjaði að keppa fyrir þremur árum og náði þeim árangri að sigra í sínum flokki, U15, á fyrsta bikarmóti ársins. Spurð um vegalengdina segir hún brautina fyrir bikarmótskeppendur XC vera rétt rúma fimm kílómetra. „Elite karlar, sem eru 23 ára og eldri hjóla fimm hringi, Elite konur á sama aldri þrjá og keppendur í Juni- or-flokki, sem eru frá 13 til 23 ára, hjóla tvo hringi.“ Þóra Katrín býst við æsispennandi keppni og hvetur áhugasama til að skrá sig til þátttöku í keppnina fyrir miðnætti í kvöld á vef Hjólreiða- sambands Íslands, ww.hri.is. Hið árlega bikarmót í fjallahjólreiðum í Öskjuhlíð á morgun Hjólreiðakappi Fannar Freyr Atlason hefur náð góðum árangri í bikarkeppni. Vonarstjarna Tinds keppir í U15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.