Morgunblaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu
hækkaði í gærmorgun um nærri heilt
prósent, og fór upp í 77,89 dali á fatið.
Hækkun WTI-hráolíu var svipuð og
endaði fatið í 71,78 dölum. Olíuverð
hafði áður hækkað um 3% á miðviku-
dag og hafa bæði Brent- og WTI-olía
ekki verið dýrari síðan í nóvember
2014.
Hækkunin stafar fyrst og fremst af
þeirri ákvörðun Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta á þriðjudag að
draga landið út úr samningi sem
gerður var árið 2015 milli Írans, ESB
og ríkjanna sem eiga fastafulltrúa í
öryggisráði SÞ um að setja kjarn-
orkuáætlun Írans verulegar skorður í
skiptum fyrir afnám viðskipta-
þvingana.
Íran framleiðir í dag um 4% af allri
olíu í heiminum og er talið líklegt að ef
Bandaríkinn leggja viðskiptaþvinga-
nir á að nýju muni það draga úr fram-
leiðslugetu Írana og jafnvel að olíu-
útflutningur landsins verði
takmarkaður við eina milljón fata á
dag líkt og áður en samningurinn frá
2015 tók gildi. Í dag framleiðir Íran
nærri fjórar milljónir fata af olíu á
dag.
Eykur líkurnar á átökum
Að sögn FT hefur Bandaríkja-
stjórn gefið fyrirtækjum 90 til 180
daga frest til að hætta viðskiptum við
Íran. Steven Mnuchin, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði fyrirtæki
geta sótt um undanþágur en mark-
miðið væri að leggja „hámarks-
viðskiptaþvinganir“ á Íran.
Er talið líklegt að evrópsk fyrir-
tæki muni hlíta viðskiptaþvingunum
Bandaríkjanna af ótta við að missa
annars aðgang að Bandaríkjamark-
aði og bandarísku fjármagni. FT seg-
ir helst að fyrirtæki í Kína og mögu-
lega í Rússlandi gætu valið að hunsa
ákvörðun Trumps og halda áfram við-
skiptum við Íran.
Reuters segir sérfræðinga óttast
að ákvörðun Trumps auki líkurnar á
vopnuðum átökum í Mið-Austurlönd-
um, ýmist á milli Írans og nágranna-
ríkja þess eða jafnvel að Bandaríkin
ráðist inn í Íran. Hvers kyns hern-
aðarbrölt í þessum heimshluta myndi
skerða framboð á olíu enn frekar.
Hlutabréfavísitölur á uppleið
Þrátt fyrir að boða ekki gott fyrir
olíunotendur hafði hækkun hráolíu-
verðs jákvæð áhrif á bandarískan
hlutabréfamarkað. Hlutabréfaverð
fyrirtækja á borð við Exxon Mobil,
Chevron, Royal Dutch Shell og BP
hefur hækkað í takt við hráolíufatið.
Orkuvísitala S&P hækkaði um rösk-
lega 2% á miðvikudag og stóru banda-
rísku hlutabréfavísitölurnar þrjár
hækkuðu um 0,75 til 1%.
Deilt er um hvort ákvörðun
Trumps er réttlætanleg en ef aðgerð-
ir hans gegn Íran leiða til viðvarandi
hækkunar á olíuverði gæti það reynst
bandaríska hagkerfinu dýrkeypt. Í
skýrslu sem gerð var fyrir National
Foreign Trade Council í Washington
árið 2008 komust höfundar að því að
ef Íran fengi að framleiða olíu óhindr-
að gæti það lækkað heimsmarkaðs-
verð um 10%, sem myndi spara
Bandaríkjunum 38 til 76 milljarða
dala miðað við olíuverð 2005 annars
vegar og 2008 hins vegar.
Skrúfað fyrir í Karakas
Þróun mála í Venesúela gæti líka
hækkað olíuverð enn frekar. Líkt og
Morgunblaðið hefur greint frá hafa
efnahagslegt ófremdarástand og van-
hæfni stjórnvalda í valdið því að olíu-
framleiðsla Venesúela hefur minnkað
um nærri fjórðung undanfarna sex
mánuði og gæti minnkað um annað
eins það sem af er þessu ári, eða sam-
tals um tæpa milljón olíufata á dag.
Umdeildar forsetakosningar verða
haldnar í landinu 20. maí næstkom-
andi og reiknað er með að Bandaríkin
grípi til enn frekari refsiaðgerða gegn
landinu ef Nicolas Máduro verður
endurkjörinn. Samkvæmt gögnum
bandarísku orkustofnunarinnar,
EIA, er Venesúela í dag tólfti stærsti
olíuframleiðandi heims og Íran sá
sjötti stærsti.
Olíuverð hærra vegna
aðgerða gegn Íran
Ákvörðun Trumps mun minnka framboð á olíu frá Íran
AFP
Áhrif Hlutabréfavísitölur hafa hækkað en dýrara verður að fylla tankinn.
Stjórn VÍS samþykkti á
miðvikudag að stefna að
breytingu á fjármagns-
skipan tryggingafyrir-
tækisins svo að hún verði
svipuð því sem gerist hjá
tryggingafélögum annars
staðar á Norðurlöndunum. Í til-
kynningu frá VÍS segir að ef áætl-
anir félagsins gangi eftir verði eig-
infjárhlutfall þess orðið 25-28% eftir
þrjú til fimm ár og að samhliða
verði dregið úr markaðsáhættu fé-
lagsins.
Eiginfjárhlutfall VÍS var 36,1% á
fyrsta ársfjórðungi 2017 og var
komið niður í 31,5% á
fyrsta fjórðungi þessa
árs.
Að því er fram kemur
í tilkynningu leggur
stjórn VÍS áherslu á að
það sé forsenda fyrir
lækkun eigin fjár á hverjum tíma að
sjálfbærni félagsins til framtíðar sé
tryggð og verður m.a. horft til þess
að samsett hlutfall félagsins síðustu
12 mánuði sé undir 99%, gjaldþols-
hlutfall þess haldist innan skil-
greinds áhættuvilja, lausafjárstaða
verði áfram sterk og að dregið verði
úr markaðsáhættu. ai@mbl.is
VÍS lækkar hjá sér
eiginfjárhlutfallið
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018
Mörkinni 6 - Sími 568 7090 - veidivon@veidivon.is - veidivon.is
Scierra vöðlur og vaðskór
Pakkatilboð
29.990.-
Kínverska tæknifyrirtækið Gold-
wind hefur keypt hugverkaréttinn
að ferðatúrbínunni Trinity frá ís-
lenska nýsköpunarfyrirtækinu
RH16. Í tilkynningu kemur fram að
kaupverðið sé trúnaðarmál, en
Goldwind vill setja Trinity á mark-
að í Kína og mun RH16 veita ráð-
gjöf við það
verkefni ásamt
því að þróa nýjar
tæknivörur.
Ágúst Arnar
Ágústsson er eig-
andi RH16 og
segir hann að
Goldwind sé einn
stærsti framleið-
andi vindtúrbína
í heiminum.
„Stuttu eftir
kynningu okkar á ferðatúrbínunni á
síðasta ári höfðu þau samband og
sýndu þessari hönnun okkar mikinn
áhuga,“ segir hann.
Trinity er handhæg vindtúrbína
sem rúmast t.d. í bakpoka eða
tösku. Með tækinu geta notendur
hlaðið raftæki með vindorku, nán-
ast hvar sem þeir eru staddir.
Í tilkynningu er haft eftir Li Qi,
fulltrúa Goldwind, að fyrirtækið
hafi lengi unnið að því að gera
vindorku meðfærilegri í notkun.
„Með Trinity hefur verið stigið
stórt skref í að gera ferðavind-
túrbínur þægilegri og auðveldari í
meðhöndlun og auk þess afkasta-
meiri. Við erum bjartsýn á að Tri-
nity verði vel tekið í Kína enda
býður ferðatúrbínan upp á betri
orkulausn fyrir einstaklinga.“
ai@mbl.is
Kínverjar kaupa ís-
lenska vindtúrbínu
Nett Trinity ferðatúrbínuna má
brjóta saman og stinga í tösku.
Ágúst Arnar
Ágústsson
Bandaríska skutlmiðlunin Uber
greinir frá því fyrr í vikunni að fyr-
irtækið hyggist bjóða upp á ferðir
með nk. fljúgandi leigubílum ekki
seinna en árið 2023. Telur Uber að
með því að fjöldaframleiða sér-
hönnuð loftför á nægilega stórum
skala megi lækka til muna kostn-
aðinn við að fljúga styttri ferðir og
ætti skutlið með fullkominni Uber-
þyrlu að geta kostað álíka mikið og
far með Uber-bíl á jörðu niðri.
FT segir marga hafa efasemdir
um þetta ævintýralega verkefni
Uber og kveðst Dara Khosorwshahi
forstjóri fyrirtækisins hafa verið í
þeim hópi. Sagði hann gestum á
kynningarviðburði á miðvikudag
að það hefði þurft „nokkra fundi og
mikla yfirlegu“ til að sannfæra
hann um að áætlunin væri raunhæf.
Að sögn tæknifréttavefjarins
TechCrunch áætlar Uber að flugið
muni kosta jafnvirði um það bil 360
kr. á hvern farþegakílómetra, en
lækki á endanum niður í um það bil
27 kr. á farþegakílómetra. Til sam-
anburðar birtu Samtök sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu skýrslu
í apríl á þessu ári þar sem kom í ljós
að rekstrarkostnaður strætisvagna
hér á landi er í kringum 30 kr. á
farþegakílómetra m.v. 20 farþega í
vagni, á meðan heildarkostnaður-
inn er 61 kr. á farþegakílómetra
þegar ferðast er með einkabíl, m.v.
1,25 manns í hverjum bíl. ai@mbl.is
Metnaður Gestir á kynningunni
virða fyrir sér líkan sem sýnir hug-
mynd að hönnun Uber-flugtaxa.
AFP
Hægt verður að fljúga
með Uber árið 2023