Morgunblaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Allir mæta erfiðleikum á lífsleiðinni,
þú ert engin undantekning þar. Þú hefur
fundið nýtt áhugamál sem mun færa þér
mikla gleði í framtíðinni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að binda svo um hnútana að
ekki verði hægt að koma þér á óvart með að-
finnslum við starf þitt. Ekki er allt gull sem
glóir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt einhver ummæli komi ekki
heim og saman við skoðanir þínar skaltu fara
þér hægt í fordæmingunni. Þér hættir til að
gera úlfalda úr mýflugu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér finnst einhverjir vera að seilast
inn á valdsvið þitt. Raunsæi og fyrirhyggja
eru af hinu góða. Þú ert þekkt/ur fyrir já-
kvæðni og ert því velkomin/n alls staðar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft ekki að vera með nein látalæti í
umgengni við aðra. Kjaftasögur ganga um vin
þinn en þú veist að það mun engu breyta um
vináttu ykkar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Heppnin er með þér í dag og þú hittir
fólk sem er alveg frábært að vinna með. Fé-
lagslífið stendur í blóma og þér finnst þú á
toppi tilverunnar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ferðaáætlanir eða ráðagerðir sem tengj-
ast útgáfu og menntun virðast mögulegar um
þessar mundir. Tilfinningarnar svella og þú
átt í erfiðleikum með að vera hlutlaus og
halda ró þinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gættu þess að verða ekki fórn-
arlamb sjálfselsku og þröngsýni. Allir hafa
eitthvað til síns máls. Þú þarft ró og næði til
hlaða batteríin af og til.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur haldið þig til hlés í
ákveðnu máli en nú kemstu ekki lengur hjá
því að taka afstöðu og láta hana í ljós við við-
komandi. Einhver gengur á eftir þér með
grasið í skónum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að láta vinnuna ganga
fyrir öllu öðru þessar vikurnar. Hjón vinna sig
út úr áskorunum með því að taka höndum
saman.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hittir óvænt gamlan vin sem
getur komið þér til hjálpar í erfiðu persónu-
legu máli. En ef þú bara breytir örlítið til þá
verður dagurinn allur annar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sestu nú niður, skrifaðu verkefnalista
og raðaðu hlutunum í forgangsröð. Ekki tefla
á tvær hættur í ástamálunum.
Síðasta sunnudag í apríl skrifaðiÓlafur A. Stefánsson í leirinn:
„Fundur Kim Jong-un úr norðrinu
og Moon að sunnan kom heims-
byggðinni svo á óvart að menn
stóðu gapandi og vissu ekki hverju
óhætt væri að trúa. Gat þessi ein-
valdur breyst svona skyndilega eða
var þetta ein taktíkin til? Konan
mín sagði að Kim hlyti að hafa ver-
ið klónaður og síðan fjarstýrt í
þessu mikla „sjói“ sem heimurinn
hefur horft upp á síðustu daga. Það
er best að halda sig við þá kenn-
ingu þar til annað kemur í ljós.
Klóna gerðu Kim Jong Un,
kom hann fram og engu laug.
Breyta vill í besta tún,
birgðasvæði og atómhaug.
Biður Trump um góss og grið,
góða telur Kanans menn.
Laus við hrekki lofar frið,
losar hlekki fólksins senn.
Sameina vill svæði í eitt,
seðja hungur, lina tök.
Gera fólkið glatt og feitt,
greikka spor og rétta bök.
Þar sem fyrrum frostið beit,
fólkið svalt í sinni nauð,
breyta skal í sælusveit,
sem að gefur kál og brauð.
Heimur trúir ekki enn,
orðum þessa breytta manns,
– en hver veit nema sjáum senn
sáðkorn vaxa í sporum hans?“
Vandamálin eru af mörgum
toga. Helgi R. Einarsson yrkir:
Sigríður gamla á Grund
á gamlan úrillan hund,
sem glefsar og bítur,
geltir og skítur
í garðinn hjá Sigríði Hrund.
Þórður Tómasson segir frá því
að gömlu trékopparnir, venjulega
með meiri eða minni hlandsteini í
trénu, hafi lyktað misjafnlega og
þótti það í og með fara eftir veður-
breytingu. Er um þetta gamall hús-
gangur:
Veltast í honum veðrin stinn,
veiga mælti skorðan.
Kominn er þefur í koppinn minn,
kemur hann senn á norðan.
Ólafur Guðmundsson á Sauða-
nesi orti:
Rauða tunglið vottar vind,
vætan bleiku hlýðir.
Skíni ný með skærri mynd
skírviðri það þýðir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kim og Moon og
allur heimurinn
NBA-deildin er sú magnaðasta íheimi og væri hægt að syngja
ýmsum leikmönnum lof og prís fyrir
mögnuð tilþrif undanfarna daga og
vikur. Einn maður hefur þó borið
höfuð og herðar yfir aðra leikmenn.
LeBron James, leikmaður Cleveland
Cavaliers, hefur sýnt slíka takta að
eiginlega er ekki annað hægt en að
gapa. Hann er alger yfirburðamaður
í sínu liði, sem hefur verið rækilega
stokkað upp á leiktíðinni og átt mis-
jöfnu gengi að fagna þar til nú að
það smellur saman í úrslitakeppn-
inni.
x x x
James gerir nánast allt á vellinum.Hann hrifsar til sín fráköst, kem-
ur með boltann upp völlinn, gefur
magnaðar sendingar á félagana til
að auðvelda þeim að skora og setur
sjálfur boltann í körfuna úr fárán-
legustu færum. Hann hefur ótrúlega
yfirsýn yfir völlinn og sér gloppur og
veikleika í leik andstæðingsins eins
og hann væri að lesa blaðið í gær.
Undanfarna daga hefur hann gert
Toronto Raptors lífið leitt. Liðið nýt-
ur mikils stuðnings í Toronto og þeir
sem ekki fá miða á leiki safnast sam-
an fyrir utan íþróttahöll borgarinnar
til að fylgjast með leikjum á stórum
skjá til að fylgjast með og hvetja
sína menn. Í vetur hefur liðið leikið
einstaklega vel og var efst í Aust-
urdeildinni. Enn strandaði liðið þó á
James og félögum. Í fyrra sópaði
Cleveland Toronto út úr úrslita-
keppninni 4:0 og það sama átti sér
stað að þessu sinni.
x x x
Í þriðja leiknum voru leikar jafnirþegar nokkrar sekúndur voru eft-
ir. James fékk boltann á eigin vallar-
helmingi, valhoppaði á fullri ferð upp
völlinn og þegar hann var kominn
hálfa leið inn fyrir þriggja stiga lín-
una stökk hann upp, kastaði sér til
vinstri, skaut boltanum, sem hann
hélt í annarri hendi, kæruleysislega
með mjúkri úlnliðshreyfingu þannig
að boltinn fór hátt á spjaldið og ofan
í hringinn. Leik lokið.
x x x
Cleveland gæti enn mætt ofjörlumsínum, en James á engan sinn
líka. vikverji@mbl.is
Víkverji
Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég
gangi í sannleika þínum, gef mér heilt
hjarta, að ég tigni nafn þitt.
(Sálm: 86.11)
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 22. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105, kata@mbl.is
Blaðið verður með góðum
upplýsingum um garðinn,
pallinn, heita potta,
sumarblómin, sumar-
húsgögn og grill ásamt
girnilegum uppskriftum.
Garðar &grill
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 25. maí
SÉRBLAÐ