Morgunblaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hér sýni ég fyrst og fremst málverk. Ég vinn með ýmsa miðla og blanda þeim oft saman, og sýni oft sam- bland af klippimyndum, skúlptúrum og málverkum. En hér er ég fyrst og fremst kominn með málverk en ákvað líka að hafa nokkrar valdar klippimyndir með. Það eru ljós- myndir sem ég tek sjálfur og klippi út með skærum, allt á gamla mát- ann.“ Heimir Björgúlfsson myndlist- armaður er, þegar blaðamaður lítur inn, að stilla upp verkunum í Tveim- ur hröfnum listhúsi á Baldursötu 12 en sýning hans verður opnuð þar í dag, föstudag, klukkan 17. Og sýn- inguna kallar hann Aldrei aftur eða er of seint að skipta um skoðun? Heimir hefur verið búsettur er- lendis í tvo áratugi, síðan hann hélt til framhaldsnáms í Hollandi. Undanfarin tólf ár hefur hann búið í Los Angeles þar sem hann vann þessi verk í vinnustofunni sem hann reisti sjálfur á baklóð heimilisins í austurhluta borgarinnar sólríku. Heimir hefur haldið og tekið þátt í fjölda einka- og samsýninga víða og eru verk hans í eigu safnara, fyrir- tækja og stofnana víða um lönd. Um samspil málverkanna og klippimyndanna sem gestir munu sjá á sýningunni segir Heimir að gestir kunni að öðlast betri skilning á hugsun sinni og nálgun við að sjá hvort tveggja. „Ég vinn venjulega að mörgum verkum í einu og eitt verk hefur sífellt áhrif á annað. Þetta er eins og snjóbolti sem veltur áfram og heldur áfram að bæta á sig.“ Auðn á Íslandi og í Kaliforníu Í litríkum og björtum málverkum Heimis blandast saman abstrakt form, tákn og raunsæislega máluð náttúra og dýr – pálmatré, páfa- gaukar, apar, flamingóar og á stóru verki fyrir miðju hrín asni sem stendur á stultum, sem virðast vera að falla frá honum. Hvaða heimur er þetta? „Ef það er hægt að setja þetta undir eina regnhlíf þá fjalla verkin á einhvern hátt um samband mitt við umhverfi mitt. Og samband manns- ins almennt við umhverfið. Með árunum hefur þetta orðið persónulegra. Ég rek myndheiminn aftur til þess tíma þegar ég fór að læra í Hollandi, þar sem allt er manngert. Þá varð ég mjög meðvit- aður um íslenska bakgrunninn og fór í raun ómeðvitað að vinna út frá því, hvernig til að mynda þessi ólíku umhverfi stönguðust á. Þegar ég svo flutti til Los Angeles þá hef ég þetta allt saman, og miklu meira! Þennan manngerða heim en stutt í villta náttúru. Ef farið er út í eyðimörk í Suður- Kaliforníu þá er það á vissan hátt líkt íslenskri náttúru, nema á and- stæðum pól. Hinir brúnu og gulu lit- ir þar eru þeir bláu og svörtu hér. Lyktin er öðruvísi og vissulega hita- stigið. En á báðum stöðum kemst maður í auðn.“ Heimir bætir við að vissulega sé það líka áhrifavaldur í Los Angeles að borgin sé hrærigrautur af mörg- um og ólíkum samfélögum. „Og verkin hafa smám saman færst út í það að verða sífellt persónulegri sög- ur. Þá hafa þau líka mögulega orðið aðeins ljóðrænni …“ Klisjukenndur draumur Þegar spurt er að því hvaða dýr það séu sem hann velur að setja í verkin svarar Heimir að það sé að vissu leyti tilviljanakennt. Um tíma hafi hann haft mikinn áhuga á sléttu- úlfum og þeir hafi ratað í nokkur verk, og þá hafi litríkir apar komið inn, litríkustu spendýr jarðar. „Þetta verk hér,“ segir hann og bendir á asnann, „er dálítið eins og samfélagið sem ég bý í. Eins og Rómaveldi á niðurleið. Það er byrjað að falla undan asnanum og hann bjargar sér varla úr þessu … En „the show must go on“ … Þetta verk þarna með pálmatrján- um,“ segir Heimir og bendir, „er eins og klisjukenndur norrænn draumur með klisjukenndum pálma- trjám um betri stað í heiminum, en ég set líka inn í það byggingarvíra, pælingin er að hver sé sinnar gæfu smiður og paradís geti verið hvar sem er. Hlutirnir verða alls staðar venjulegir – og ég er líka að takast á við ákveðinn fáránleika. Alveg síðan ég var krakki hefur mér fundist það sem er skrýtið vera merkilegt; ég er heillaður af furðufuglum úti á götu. En hvað er normal hegðun? Ég hef fyrir löngu vanist því sem mér þótti fyrst furðulegt í Kaliforníu en svo kem ég til Íslands núna og finnst margt stórfurðulegt hér sem mér þótti fullkomlega eðlilegt einu sinni.“ Finnst Heimi mikilvægt að koma heim til Íslands með verk að sýna? „Það er ákveðin nostalgía,“ svarar hann brosandi. „Ég er Íslendingur og langar alltaf að sýna á Íslandi. Það kallar á mig að koma heim með verkin.“ Hann setti síðast upp einka- sýningu hér heima árið 2014, í Týs- galleríi, hefur reglulega tekið þátt í samsýningum, og átti síðast verk á samsýningu í Arion banka í fyrra. „Þótt hér séu aðallega málverk hef ég aldrei litið á mig sem málara. Ég er myndlistarmaður og tek mér fyrir hendur þau verk sem kalla á mig. Eitt leiðir af öðru en það var ekki fyrr en eftir að ég útskrifaðist úr listaskóla að ég for að mála af viti. Ég teiknaði mikið sem krakki og ætlaði þá að verða fuglafræðingur en fór aftur að teikna þegar ég var í mastersnámi og fór í framhaldinu að mála. Það hefur undið upp á sig en ég var lengi mjög gagnrýninn eða ef- ins um það sem ég málaði og spurði mig hvort það væri nógu gott. Svo var ég tilnefndur til Carnegie-- verðlaunanna árið 2012, fyrir mál- verk, og þá rann upp fyrir mér að mögulega væri þetta í lagi hjá mér. Og mögulega get ég gert betri mál- verk vegna þess að ég skipti á milli miðla og blanda þeim saman. Það hentar mér að minnsta kosti mjög vel.“ Paradís getur verið hvar sem er  Sýning á málverkum og klippimyndum Heimis Björgúlfssonar opnuð í Tveimur hröfnum listhúsi í dag  Heimir býr í Los Angeles og segir verkin fjalla mikið til um samband mannsins við umhverfið Morgunblaðið/Einar Falur Listamaðurinn „Hlutirnir verða alls staðar venjulegir – og ég er líka að takast á við ákveðinn fáránleika. Alveg síðan ég var krakki hefur mér fundist það sem er skrýtið vera merkilegt,“ segir Heimir Björgúlfsson. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Titill sýningarinnar, Leitin að sann- leikanum, kemur frá Martinus Sim- son sem gerði þessar styttur hér á myndunum,“ segir Katrín Elvars- dóttir ljósmyndari og bendir á vegg- ina fyrir aftan sig, í sýningarsal BERG Contemporary við Klappar- stíg. Þar verður sýning hennar opnuð klukkan 17 í dag og á þorra verkanna birtast stytturnar sem danski mynd- höggvarinn, ljósmyndarinn og sirk- ustrúðurinn Simson, sem var fæddur árið 1886 og settist að á Ísafirði, skapaði og setti upp þar í bænum og í Tungudal. Katrín ólst upp á Ísafirði til níu ára aldurs og þessar styttur hafa setið í minningum hennar – og hún hefur myndað þær af og til í tutt- ugu ár. „Simson skrifaði líka margar bæk- ur með lífsspeki og þangað sæki ég titilinn,“ bætir Katrín við. „Þegar ég snéri aftur til Ísafjarðar fyrir tuttugu árum var margt breytt en þessar styttur voru á sínum stað. Ég var á vissan hátt í leit að upprunanum og byrjaði að mynda stytturnar og hef haldið því áfram, með mismunandi myndavélum og á mismunandi hátt. Á síðustu árum hef ég svo farið að hugsa um þetta sem sýningu og fór markvisst að nota ákveðna tækni við að mynda þær.“ Í innri sal BERG Contemporary getur síðan að líta nokkur ljós- myndaverk sem tengjast myndröð- unum í bókunum sem Katrín hefur sent frá sér á undanförnum árum, ljóðrænar og innhverfar myndir sem sýna óræð manngerð rými og glugga- tjöld sem mynda skil milli heima. Ljóðrænn frásagnarháttur Í texta eftir Sigrúnu Ölbu Sigurð- ardóttur sem fylgir sýningunni úr hlaði, segir hún ljósmyndun vera þann miðil sem Katrín hafi valið sér til að fjalla um áleitnar spurningar um upplifun okkar í tíma og rými, minningar og óljós mörk hins ímynd- aða og hins raunverulega. Katrín hafi á síðustu fimmtán árum unnið sér sess sem einn fremsti ljósmyndari landsins og átt ríkan þátt í að breyta viðhorfi til listmiðils hér á landi. Þá falli verk Katrínar „vel að hug- myndastraumum sem hafa verið áberandi innan norrænnar samtíma- ljósmyndunar á síðustu tíu til tólf ár- um og má kenna við ljóðrænan frá- sagnarhátt.“ Persónulegar tengingar  Katrín Elvarsdóttir sýnir í BERG HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R og og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.