Morgunblaðið - 11.05.2018, Side 25
Smáauglýsingar
Bækur
Hornstrandir heilla og
seiða alla vestur -
Hornstrandir í sumar?
Hornstrandabækurnar okkar eru
skyldulesning!
Allar 5 í pakka á 7500.
Frítt með Íslandspósti.
Vestfirska forlagið
jons@snerpa.is
456-8181
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
VAÐNES - sumarbústaðalóðir
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook síðu
okkar vaðnes-lóðir til sölu.
Ýmislegt
Læknaskóli - kynning
Jessenius Faculty of Medicine
Martin, Slóvakíu heldur kynn-
ingu á læknanámi við skólann
föstudaginn 11. maí nk. kl. 17:00 á
Grand Hóteli við Kringlumýrar-
braut.
Uppl. á kaldasel@islandia.is og
8201071.
Inntökupróf verður 1. júní í
Reykjavík.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur A1988 hf. verður haldinn mánudaginn 28. maí
nk. að Korngörðum 2, Reykjavík, og hefst kl. 8:30.
Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf skv.
13 gr. samþykkta félagsins.
Reykjavík, 7. maí 2018
Stjórn A 1988 hf.
Aðalfundur A1988 hf.
AÐALFUNDUR
Kaupmannasamtaka Íslands verður haldinn
miðvikudaginn 16. maí n.k. í húsakynnum
Kaupmannasamtaka Íslands, Húsi versluna-
rinnar, 13. hæð, kl. 14:00.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og bingóið vinsæla kl. 13.30.
Verið velkomin!
Árskógar Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl.
16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími 535 2700. Handverks-
sýning kl. 13 - 16
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10.30.
Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl.13.45. Kaffiveitingar
kl.14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Aðstoð við notkun á æfingatækjum
9.30-10.30. Göngutúr kl. 10.30 - áhugasamir hittast við móttöku kl.
10.30. Föstudagshópurinn 10-12, frjáls spilamennska 13-16.30, Bingó
sal 13.30-14.30, Handaband - ókeypis vinnustofa í handverki sem er
öllum opin 13.30-16. Vöfflukaffi 14.30-15.30. Verið öll velkomin til
okkar á Vitatorg. Síminn okkar er 411 9450.
Garðabæ Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í
Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30, og frá
Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa
m/leiðb. kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20
Gönguhópur um hverfið kl.10.30. Bókband m/leiðb. kl. 13-16.
Kóræfing kl.13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9 handavinna, kl. 9.10 Boccia, kl. 9.30 postulínsmálun,
kl. 13 tréskurður, kl. 13 léttgönguhópur (frjáls mæting). Við minnum á
árlega Handverkssýningu um helgina 12. og 13. maí, kl. 13 til 17 báða
dagana. Vegna handverkssýningarinnar verður ekki spiluð félagsvist í
kvöld 11. maí. Kaffisala kl. 13.30 til 16.30. Hlökkum til að sjá sem flesta
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13.
Gleðigjafarnir kl. 14.
Hvassaleiti 56- 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi til
kl. 10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga hjá Carynu kl. 10, hádegismatur
kl. 11.30. Bridge kl. 13. Uppselt er á vorgleðina sem hefst kl. 18. Vor-
ferð á Bessastaði miðvikudaginn 16. maí. Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni eða í síma 535 2720.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið
kl.8.50, boccia kl.10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, Zumba
dans leikfimi með Auði kl. 13. Síðdegiskaffi kl.14.-15.30 Hæðargarðs
bíó kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í
Hæðargarði 31 eða í síma 411 2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga í Borgum kl. 9, Bridgehópur kl.
12.30 í Borgum, hin vinsæli hannyrðahópur kl. 12.30 í Borgum.
Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag og sundleikfimi í Grafar-
vogssundlaug kl. 15 í dag. Vöfflukaffi í Borgum kl. 14.30 til 15.30.
Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
m.leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
Bingó kl. 14, ganga m.starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 411 2760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga/hláturjóga kl. 11.
Söngstund á Skólabraut kl. 13. Spilað í salnum Skólabraut kl. 13.
Fylgist með og kynnið ykkur dagskrá listahátíðar Seltjarnarneskirkju
sem stendur út maímánuð. Einnig minnum við á viðburðaríka
dagskrá bókasafnsins í maí.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ZUMBA Gold námskeið í dag
föstudag kl. 10.30 undir stjórn Tanyu. Dansað sunnudagskvöld kl. 20.
Hljómsveit hússins leikur.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018
✝ Pálmi Guð-mundsson
fæddist í Reykjavík
31. október 1960.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu 30. apríl 2018.
Foreldrar Pálma
eru Guðmundur
Ámundason, f. á
Vatnsenda í Vill-
ingaholtshreppi 10.
janúar 1932, og
Ólafía Margrét Ólafsdóttir, f. í
Reykjavík 23. apríl 1939. Systk-
ini Pálma eru Ólafur, f. 24. febr-
úar 1959, Kristín, f. 7. nóvember
1961, Ámundi, f. 27. apríl 1966,
1988, dóttir hans Nathalia Lind,
f. 5. október 2007. Sambýlis-
maður Andreu er Brynjar Lárus
Brynjarsson, f. 22. júlí 1989 2)
Eyþór, f. 10. nóvember 1988,
sambýliskona hans er Hrafnhild-
ur Ólafía Axelsdóttir, f. 10. des-
ember 1992. Áður var Pálmi í
sambúð með Eyrúnu Ólafs-
dóttur, f. 7. maí 1964, börn henn-
ar eru Ólöf Þuríður Pétursdóttir,
f. 21. janúar 1992, og Ingi Pét-
ursson, f. 12. nóvember 1996.
Pálmi var einstaklega hand-
laginn og sinnti ýmsum störfum í
gegnum tíðina, m.a. hjá Rafstill-
ingu, Myllunni, Alpan á Eyrar-
bakka og við flutninga og rútu-
bílaakstur. Hann var stofnandi
viðgerðarverkstæðisins PG þjón-
ustunnar og rak það til dauða-
dags.
Útför Pálma fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 11. maí
2018, og hefst athöfnin kl. 13.
Bergþóra Njála, f.
4. apríl 1969, og
Hjalti, f. 31. janúar
1971.
Eftirlifandi eigin-
kona Pálma er
Edda Sigríður Sig-
urbjarnadóttir, f.
13. október 1960.
Pálmi átti tvö börn
með fyrri eiginkonu
sinni, Úlfhildi Hilm-
arsdóttur, f. 2. mars
1967, 1) Andreu, f. 9. júní 1985,
dóttir hennar er Bríet Svala
Sölvadóttir, f. 30. desember
2012, faðir Bríetar Svölu er Sölvi
Guðmundarson, f. 25. ágúst
Pálmi bróðir hefur kvatt þetta
líf, langt fyrir aldur fram. Það er
óraunveruleg tilhugsun að þessi
glaðværi þúsundþjalasmiður, hug-
vitsmaður og ærslabelgur æsku
okkar sé ekki lengur meðal okkar.
Þar er skarð fyrir skildi.
Pálmi var næstelstur okkar sex
systkinanna og var ekki hár í lofti
þegar fór að bera á náðargáfu
hans sem var að átta sig betur en
aðrir á því hvernig hlutir virka.
Pínulítill sló hann í gegn uppi í
sumó þar sem sláttur stóð fyrir
dyrum en ítrekaðar tilraunir við
að koma sláttuvélinni í gang höfðu
misheppnast. Þá benti sá stutti á
lausa snúru sem gleymst hafði að
tengja og spurði: „Á hetta ekki að
veða þadna?“ Eftir það var rífandi
gangur í heyskapnum.
Pálma fannst fátt skemmti-
legra en að skrúfa hluti sundur og
setja saman aftur til að skilja eðli
þeirra niður í smæsta tannhjól.
Sem krakki útbjó hann litla vél úr
mótor af fjarstýrðum leikfangabíl
til að auðvelda mömmu að gera
snúrur í dúkkuföt. Varð græjan
strax eitt helsta tækið í dúkku-
fataframleiðslunni. Þegar tveir
elstu bræðurnir voru kornungir
að vinna á húsgagnaverkstæði
föður okkar fann stóri bróðir fljótt
til vanmáttar við að horfa á hvern-
ig logsuða og rafsuða lék í höndum
litla bróður. Og á tímabili hirti
hann upp alla reiðhjólagarma sem
hann komst yfir og galdraði úr
þeim hvert glæsigírahjólið á fætur
öðru. 25 ára smíðaði hann sér svo
pickup-bíl frá grunni.
Fyrstu ár þriggja elstu systk-
inanna liðu við drullumall í fína
búinu í sumó og bílaleik sem var
ekki bara ástundaður af ástríðu
heldur líka djúpstæðum skilningi
fyrir tegundum og vélarstærðum
ólíkra Matchbox-bíla. Þegar fram
liðu ár stunduðu þau Klúbbinn og
Hallærisplanið af kappi milli þess
sem skroppið var á samkomur hjá
Ungu fólki með hlutverk! Þar var
ekkert verið að láta kassa og
ramma samfélagsins setja sér of
miklar skorður.
Þegar yngra systkinahollið var
komið til sögunnar fengu litlu
bræðurnir að dunda með Pálma í
bílskúrnum og læra af meistaran-
um. Með honum sóttu þeir líka
rallýcrosskeppnir og ekki taldi
hann eftir sér að taka þá með að
hitta svölu bílavinina sína þótt
varla væri mjög töff að hafa smá-
krakka í eftirdragi í slíkum sel-
skap. Litla systir fékk grunn-
kennslu í rafmagnsfræðum hjá
stóra bróður, um hvernig ætti að
tengja plús og mínus og að passa
upp á leiðnina og tilhlýðilega ein-
angrun svo „allt draslið slægi ekki
út“.
Þannig var Pálmi. Hann var
ekki bara bílasnillingur af guðs
náð heldur eigið iðnfélag – allt í
senn bifvélavirki, rafvirki, smiður
og pípulagningamaður þegar hann
var í framkvæmdum. Hann var
betri en enginn þegar við systkinin
stóðum í stórræðum við byggingar
og bílastúss enda bóngóður með
eindæmum.
Pálmi elskaði íslenska náttúru
og sóttist í að vera í sveit á sumrin
sem krakki. Þórsmörk var hans
uppáhaldsreitur og þangað fór
hann iðulega. Hann sá engan til-
gang í að eltast við útlönd þegar
Ísland í allri sinni dýrð var rétt
innan seilingar.
Bróðir okkar elskulegur var
mikill mannkostamaður. Viðræðu-
góður trúnaðarvinur, ljóngáfaður,
heiðarlegur og góður maður inn að
beini. Hans er sárt saknað.
Ólafur, Kristín, Ámundi,
Bergþóra Njála, Hjalti,
makar og fjölskyldur.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós
breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þessar línur úr ljóði eftir Einar
Benediktsson koma upp í hugann
þegar ég hugsa til baka og minnist
þeirra mörgu skipta sem ég plag-
aði Pálma með biluðum bíldruslum
og hann leit á mig með hlýju í
augnaráðinu og sagði: „Þetta er
ekkert mál, Svana mín.“ Það veit
enginn, sem ekki hefur reynt að
eiga bílskrjóð og eðli málsins sam-
kvæmt lítinn sjóð, hversu mikils
virði er að þekkja og eiga sem vin,
jafn einstakt góðmenni og Pálmi
Guðmundsson var.
Við Pálmi kynntumst fyrir all-
mörgum árum og tengdumst fjöl-
skylduböndum. Þó finnst mér í
rauninni sem ég hafi alltaf hafa
þekkt hann og þó að leiðir mínar
og Óla bróður hans skildi, þá skildi
leiðir mínar og stórfjölskyldunnar
ekki.
Pálmi var minn maður í bílavið-
gerðum, ef svo má segja og aldrei
fór ég bónleið til búðar frá honum.
Mér er minnisstætt þegar ég kom
til hans á litlu tíkinni minni. Dai-
hatsu Charade limited, sem svo að
segja hékk saman á málningunni
sem tengdi ryðið saman og sagði
honum að ég hefði verið tekin á of
miklum hraða á þessari druslu á
Mýrdalssandi, þá bókstaflega tók
hann bakföll af hlátri. Hann
reyndist mér og Matta mínum ein-
staklega vel og ef hann gat ekki
sjálfur farið í málið benti hann
okkur á trausta aðila og fyrir það
er ég honum eilíflega þakklát.
Satt að segja minnist ég þess
ekki að hafa heyrt hann Pálma
kvarta yfir einu né neinu og fékk
hann þó sannarlega sinn skerf af
erfiðleikum að eiga við. Hann taldi
sig gæfumann á öllum skeiðum
lífsins og var alltaf hæstánægður
með akkúrat það sem hann var að
gera. Hann hefði ekki viljað að ég
færi að mæra hann, en ég leyfi mér
að senda honum þessa kveðju og
fingurkoss, með djúpu þakklæti
fyrir allt og allt.
Elsku Edda, Andrea og Eyþór,
Magga og Gúndi og þið öll, ég
sendi ykkur mínar dýpstu samúð-
arkveðjur.
Svana og Matthías Ólafsson.
Elsku Pálmi.
Það er með mikilli sorg í hjarta
að við kveðjum þig, kæri vinur. Þú
fórst í hið langa ferðalag allt of
snemma og allt of hratt. Svo stutt
er síðan við hittumst og þá hugsaði
maður ekki að það yrðu okkar síð-
ustu samskipti.
Við þökkum þér fyrir allt, þú
varst þessi hjálplegi góði vinur
sem ekkert mátti aumt sjá. Það
var ekki hægt að finna neitt vont í
þér heldur varstu alltaf svo góður
og fús að aðstoða mann.
Við munum halda vel utan um
ástina þína hana Eddu. Það fór
ekki framhjá neinum hvað þið vor-
uð samrýnd og ástfangin. Það
krúttlegasta sem við vitum um var
kósítímarnir ykkar seinni partinn
á degi hverjum eftir vinnu að horfa
á þættina Neighbours saman.
Þú varst einstaklega góður
maður, húmoristi og komst fram
við alla af virðingu. Hafðir mikinn
áhuga á fréttum úr okkar lífi og
sýndir börnunum í lífi okkar svo
mikla hlýju og áhuga. Mikill
barnakall og augasteinninn þinn
hún Bríet Svala fékk að eiga svo
ótrúlega yndislegan, þolinmóðan
og uppátækjasaman afa.
Við þökkum þér fyrir alla þá að-
stoð sem þú veittir okkur varðandi
bílakaup, viðgerðir og ráðlegging-
ar.
Þú varst skemmtilegur sögu-
maður og rifjaðir oft upp sögubúta
frá ævisögu þinni og reynslu. Það
var gaman að spjalla við þig um
heima og geima og höldum við því
áfram og spilum Kana þegar við
hittumst á ný.
Takk fyrir allt, elsku Pálmi,
Hvíldu í friði, kæri vinur.
Þangað til næst.
Berglind Ósk
Guðmundsdóttir
Eva María Ægisdóttir.
Pálmi
Guðmundsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar
eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu
efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfar-
ardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á
hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist,
enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morg-
unblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er
unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar