Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 27

Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 27
Jónasar og fósturamma mín var Elín Einarsdóttir húsfreyja. Pabbi kenndi mér ungum mann- ganginn og við tefldum stíft skóla- félagarnir. Ég æfði fótbolta með KA frá því ég man eftir mér og var í hópnum sem varð Íslandsmeistari með KA 1989. Þar eignaðist ég góða vini sem enn halda hópinn og halda saman upp á þennan merkisatburð í sögu félagsins. Ég var einnig mikið á skíðum í Hlíðarfjalli, eins og títt var um krakka á Akureyri.“ Eftir útskrift var Jónas um hríð fulltrúi á lögmannsstofu, síðan kennslustjóri við lagadeild HÍ. Hann starfaði síðan í dóms- og kirkju- málaráðuneytinu og var jafnframt ritari refsiréttarnefndar. Jónas hefur rekið lögmannsstofu í Hafnarfirði frá 1999, framan af í samstarfi við tengdaföður sinn, Árna Grétar Finnsson, hrl. og ljóðskáld. Samhliða því var Jónas um árabil stundakennari í almennri lögfræði og kröfurétti við lagadeild HÍ og kenndi síðar kauparétt sem aðjúnkt við lagadeild HR. Þá kenndi hann í nokkur ár á námskeiðum til löggild- ingar verðbréfamiðlara og fast- eigna-, skipa- og fyrirtækjasala. Jónas er m.a. stjórnarformaður Landsvirkjunar og formaður Kjara- ráðs og var í um áratug oddviti yfir- kjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi við alþingiskosningar, þjóðar- atkvæðagreiðslur um Icesave og for- setakjör. Jónas var formaður Orators, fé- lags laganema, sat í stjórn bókaút- gáfu Orators og var annar tveggja framkvæmdastjóra Lögfræði- aðstoðar Orators. Hann var m.a. for- maður Stefnis, félags ungra sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði, vara- formaður SUS, var í tæpan áratug formaður fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Hafnarfirði og formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Auk þess var hann formaður Lögmannafélags Ís- lands. Jónas hefur skrifað greinar í tímarit og dagblöð um lögfræði og þjóðmál. Áhugamálin eru mörg. „Í uppá- haldi er að ferðast um landið og veiða í fallegu ánum okkar. Ég var ungur þegar ég fór fyrst í veiði með föður mínum í Laxá í Aðaldal og hef í mörg ár veitt í ánum á Norðaust- urlandi og í Vopnafirði með góðum veiðifélögum. Á veturna reynir fjöl- skyldan að komast á skíði og svo njótum við þess að ferðast saman, innanlands og utan. Við Ingibjörg eigum þrjú börn á unglingsaldri, það er því alltaf líf og fjör. Ég hlusta talsvert á tónlist og hef gaman af því að fylgjast með nýj- um straumum. Daglegir göngutúrar með eiginkonunni veita mér líka inn- blástur, ekki sist þegar þeir enda í sundlaugunum.“ Fjölskylda Eiginkona Jónasar er Ingibjörg Árnadóttir, f. 21.11. 1972, lögmaður. Foreldrar hennar voru Árni Grétar Finnsson, f. 3.8. 1934, d. 11.10. 2009, hrl. og skáld í Hafnarfirði, og k.h., Sigríður Oliversdóttir, f. 18.6. 1935, d. 26.2. 2014, húsfreyja. Börn Jónasar og Ingibjargar eru 1) Guðmundur Már, f. 17.5. 1999, nemi í VÍ; 2) Lovísa Margrét, f. 6.5. 2003, í Lækjarskóla, og 3) Stefán Árni, f. 11.4. 2005, í Lækjarskóla. Systkini Jónasar eru Unnur Elín, f. 9.12. 1970, starfar hjá Íslenskum Verðbréfum á Akureyri, og Guð- mundur Már, f. 7.3. 1974, tölvunar- fræðingur í Kópavogi. Foreldrar Jónasar: Guðmundur Steingrímsson, f. 21.3. 1942, fyrrv. framkvæmdastjóri Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga á Akureyri, og k.h., María Sigbjörg Sveinbjörnsdóttir, f. 20.11. 1942, d. 15.4. 2017, móttökuritari á Heilsu- gæslustöðinni á Akureyri. Úr frændgarði Jónasar Þórs Guðmundssonar Jónas Þór Guðmundsson Ingigerður Benediktsdóttir húsfr. í Bolungarvík Guðmundur Andrésson bátsform. í Bolungarvík Ingunn Guðlaug Valmaría Guðmundsdóttir húsfr. í Vopnafirði María Sigbjörg Sveinbjörnsdóttir móttökuritari á Heilsugæslust. áAkureyri Sveinbjörn Sigbjörnsson verkam. á Vopnafirði María Sveinbjörnsdóttir húsfr. í Tunguseli, bróðurdóttir Þórðar, föður Sigvalda Þ. Thordarson arkitekts og Jónasar Þ. Thordarson, fósturföður Maríu Sigbjargar, móður afmælisbarnsins Sigbjörn Grímsson b. í Tunguseli, Sauðanessókn Þórdís Ingibjörg Samsonardóttir húsfr. áAkureyri Guðmundur Aðalbjörn Pálsson b. á Féeggstöðum í Barkárdal Aðalbjörg Þórdís Aðalbjörnsdóttir húsfr. áAkureyri Steingrímur Guðmundsson vélstj., leigubílstj. og síðar skrifstofum. áAkureyri Guðmundur Benediktsson kennari og b. á Ásláksstöðum í HörgárdalGuðmundur Steingrímsson framkvstj. Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga áAkureyri Unnur Guðmundsdóttir húsfr. á Ásláksstöðum Barði Guðmundsson þjóðskjalavörður og alþm. í Rvík Skafti Guðmundsson b. í Gerði í Hörgárdal Guðmundur Skaftason endurskoðandi, skattrannsóknarstj. og síðar hæstaréttardómari Baldur Guðmundsson verkam. í Rvík Hulda Baldursdóttir húsfr. í Rvík Kristín Pálsdóttir hjúkrunarfr. í Rvík Ívar Páll Jónsson sérfræðingur hjá Landsvirkjun Bergþór Pálsson óperusöngvari ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 95 ára Gyða Þórarinsdóttir 90 ára Svava Sveinsdóttir Þórhalla Ragnarsdóttir 85 ára Ari Sigurðsson Arnar Herbertsson Bragi Stefánsson 80 ára Gunnar Malmquist 75 ára Ingveldur Sæmunda Albertsdóttir Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir Margrét Valgerðardóttir Sigurlín J.M. Sigurðardóttir Stefán Magnússon 70 ára Anna Pétursdóttir Arnór G. Ragnarsson Erna Fossdal Júlíusdóttir Indriði Theódór Ólafsson Ingimar Kjartansson Jórunn Erla Sigurðardóttir Karl Franklín Magnússon Lilja K. Kristjánsdóttir Sigurður Friðbjörnsson Þóra G. Hafsteinsdóttir 60 ára Adam Ásgeir Óskarsson Elzbieta Teresa Cichocka Gróa Bjarnadóttir Halldór Jóhann Harðarson Hjálmar Bjarnason Ingibjörg M. Valgeirsdóttir Jóhann Ólafson Jóhann Sigfússon Jóna Ósk Vignisdóttir Leifur Árni Árnason 50 ára Anna Herdís Eiríksdóttir Helga Barðadóttir Helga Gústavsdóttir Hermann Þór Bauer Isabel Maria V. Palmero Jerzy Miroslaw Sojka Joanna Ewa Kocel Joao Ramos Rocha Jónas Þór Guðmundsson Jun Cui Karólína Hreiðarsdóttir Ragnar Gísli Kristjánsson Russell Stephen Donnelly Valdís Erla Harrysdóttir Valgerður T. Gunnarsdóttir 40 ára Fabrice R. Corminboeuf Ilona Iosifovna Karlashchuk Ingi Ragnarsson Katarzyna Sylwia Jagielska Katrín Þóra Jónsdóttir Sigurlína H. Einarsdóttir Símon Georg Jóhannsson Yonatan A. Tesfahunegn Þorlákur Jónsson 30 ára Andri Björn Birgisson Baldur Kári Eyjólfsson Elín Björnsdóttir Elí Ólsen Valgarðsson Ester Óskarsdóttir Guðni Þ. Guðjónsson Halla Björt Ármannsdóttir Helena Auður Guðnadóttir Jakub Marcin Róg Jimena Klauer Morales Jón Theódór Jónsson Kristinn Már Þorleifsson Magnús Bjarni Pétursson Vedran Turkalj Viðar Hauksson Þröstur Pétursson Til hamingju með daginn 30 ára Magnús ólst upp í Grindavík, býr þar og er stöðvastóri hjá Hertz- bílaleigu í Leifsstöð. Systur: Ásdís Ester Krist- insdóttir, f. 1973, starfs- maður í Bláa lóninu, og Sigurlaug Pétursdóttir, f. 1981, húsfreyja í Grinda- vík. Foreldrar: Pétur Gísla- son, f. 1948, fyrrv. fisk- verkandi, og Guðrún Bjarnadóttir, f. 1951, fyrrv. fiskverkandi í Grindavík. Magnús Bjarni Pétursson 30 ára Jón Theódór ólst upp í Reykjavík, býr á Hvanneyri, yfirmaður hjá N1 og þjálfar í fótbolta. Maki: Guðlaug Jóns- dóttir, f. 1992, leikskóla- kennari. Dætur: Sigrún Alda, f. 2012, og Elín Harpa, f. 2014. Foreldrar: Sigrún Guð- laug Ólafsdóttir, f. 1949, starfsmaður Reykjavíkur- borgar, og Jón Pálsson, f. 1947, vélvirki. Jón Theódór Jónsson 30 ára Helena ólst upp í Neskaupstað, býr í Reykjavík og er heima- vinnandi sem stendur. Maki: Örvar Ingi Jóhann- esson, f. 1982, píanó- kennari. Börn: Apríl, f. 2014, og Vikar Jökull, f. 2016. Foreldrar: Ástríður Ingi- björg Þorgeirsdóttir, f. 1956, hárgreiðslukona, og Guðni Haukur Sigurðs- son, f. 1952, vélstjóri hjá Alcoa. Helena Auður Guðnadóttir Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is silestone.com Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið  Ingi Þór Einarsson hefur varið dokt- orsritgerð sína í menntavísindum við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfa- deild, Menntavísindasviði Háskóla Ís- lands. Ritgerðin ber heitið „Hreysti og heilsa íslenskra barna með þroskahöml- un (Physical fitness and health of Ice- landic children with intellectual disabi- lity“). Leiðbeinandi var dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, prófessor við Mennta- vísindasvið Háskóla Íslands, og með- leiðbeinandi dr. Daniel Daly, prófessor við KU Leuven, Belgíu. Umræðan um minnkandi hreyfingu og versnandi holdafar hjá íslenskum ungmennum hefur verið nokkuð áber- andi undanfarin ár, en lítið er vitað um stöðu mála hjá íslenskum börnum með fatlanir. Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að skoða hreyfingu, þol, holdafar og ýmis viðhorf til hreyfingar meðal tæp- lega 100 íslenskra ungmenna með þroskahömlun á aldrinum 6-16 ára. Til samanburðar var hópur barna sem ekki höfðu neina fötlun skoðaður á sama tíma og á sama hátt. Niðurstöður sýndu að börn með þroskahömlun voru líklegri til að flokk- ast of feit, voru með hærri blóðþrýsting og hærra mittis- mál. Einnig voru börn með þroska- hömlun með minna þol og hreyfðu sig minna en jafnaldrar þeirra án fötlunar. Engin börn með þroskahömlun náðu ráðlögðum viðmiðum um lágmarkshreyfingu af hárri ákefð á dag, en um þrír fjórðu ófatlaðra barna náðu þeim viðmiðum. Við nánari skoðun á hreyfimynstri barnanna kom í ljós að börnin með þroskahömlun fengu stærstan hluta hreyfingar sinnar á skólatíma og eins voru þau í meiri kyrrsetu eftir skóla en á skólatímanum sjálfum. Þessu var öf- ugt farið hjá börnum án fötlunar. Hóparnir tveir hafa mismunandi ástæður til að stunda hreyfingu, þar sem börn með þroskahömlun eru alls ekki eins keppnisdrifin og ófötluðu börnin en höfðu meiri áhyggjur af holdafari sínu. Einnig kom í ljós að þekking fötluðu barnanna og fjöl- skyldna þeirra á mikilvægi hreyfingar er ekki góð, því stór hluti þeirra taldi sig vera að hreyfa sig alveg nóg, þó að raunin væri allt önnur. Ingi Þór Einarsson Ingi Þór Einarsson er fæddur 1968. Hann er aðjunkt við Háskólann í Reykjavík. Ingi Þór lauk stúdentsprófi frá MH 1989, BS-prófi í íþróttafræði 2005 og meist- araprófi 2008 frá Kennaraháskóla Íslands. Ingi Þór hefur lengi starfað með Íþróttasambandi fatlaðra að afreksþjálfun fatlaðra íþróttamanna ásamt því að vera ráðgjafi fyrir alþjóðasamtök fatlaðra íþróttamanna (IPC). Maki Inga Þórs er Guðrún Árnadóttir og börn þeirra eru Eydís og Laufey. Doktor

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.