Morgunblaðið - 22.05.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.05.2018, Qupperneq 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ Leitar þú að traustu Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA Lífslíkur bílsins margfaldast ef hugað er reglulega að smurningu.ENGAR tímapantanir MÓTORSTILLING fylgir fyrirmælum bílaframleiðanda um skipti á olíum og síum. Þ að er kunnara en frá þurfi að segja – ekki síst fyrir les- endur þessa Bílablaðs – að mesta gróskan í framleiðslu nýrra bíla hin seinni misseri hefur verið í flokki svonefndra „crossover“ bíla sem helst hafa verið kallaðir borgarjeppar á íslensku. Hver fram- leiðandinn á fætur öðrum sendir frá sér útspil í slaginn og ekki að furða; margir þessara bíla hafa reynst fram- leiðendum sínum æði drjúg mjólk- urkýr. Nissan Qashqai og Range Ro- ver Evoque eru aðeins tvö dæmi um slíkt og þar af leiðandi skiljanlegt að Bayerische Motoren Werke sjái sér leik á borði. Sá leikur liggur nú fyrir og er hreint enginn afleikur nema síð- ur sé. BMW X2 er ljómandi skemmti- legur bíll, flottur útlits og hrósvert af BMW að tefla svolítið djarft með hönnun bílsins. Nú kunna einhverjir hreintrúaðir BMW-menn og -konur að súpa hveljur en óttist eigi; hér er ekki verið að villast í sömu áttir og 2- Series strumpastrætóinn. Þvert á móti er hér farið í verulega áhuga- verðar áttir með hönnunina. Svalur og sportlegur Þó X2 sé auðþekkjanlegur að fram- anverðu, með nýrnaframgrillið sem einkennt hefur BMW í áratugi, þá er hann býsna nýstárlegur að sjá á hlið- ina. Hann er til að mynda lægri og rennilegri að sjá en X1, og farang- ursrýmið geldur aðeins fyrir þó það sé svosem ekki mikið. En svipurinn verður knappari og hér er til að mynda enga rúðu að finna aftan við afturhurðirnar – bara BMW-merkið, hugvitsamlega sett á C-bitann. Það er út af fyrir sig góð hugmynd, merkið nýtur sín vel á þessum stað og BMW hafa ástæðu til að halda sjálfum sér á lofti; mér finnst þetta töff útfærsla. Það er líka út af fyrir skynsamleg stefna ð hafa skýran mun á mód- elunum þó hætt sé við að íhalds- sömum þyki X2 helst til fríkaður. En það kemur þá ekki að sök, þeir halda sig bara við X1 og allir sáttir. X2 er væntanlega beint að yngri við- skiptavinum og er skí andi útspil sem slíkur. Hér hafa hönnuðir hitt á held- ur betur góðan dag. Þarna þekki ég þig, Bimmi Að innan er X2 allur á hefðbundnu bókina lærður og ekkert nema gott um það að segja. Allir sem sest hafa inn í BMW hin seinni ár munu kann- ast hér við sig og af góðu einu. Að- búnaður og tæki er, eins og við er að búast, prýðisgóður. Stýrið er hæfi- lega svert og fer vel í hendi, og oln- bogarými ökumanns er fínt. Þá er út- sýni áfram veginn afbragðsgott en heldur lakara um afturrúðuna; glugg- inn á skotthleranum er einfaldlega svo knappur að ekki er við öðru að búast. Innréttingin er smekkleg, með skemmtilegum áhersluflötum úr burstuðu áli. Hvað tæknina áhrærir þá tekur smástund að átta sig á viðmótinu í snertiskjánum en þegar það er komið þá er það líka dagljóst. Á öld snjall- tækja er heldur engum vorkunn þó hann þurfi að átta sig á tækjabúnaði um borð í bíl. Plássið er líka fínt fyrir farþega í aftursæti, bæði til höfuðs og fóta, og þó þakið lækki eftir því sem aftar dregur. Það kemur ekkert að sök. Eins og framar greindi þá takmarkar lag bílsins skottplássið aðeins, en þessi bíll mun seljast út á lúkkið en ekki farangsrýmið. Morgunblaðið/RAX BMW X2 er ljómandi skemmtilegur bíll, flottur útlits og hrósvert af BMW að tefla svolítið djarft með hönnun bílsins. Hann er auðþekkjanlegur að framanverðu en sérstæður að sjá á hliðina. BMW tekur borgarjeppaslaginn Sportleg lögun bílsins takmarkar skottplássið aðeins, en án þess að það komi að sök; þessi bíll mun seljast út á lúkkið en ekki farangsrýmið. Morgunblaðið/RAX Plássið er líka fínt fyrir farþega í aftursæti, bæði til höfuðs og fóta. + Flott útlit, skemmti- legur í akstri – Heldur í dýrara lagi 2,0 lítra díselvél 190 hestöfl/400 Nm 8 þrepa sjálfskipting 0-100 km/klst.: 7,7 sek. Hámarkshr.: 221 km/klst. Drif: AWD 17" álfelgur Eigin þyngd: 1.600 kg Farangursrými: 470 lítrar Mengunargildi: 136 g/km Verð frá: 6.190.000 kr. 4,8 l í blönduðum akstri Umboð: BL BMW X2 20d xDrive Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Reynsluakstur Að innan er X2 allur á hefðbundnu bókina lærður. Aðbúnaður og tæki er, eins og við er að búast, prýðisgóður. Að innan er X2 allur á hefðbundnu bókina lærður. Aðbúnaður og tæki er, eins og við er að búast, prýðisgóður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.