Morgunblaðið - 22.05.2018, Side 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
Þ
eir vita sem fylgjast með
bílaheiminum að nærfellt
allir ráku upp stór augu
þegar Porsche svipti hul-
unni af jeppa árið 2002. Flestum
þótti þetta fráleitt og fullkomlega
taktlaust fyrir sportbílaframleiðanda
og Cayenne, en svo kallaðist jeppinn,
mætti efasemdum þegar hann var
frumsýndur. En efasemdarradd-
irnar eru vitaskuld löngu þagnaðar
enda Cayenne frábær bíll allt frá
fyrstu kynslóð; Porsche-erfðaefnið
er rækilega til staðar og þá þarf ekki
að hafa frekari áhyggjur af far-
artækinu. Síðan þá hefur Porsche
Cayenne bara batnað. Tækninni
fleygir fram eftir því sem árin líða og
í dag er Cayenne hátæknilegt meist-
araverk og Porsche tekst með aðdá-
unarverðum hætti að flétta saman
munað og þægindi við eiginleika ekta
sportbíls. Því þegar öllu er á botninn
hvolft er Porsche Cayenne í raun
réttri ofursportbíll búinn þægindum
og farangursrými jeppa.
Loksins - útlitið fullkomnað!
Gott og vel, það eru kannski ýkjur
því lengi má gott bæta og vitaskuld
er engum endapunkti náð með nýj-
ustu kynslóð Cayenne. En engu að
síður er hér um mikinn áfangasigur
að ræða, alltént að mati undirritaðs.
Eitt af því sem hefur hálfpartinn
plagað Cayenne allt frá fyrstu tíð er
afturendinn, þ.e. hönnun afturljós-
anna. Þau hafa alltaf virkað á mig
sem óákveðin hönnun, eitthvað sem
notast var við af því fólki datt ekkert
betra í hug. Porsche Panamera og
Porsche Boxster hafa löngum verið
sama marki brenndir. Afturljós sem
ganga einhvern veginn ekki alveg
upp. Merkilegt nokk þá var lausnin
beint fyrir framan nefið á hönn-
unardeild Porsche. Rétt eins og
framendi allra bílanna, sem Porsche
framleiðir á annað borð, er með ein-
um eða öðrum hætti dreginn af fram-
enda 911-bílsins, þá hefur mönnum
loksins lærst að leiðin til fyrirheitna
landsins varðandi afturenda Ca-
yenne, Panamera og Boxster liggur
líka um lendur Porsche 911. Aftur-
ljósin hafa aldrei verið flottari og nú
erum við að tala saman. Glöggir les-
endur kveikja hér á þeirri staðreynd
að minni jeppinn frá Porsche, Mac-
an, náði þessu í fyrstu tilraun.
Að öðru leyti er Cayenne til-
tölulega líkur sér frá síðustu kynslóð
og þar þurfti engra byltinga við.
Heildarsvipurinn er eins og púsl sem
loks hefur tekist að leysa alla leið.
Einhverjir gætu bent á að Ca-
yenne er ekki ýkja „jeppalegur“ að
sjá, enda liggur hann nokkuð lágt til-
sýndar. Það er kannski sjónarmið út
af fyrir sig. Fæstir, ef þá einhverjir,
munu þó fjárfesta í þessum lúxusbíl
til að taka á honum í torfærum, og
þegar maður sér 22 tommu felgurnar
sem hann skartaði við reynsluakst-
urinn þá verður manni satt að segja
drullusama um flest annað – þið af-
sakið orðbragðið.
Að innan eins og best gerist
Eins og framar greindi hefur það
Fríða og Dýrið í senn
Eins og glöggt má sjá hefur afturendi Porsche Cayenne aldrei litið jafnvel
út. Héðan af þarf engar byltingar, bara minni háttar breytingar, takk.
Flennistór upplýsingaskjár gefur ökumanni og öðrum viðstöddum allra
handa upplýsingar um bílinn, ásamt því að stýra afþreyingu.