Morgunblaðið - 22.05.2018, Qupperneq 14
Lagið sem markaði endurkomu Ford Mustang í náðina hjá hinum almenna sportbílaunn-
anda, kynnt árið 2005 sem fjórða kynslóðin.
Mustang-fákar
að fornu og nýju
Brimborg með yfirlitssýningu um sögu Ford Mustang
Sérlega glæsilegt og sportlegt eintak af Mustang með seinni gerð yfirbyggingar frá fyrstu
kynslóðinni, nánar tiltekið í SportsRoof útfærslu, frá árunum rétt fyrir 1970.
Sportrendur hafa aldrei sakað á Ford Mustang nema síður sé og þessi
gullfallegi bíll sýnir hversu fallegir sportbílar voru oft í kringum 1965.
Þriðja kynslóð Ford Mustang var kynnt til sögunnar árið 1979, minni um
sig á alla kanta. Þessi töffari er að blaðamanni sýnist árgerð ́85 eða ́86.
Núverandi lag á Ford Mustang hefur glatt margan sportbílaunnandann en margir voru ekki
allskostar sáttir við brotthvarfið frá „muscle car“ laginu og fögnuðu því rækilega þegar
fimmta kynslóðin var kynnt til sögunnar árið 2005, sælla minninga.
Það er ávallt tilhlökkunarefni þegar Brimborg, umboðsaðili
Ford á Íslandi, efnir til Mustang-sýningar í húsakynnum sín-
um. Jafnan er úrvalið mikið sem til sýnis er og gefst þá færi á
að skoða bíla sem sjaldséðir eru orðnir á götunum.
Ford Mustang eru að líkindum frægustu sportbílar sem frá
Bandaríkjunum hafa komið – ásamt Chevrolet Corvette – og
því ekki að undra að margmenni bregði sér í Brimborg að
skoða fákana meðan bílasýningin stendur yfir.
Höfum annars ekki fleiri orð um það en leyfum myndunum
að njóta sín.
Ef það er eitthvað fallegra en eldrauður, stífbónaður og glansandi fínn klassískur Ford Must-
ang, þá er það þrír slíkir standandi til sýnis hlið við hlið. Þvílík fegurð, góðir lesendur!
Tvær kynslóðir af Ford Mustang mætast á sýningunni hjá Brimborg, nánar tiltekið sú fyrsta
til hægri (fyrsta yfirbygging 1964-1967) og sú fjórða sem smíðuð var 1994-2004.
14 | MORGUNBLAÐIÐ