Morgunblaðið - 22.05.2018, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ | 15
Er ferðavagninn rafmagnslaus?
TUDOR TUDOR
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
örugg
t
start
með
TUDO
R
Frístunda rafgeymar
í miklu úrvali,
AGM þurr rafgeymar
eða lokaðir
sýrurafgeymar.
Námskeið í maí 2018
Lau. 26. maí kl. 09:00 - 16:00 - Umferðaröryggi - bíltækni
Lau. 26. maí kl. 09:00 - 16:00 - Vistakstur - öryggi í akstri
Námskeið í júní 2018
Lau. 2. júní kl. 09:00 - 16:00 - Vöruflutningar
Lau. 2. júní kl. 09:00 - 16:00 - Lög og reglur
Lau. 9. júní kl. 09:00 - 16:00 - Vistakstur - öryggi í akstri
Lau. 9. júní kl. 09:00 - 16:00 - Farþegaflutningar
Lau. 23. júní kl. 09:00 - 16:00 - Lög og reglur
Lau. 23. júní kl. 09:00 - 16:00 - Umferðaröryggi - bíltækni
Lau. 30. júní kl. 09:00 - 16:00 - Vöruflutningar
Lau. 30. júní kl. 09:00 - 16:00 - Farþegaflutningar
Gert er ráð fyrir að haustnámskeið hefjist í lok ágúst 2018
Fyrirtæki geta óskað eftir sérnámskeiðum fyrir hópa
Skráning á námskeið fer fram á bilprof.is
Ökuskólinn í Mjódd – Þarabakka 3, 109 Reykjavík – s 567 0300 – mjodd@bilprof.is
Þýski sportbílasmiðurinn Porsche kom vel frá fyrsta
fjórðungi ársins. Afhendingar bíla jukust um 6,5%, tekjur
jukust um 8% í 5,9 milljarða evra og hagnaður af rekstri
varð 976 milljónir evra, eða 16,4%.
„Þessi góði árangur á fyrsta fjórðungi ársins leggur
traustan grunn fyrir komandi tíma,“ segir Lutz Meschke,
varaformaður stjórnar Porsche, í afkomutilkynningu, en
alls afhenti Porsche 63.500 bíla á tímabilinu.
Rekstrarmarkmiðin í sjónmáli
Hann segir að aukin blönduð bílaframleiðsla og hag-
felld þróun annarrar starfsemi, svo sem ráðgjafaþjónusta
sem veitt er af MHP og Porsche Consulting, hafi stuðlað
að þessari góðri afkomu. Hins vegar hvíli gífurlegar fjár-
festingar vegna framtíðarinnar sem mæði á fjárhagnum
og hafi óhagstæð gengisþróun gert þær þungbærari.
Oliver Blume, stjórnarformaður Porsche, segir árang-
urinn styðja smíðastefnu bílsmiðsins. „Nýjar kynslóðir
Panamera og Cayenne hafa fengið góðar viðtökur, sem og
einnig nýju 911 GT-módelin,“ segir hann.
Í lok fyrsta fjórðungs voru starfsmenn Porsche 30.335
talsins. Hafði þeim fjölgað úr 28.249 árinu áður eða um
7%.
Í tilkynningu Porsche segir að markmiðið um 15%
rekstrarhagnað fyrir árið 2018 í heild ætti að verða við-
ráðanlegt. Sportbílasmiðurinn þýski býst við að næsti
kippur sem lyfta muni bílasölunni ennfremur verði þegar
Mission E, fyrsti hreini rafsportbíllinn frá Porsche, kem-
ur á götuna.
agas@mbl.is
Góður gangur hjá Porsche
Porsche býst við sölukipp þegar Mission E kemur á götuna en þar er um að ræða fyrsta hreina, rafbíl Porsche.
Auknar tekjur og
meiri rekstrarhagnaður
Umferðaröryggi er meira í Noregi
en nokkru öðru ríki heims. Þriðja
árið í röð hreppa Norðmenn efsta
sætið í öryggismálum.
Í fyrra, 2017, biðu 106 manns bana
í umferðinni í Noregi. Jafngildir það
20 dauðsföllum á hverja milljón
íbúa, en svo lágu hlutfalli hefur ekk-
ert land náð fyrr eða síðar.
Frá þessu skýrir vegagerðin
norska en í næstu sætum eru Svíþjóð
með 25 dauðsföll á milljón íbúa,
Bretland og Sviss með 27, Holland
31 og Danmörk 32.
Í þessum löndum er að finna
öruggustu vegina. Hættulegastir
eru þeir í gömlu austantjaldsríkj-
unum. Þannig biðu 70 bana á hverja
milljón íbúa í Lettlandi í fyrra, 75 í
Póllandi, 80 í Króatíu, 82 í Serbíu, 96
í Búlgaríu og 98 í Rúmeníu.
agas@mbl.is
Frændur vorir eru öruggir undir stýri
Hvergi eru banaslys í umferðinni jafn hlutfallslega lá og í Noregi.
Umferðaröryggi mest í Noregi
Volkswagen hefur ákveðið að
ganga til móts við nýja tíma rafdrif-
inna bíla með því að endurhanna
táknmerki sitt.
Táknmerkið hefur öðru hverju
tekið smávægilegum og varfærn-
islegum útlitsbreytingum frá því
það kom til skjalanna á fjórða ára-
tug nýliðinnar aldar.
Síðast var hresst upp á merkið
2012 en nú er sagt, að nýja merkið
taki stakkaskiptum og verði ekki
„eins þýskt“ og áður, án þess að það
væri skýrt nánar.
Boðað er að nýtt merki verið
kynnt til sögunnar á næsta ári.
agas@mbl.is
„Merkilegar“ fréttir frá Volkswagen
VW breytir
táknmerkinu
Táknmerki Volkswagen hefur tekið breytingum við og við á tæplega 80 árum.