Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 12

Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is V anda þarf valið þegar kem- ur að því að kaupa raf- hleðslustöð fyrir heimilið eða vinnustaðinn. Ekki að- eins þarf að velja stöð með réttu eiginleikana, heldur borgar sig að velja framleiðanda sem má treysta og versla við íslenskan selj- anda. Vignir Örn Sigþórsson, við- skiptastjóri hjá Johan Rönning, seg- ir fyrirtækið hafa áttað sig á þessu þegar fyrirtækið hóf fyrst að selja rafhleðslustöðvar. „Við skiptum fljótlega um framleiðanda því stöðv- arnar virtust ekki ráða við íslenskar aðstæður og var þeim öllum skilað til okkar enda seldar með íslenskri neytendaábyrgð. Ef viðskiptavin- irnir hefði keypt sams konar hleðslu- stöðvar á stöðum eins og AliExpress þá sætu þeir uppi með tjónið.“ Johan Rönning selur í dag hleðslu- stöðvar í hæsta gæðaflokki frá franska framleiðendanum Schnei- der-Electric og svissneska tækniris- anum ABB, og hafa tækin gefið góða raun. Frá Schneider-Electric býður Rönning minni hleðslustöðvar fyrir heimili og vinnustaði, en frá ABB öfl- ugar hraðhleðslustöðvar sem ON hefur sett upp víðs vegar um landið. Það fer ekki fram hjá Vigni og kollegum hans að rafmagns- og tengiltvinnbílum fer fjölgandi í um- ferðinni og mikil eftirspurn er eftir hleðslustöðvum. „Um þetta leyti árs vill álagið í versluninni aukast enda tími húsfélagafunda og í mörgum fjölbýlishúsum langar íbúa að setja upp hleðslustöðvar.“ Vignir segir oftast nær einfalt að setja upp hleðslustöð fyrir eitt heim- ili, en það geti orðið flóknara í fjöl- býli þar sem hlaða þarf marga bíla samtímis. „Í heimahúsum þarf að leiða rafmagn frá töflu og út í hleðslustöð. Er hleðslustöðin oftast höfð utandyra, og algengt að raf- magnstaflan sé í bílskúrnum. Alla jafna er þá hægur vandi að festa stöðina á útvegg, og bora gat á vegg- inn til að leiða rafmagnsvírana í gegnum.“ Betra að velja öflugri hleðslustöð fyrir bíla framtíðarinnar Sölumenn Johan Rönning mæla með því við viðskiptavini að þeir kaupi hleðslutæki án snúru. Hleðslusnúra fylgir hverjum rafmagnsbíl, og á að passa á tengið á hleðslustöðinni, en ef snúran er sambyggð stöðinni er ekki víst að hún passi við alla bíla. „Það getur kallað síðan á meira um- stang ef fólk ákveður, nokkrum ár- um síðar, að fá sér rafmagns- eða tvinnbíl frá öðrum framleiðanda.“ Vignir segir líka vissara að fjár- festa í eins öflugri hleðslustöð og raf- magnstaflan ræður við. „Flestir raf- magns- og tvinnbílar í dag nota einfasa rafmagn, en ef búið er að tengja heimilið við þriggja fasa raf- magn þá erum að gera að kaupa þriggja fasa hleðslustöð. Ef stöðin er 16 amper þá getur hún, með einfasa rafmagni, veitt 3,7 kW hleðslu, en 7,4 kW með 32 ampera stöð. Á þriggja fasa rafmagni má þrefalda þessar tölur og fá 11 kW hleðslu með 16 am- perum og 22 kW með 32 amperum.“ Ekki þarf að hafa af því áhyggjur að hleðslustöðin sé of kröftug. „Það er bíllinn sem stýrir hleðslunni en ekki stöðin sjálf, svo ef hleðslugetan er t.d. 7 kW þá kemur ekki að sök þó að hleðslustöðin ráði við mun meira, en aftur á móti er fólk þá búið að búa í haginn fyrir næsta rafmagnsbíl heimilisins sem ætti væntanlega að hafa tæknina til að taka við meiri orku og hlaða sig hraðar.“ Hleðslustöðvar fyrir heimili og fjölbýli kosta frá 100 upp í 400 þús. krónur en Vignir segir að sparnaður vegna eldsneytiskaupa greiði fljótt upp þessa fjárfestingu. „Það þykir líka klárlega gera fasteignir sölu- vænlegri ef búið er að koma fyrir hleðslustöð, og því hægt að líta á hana sem dýrmæta viðbót við húsið.“ Fjölbýli þurfa aflstýringu Í fjölbýli kann að þurfa að gera sér- stakar ráðstafanir ef heimtaugin ræður ekki við að hlaða marga raf- bíla í einu. „Þær rafmagns- innstungur sem eru í bílakjöllurum eru yfirleitt inni á sömu grein og ljósin og þegar búið er að stinga 3-4 bílum í samband er hætt við að raf- magninu slái út vegna of mikils álags.“ Segir Vignir að í fjölbýli borgi sig að nota aflstýringu sem dreifir orkunni betur á kerfið og hægir á hleðslunni þegar álagið er mikið. „Aflstýringartölva er yfirleitt ómiss- andi enda þarf ekki margar 32 am- pera hleðslustöðvar til að ná upp í heildarstærð heimtaugarinnar í dæmigerðri blokk, og er þá eftir að draga frá orkunotkun vegna raf- tækja á heimilum fólks. Aflstýringin vaktar hvert orkan fer og dregur úr orkumagninu sem beint er á raf- hleðslustöðvarnar þegar þess er þörf en eykur aflið þegar kerfið leyfir.“ Aflstýringarbúnaðurinn getur líka haldið af nákvæmni utan um orku- notkun þeirra sem nota hleðslu- stöðvarnar. Íbúar geta t.d. haft sér- stakan lykil sem setur hleðslustöðvarnar í gang og byrjar aflstýringartölvan þá að mæla. Bún- aðurinn getur sent sjálfvirka skýrslu á gjaldkera húsfélagsins, eða til hús- félagaþjónustu hjá banka og sund- urliðað rafmagnsreikninginn eftir notendum. Ef húsfélagið ákveður að rukka ögn meira en kostnaðarverð fyrir hleðslu rafbíla þá má með því smám saman ná til baka kostn- aðinum við fjárfestinguna í hleðslu- stöðvunum og aflstýringartölvunni.“ Sama gildir með fyrirtæki, þar sem sett er upp aðstaða til að hlaða marga bíla, að aflstýring er nauðsyn- leg. Vignir segir hægt að koma upp kerfi sem rukkar hvern starfsmann eða viðskiptavin í hvert skipti sem hleðslustöðin er notuð. „En oft reyn- ist einfaldast og hagkvæmast að inn- heimta einfaldlega fast og hóflegt þjónustugjald, t.d. 500 kr. fyrir hverja hleðslu.“ Þarf ekki að vera flókið að setja upp rafhleðslustöð Morgunblaðið/Valli „Um þetta leyti árs vill álagið í versluninni aukast enda tími húsfélagafunda og í mörgum fjölbýlishúsum langar íbúa að setja upp hleðslustöðvar,“ segir Vignir Örn Sigþórsson. Margir bílar kalla á mikla orku. Stóru hraðhleðslustöðvarnar má finna víða um land og koma í góðar þarfir. Dýrara er að setja upp frístandandi hleðslustöð en að festa hana upp á vegg. Í fjölbýlishúsum er vissara að fjárfesta í aflstýringarbúnaði sem hægir á hleðslustöðvunum á þeim tímum þegar mikið álag er á rafkerfi hússins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.