Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 19

Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 19
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 19 stökkvið var svo tekið með hinni nýju kynslóð sem búin er 40 kWh rafhlöðu en hún skilar bílnum í raun 170-180 km á hverri hleðslu. Sú drægni ætti að laða enn fleiri kaupendur að framleiðslunni enda hafa margir haldið því fram að takmörkuð drægni rafbíla, ásamt mun lengri hleðslutíma en það tekur að dæla elds- neyti á tank, valdi því að það kjósi enn sem komið er fremur að knýja bíla sína jarð- efnaeldsneyti en rafmagni. Þegar bílaáhugafólk beið þess að ný kynslóð Laufsins yrði kynnt til sögunnar gengu þær sögur fjöllunum hærra að framleiðandinn hygðist jafnvel bjóða upp á 60 kWh rafhlöðu í dýrari útgáfum bílsins. Nissan hefur ekkert gefið út um það hvort Laufið verði nokkru sinni búið svo stórri rafhlöðu. Hins vegar bendir flest til að fyrirtækið muni kynna rafbíl til sög- unnar með slíkri rafhlöðu, einhvern tíma á árinu 2019. Hvort það verði Lauf eða enn ný tegund verður að koma í ljós. Enn kynnir Laufið nýja tækni En Laufið er ekki aðeins orðið langdrægara en áður og hefðbundnara í útliti. Hin nýja kynslóð er búin ýmiss konar tækni sem jafnt og þétt er að ryðja sér til rúms á markaðnum og þá býr bíllinn einnig yfir sérstöðu sem vekur verulega eftirtekt. Við reynsluakstur var afskaplega fróðlegt að kynnast hinum svokallaða E-pedala sem bíllinn er nú búinn. Með tilkomu hans reynir Nissan að draga úr notkun tveggja fótstiga við akst- urinn. Með einföldum hætti má koma bílnum í þá stillingu að aflgjöfin virki í senn sem aflgjöf og bremsa. Þegar inngjöfinni er sleppt brems- ar bíllinn nokkuð ákveðið þannig að í allt að 80% tilvika þarf ekki að stíga á hina hefð- bundnu bremsu. Þegar E-pedalanum er sleppt hleður bíllinn inn á rafhlöðuna og hægir á hon- um þar til hann stöðvast algjörlega. Á það bæði við um það þegar honum er ekið áfram sem og í bakkgír. Þarna stígur Nissan forvitnilegt skref sem í raun var að hálfu stigið með hinni svo- kölluðu B-stillingu í gírstöng fyrri kynslóðar Laufsins. Sú stilling er enn til staðar en með henni má með einföldum hætti virkja rafmót- ora bílsins til þess að hægja á honum og hlaða um leið inn á hann. Þeir sem vanist hafa þeim búnaði eiga oft erfitt með að venjast því þegar sest er undir stýri í öðrum bílategundum, og búnaðarins nýtur ekki við. Auk E-pedalans er bíllinn einnig búinn tækni til þess að leggja með sjálfvirkum hætti í stæði og er sá búnaður kærkominn mörgum þeim sem þykir óþægilegt að smokra bílnum í þröng stæði, m.a. við verslunarmiðstöðvar. Þá er bíllinn einnig búinn svokölluðu Propilot- kerfi sem auðveldar akstur, ekki síst í mikilli umferð. Þá heldur bíllinn réttri vegalengd í næsta bíl, heldur sér innan akreina og stöðvar einnig þar sem þess gerist þörf. Svakalegur kraftur í léttu Laufi Þótt Nissan Leaf teljist til svokallaðra smábíla er hann rúmgóður að innan. Þá vekur sérstaka eftirtekt að skottplássið er mjög ríflegt eða 405 lítrar. Það sem gerir bílinn hins vegar sér- staklega spennandi er sú staðreynd að hann er feikilega kraftmikill. Myndu jafnvel einhverjir segja of kraftmikill, ekki síst þegar tekið er af stað á blautu eða hálu malbiki. Því ræður m.a. sú staðreynd að orkan fer samstundis út í framhjólin og engir eru gírarnir. Í fyrri kynslóð, rétt eins og þeirri sem nú hefur verði kynnt, er svokallaður „ECO“-takki sem hægt er að nota til þess að draga úr afli bílsins og auka þar með drægni hans. Dregur það um 70% úr aflinu. Í fyrri kynslóð forðaðist maður eins og heitan eldinn að hafa bílinn á þessari stillingu, enda varð hann silalegur og leiðinlegur í akstri þegar henni var beitt. Nýi bíllinn sem er um 150 hestöfl samanborið við um 107 hestöfl í fyrri útgáfum, virkar „ECO“- stillingin mun betur og minnir krafturinn sem hún tryggir helst á venjulegan fjölskyldubíl sem ekki þarf að sýna mikla takta á götunum. Eftir sem áður er bíllinn á hinni hefðbundnu stillingu mun skemmtilegri og gefur sprækum sportbílum ekkert eftir. Svipað og samkeppnishæft verð Það vakti nokkra athygli þegar BL kynnti verðlista fyrir nýju kynslóðina. Þá kom í ljós að verðið hefur lítið sem ekkert hækkað frá fyrri útgáfu, þrátt fyrir mun meiri búnað og meiri drægni. Þannig er hægt að fá Visia-útgáfu bíls- ins á tæpar 3,7 milljónir króna. Fyrir 300 þús- und króna uppfærslu má fá Acenta útgáfu sem er mun betur búin, m.a. NissanConnect kerfi 7 tommu skjá í mælaborði sem sannarlega er saknað í ódýrustu útgáfunni. Þessi útgáfa er einnig búin bakkmyndavél sem margir telja ómissandi búnað í dag. Þá er Acenta einnig bú- inn 16" álfelgum í stað 16" stálfelga sem fylgja með ódýrustu útgáfunni. Á rafbílum skyldi allt- af ekið á álfelgum enda skiptir þyngdarmun- urinn á þeim búnaði sköpum þegar kemur að því að hámarka drægni bílanna. Þriðja útfærslan nefnist svo N-Connecta, sem kostar tæpar 4,2 milljónir. Þar fer bíllinn að njóta sín fyrir alvöru. Hann er búinn myndavélakerfi og hreyfigreiningu ásamt ár- vekniskerfi fyrir ökumann. Segja má að í þess- ari útgáfu sé bíllinn fyrst farinn að sýna á spilin gagnvart þeirri sjálfvirknivæðingu sem fram- undan er í bílaheiminum. Þá er N-Connecta einnig búinn 17" álfelgum og skyggðum rúðum. Í heitari löndum skiptir sá búnaði máli til að draga úr orkunotkun við loftkælingu. Hér á landi tryggja dökkar rúður einfaldlega sport- legra yfirbragð. Flaggskipsútgáfa Laufsins er Tekna og er hann í raun hlaðinn aukabúnaði. Hann er m.a. leðurklæddur, búinn sjálfvirkum birtu- og regnskynjara, er búinn heimreiðarlýsingu og sjálfvirku hættuljósi. Enn um sinn verða áhugasamir þó að bíða eftir þessari útgáfu enda mun framleiðsla hennar hefjast nú um mitt árið. Stýrishjólið er skemmtilegt og leðurklætt með bláum saumi sem kallast á við grillið og lista á ytra byrði bílsins. Ökumaðurinn er fljótur að tileinka sér aðgerðastýrið sem er einfaldara í notkun en virðist í fyrstu. Ljósabúnaðurinn á Laufinu er sportlegur og mun betur heppnaður en á fyrri kynslóð. Það á bæði við um framenda bílsins en ekki síður afturendann. Jafnvel hörðustu töffarar gætu sætt sig við útfærsluna sem nú sver sig í ætt við Micra, X-Trail og Pulsar. Þótt Laufið teljist til smábíla er það afar rúmgott og það fer vel um farþega bæði í fram- og aft- ursætum. Með einföldum hætti má fella niður aftursæti til að auka skottplássið sem er talsvert fyrir. Í VISIA-útfærslunni er ekki snjallskjár í mælaborði en öðrum tækjabúnaði er komið haganlega fyrir. Ræsihnappurinn er á heppilegri stað en í fyrri útfærslum. Þótt rafbílar séu að verða algengari á götunum og að nýjasta kynslóðin af Laufinu hafi nú þegar selst í nærri 300 eintökum hér á landi á örfáum vikum, hefur tekið langan tíma að þróa tæknina að baki þessum bílum. Þannig kynnti Nissan fyrsta hreina rafbílinn til sögunnar í árslok 1997 og bar hann heitið Altra. Þann bíl framleiddi fyrirtækið í fjögur ár og komust aðeins um 200 eintök á göturnar. Þá gerði Nissan einnig tilraunir með svokallaðan hypermini sem framleiddur var í afar takmörk- uðu upplagi og settur á göturnar í Japan og í Kaliforníu um svipað leyti og Altra leit dagsins ljós. Það var svo ekki fyrr en árið 2009 sem fyrsti tilraunabíllinn, sem síðar varð Nissan Leaf, var opinberaður, og hefur sú þróun nú leitt af sér nýja kynslóð sem selst eins og heitar lummur víða um heim.Til dagsins í dag hafa yfir 300 þúsund Lauf verið seld á heimsvísu og gerir það tegundina þá langsamlega mest seldu með- al rafbíla í heiminum. Margra ára þróun að baki Nissan Altra var sannarlega ekki mikið fyrir augað en ruddi þó mikilvæga braut í átt til rafvæðingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.