Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 13

Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 13
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 13 landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Ekkert lántökugjald við fjármögnun rafbíla Betri kjör við kaup á vistvænum bílum 50% afsláttur af lántökugjaldi við fjármögnun vistvænna bíla Danska stjórnin hefur séð að sér og hyggst end- urskoða þá ákvörðun sína að hætta fjárhags- legum ívilnunum til kaupenda rafdrifinna bíla. Ástæðan fyrir hughvarfinu er að sala vist- vænna bíla hrundi í Danmörku þegar fyrri íviln- anir runnu sitt skeið á enda, að sögn forsætis- ráðherrans Lars Løkke Rasmussen. „Fyrir hendi eru skattaívilnanir vegna rafbíla og ræða mætti hvort þær ættu að vera burðugri. Það útiloka ég ekki,“ sagði Rasm- ussen í viðtali við danska fjölmiðla. Hann bætti við að ræða þyrfti málið í samhengi við áform ríkisstjórnarinnar um að auka neyslu á hreinni orku á kostnað annarra orkugjafa frá og með næsta hausti. Sala rafbíla í Danmörku hefur hrunið frá því stjórn Rasmussens afnam niðurgreiðslustyrki til rafbílakaupa. Hún nam tæplega 5.000 eintök- um árið 2015 en aðeins um 700 bílum í fyrra. Þar sem dísilbílar eru fallnir í ónáð í flestum Evrópuríkjum í framhaldi af útblásturshneyksl- inu, sem kennt er við Volkswagen, fer í dag fram umræða í Danmörku um undir hvers kon- ar bíla skuli ýta og hverja ekki. Ríkisstjórnin hefur sætt gagnrýni fyrir grautarlegar ákvarðanir um niðurskurð skrán- ingargjalda sem hafa nær eytt hvötum til kaupa á vistvænum bílum. Ríkisstjórnin situr svo uppi með nýjan vanda þar sem flokkur sósíal- demókrata, sem er í stjórnarandstöðu, náði frumkvæði í umræðunni í síðustu viku með því að heita því að banna sölu dísilbíla frá og með 2030 vinni flokkurinn þingkosningarnar á næsta ári, 2019. agas@mbl.is Danir áforma að veita ívilnanir að nýju Danir eru að skoða að taka u-beygju og létta aftur kaupin á vistvænum bílum á ýmsa vegu. Lokið hefur verið við gerð tveggja kílómetra langs „rafmagnsvegar“ í Svíþjóð, svonefnds eRoadArlanda, eða þjóðvegar númer 983. Þessi svonefndi vinnandi vegur gerir kleift að hlaða rafbíla á ferð. Hafist var handa við vegargerðina skammt frá Stokkhólmi í október, 2017. Er henni nú lokið og kveikt hefur verið á veginum. Í fyrra- haust hófst akstur á rafknúnum vörubíl milli Arlanda-flugvallar og póstmiðstöðvarinnar PostNord í Rosersberg. Vörubíllinn var upphaflega hlaðinn með gamla laginu, þ.e. settur í samband við hleðslu- staur. Núna er hægt að hlaða hann er hann ek- ur um rafmagnsveginn. Lætur hann tengibún- að síga niður í spor í veginum sem hefur að geyma rafleiðnirauf í malbikinu. Kippist hún svo upp í enda hins rafmagnaða vegarkafla. Það athyglisverða við búnaðinn er að hann á að geta rukkað ökumann fyrir rafmagnið sem hann hleður upp í bílinn hverju sinni. Meginmarkmiðið með eRoadArlanda – og öðrum verkefnum sem sænska vegagerðin vinnur nú að – er að rafknúin farartæki verði búin að leysa af hólmi bíla með brunavélar frá og með 2030. Til að byrja með verður eRoadArlanda nokkurs konar tilraunavegur því honum er ætlað að auka á vitneskju og reynslu sem á svo að nýtast þegar kemur að frekari ákvarð- anatöku um uppbyggingu og rafvæðingu stærri og lengri vega í Svíþjóð. Segja mætti að þetta langa ferðalag hæfist með tveggja kíló- metra rafvegi. agas@mbl.is Rafmagnsvegur í gagnið í Svíþjóð Ljósmynd/eRoadAr Tilraunavörubíllinn hleður upp raforku á ferðinni í gegnum tein sem tengist rauf með hleðslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.