Fréttablaðið - 23.06.2018, Síða 2
Veður
Suðaustlæg átt í dag, um 5-13 m/s
og rigning um landið sunnan- og
vestanvert, hvassast við suðvestur-
ströndina. SJÁ SÍÐU 36
HM 2018 „Þetta eru leiðinleg úrslit,“
sagði Aron Einar Gunnarsson,
fyrirliði íslenska landsliðsins, eftir
svekkjandi 0-2 tap fyrir
Nígeríu í Volgograd í gær.
Íslendingar þurfa nú ekk-
ert minna en sigur í loka-
leik riðilsins gegn topp-
liði Króatíu og verða að
treysta á hagstæð úrslit í
leik Argentínu og Nígeríu.
Vonbrigðin með niður-
stöðuna leyndu sér ekki
í leikslok, enda höfðu
margir verið bjartsýnir á möguleika
Íslendinga gegn Nígeríu. Íslenska
landsliðið hefur þó sýnt það að þeir
eru bestir undir pressu, svo ekkert er
ómögulegt.
Í lok fyrri hálfleiks var fátt sem
benti til þess að Nígeríumenn væru
líklegir til stórræðanna í þeim seinni.
Þeir höfðu ekki átt skot á markið né
skot í áttina að því þegar flautað var
til leikhlés. Strákarnir okkar höfðu
átt sex tilraunir þar af tvær á ramm-
ann.
Gylfi Þór Sigurðsson fékk fínt færi
en skot hans var laust og svo átti
Gylfi gott skot úr aukaspyrnu en
færið langt og markvörður Nígeríu í
litlum vandræðum með það. Þó fyrri
hálfleikurinn hafi heilt yfir verið ris-
lágur þá virtist íslenska liðið vera
með undirtökin og líklegri aðilinn
til að skora.
Það var mikið kjaftshögg á 49.
mínútu þegar Nígeríumenn fengu
óvænt skyndisókn eftir hornspyrnu
Íslendinga. Heimir Hallgrímsson
þjálfari og Aron Einar voru sammála
um að það hafi verið ólíkt Íslend-
ingum. Ahmed Musa tók frábær-
lega á móti fyrirgjöf Victors Moses
og kláraði upp í þaknetið. 1-0 og
Ragnar Sigurðsson lá óvígur eftir að
hafa fengið þungt hnéspark frá Musa
í höfuðið og skurð á hnakkann.
Skömmu síðar þurfti Ragnar að
yfirgefa völlinn, ekki skiptingin sem
Heimir hefur viljað gera í þessari
stöðu. Heimir viðurkenndi eftir leik
að markið hefði breytt leiknum.
Í fast að því grimmúðlegri hita-
svækju í Volgograd fór að draga af
íslenska liðinu þegar leið á hálfleik-
inn og mistökum fjölgaði. Liðinu
gekk illa að skapa sér færi og á 75.
mínútu var því refsað á ný. Musa
stakk Kára Árnason af, lék á Hannes
í markinu og skoraði.
„Ég vildi að það hefði verið meiri
orka í liðinu, það er erfitt að spila
í þessum hita en ég ætla að hrósa
okkar strákum fyrir dugnað og
vinnusemi og það sáu allir að þeir
reyndu og reyndu,“ sagði Heimir í
leikslok, að vonum svekktur.
Íslendingar fengu þó vítaspyrnu
og vonarglætu með aðstoð VAR-
myndbandsdómgæslunnar á 83.
mínútu en Gylfi Þór brenndi af. Svo
bregðast krosstré sem önnur tré.
Tankurinn tómur í hitanum. Bret-
arnir á netinu töluðu um að ísmenn-
irnir væru að bráðna og sú líking var
ágæt.
„Það fór mikil orka í leikinn og
einnig gegn Argentínu. Nú þurfum
við að safna liði og orku og vinna
Króatíu og það er bara staða sem er
ekkert sérstaklega góð, eins og þeir
eru að spila í dag. En við munum
gefa allt í þann leik og sjá hvert það
fer með okkur. Nú er ekkert annað
að gera en að rífa sig í gang og gera
betur,“ sagði Heimir Hallgrímsson.
mikael@frettabladid.is
Vonbrigði í Volgograd
Við þurfum að safna orku, rífa okkur í gang og vinna Króatíu í lokaleiknum
segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari eftir svekkjandi 0-2 tap fyrir Nígeríu
á HM. Fyrra mark Nígeríu breytti leiknum og gerði íslenska liðinu erfitt fyrir.
Á valdi tilfinninganna
Fjöldi fólks kom saman í gær við Vesturbæjarlaug og horfði á leik Íslands og Nígeríu. Spenna, sorg og ástríða var allsráðandi um land allt. Vonbrigðin
leyndu sér ekki á stuðningsmönnum Íslands á öllum aldri í lok leiks enda sárt tap staðreynd. Ljóst er að allt verður undir á þriðjudaginn klukkan
18.00 gegn Króatíu í leik sem Ísland verður að vinna og einnig að treysta á hagstæð úrslit í leik Argentínu og Nígeríu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Aron Einar Gunnarsson fyrirliði leiðir lið sitt inn á völlinn. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ég vildi að það hefði
verið meira orka í
liðinu.
Heimir Hallgríms-
son, landsliðs-
þjálfari Íslands
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
MENNING Iðnó hefur fengið rekstrar-
leyfi og opnað dyrnar á ný. René
Boonekamp rekstraraðili er hæst-
ánægður með að loks sé búið að
leysa úr málum, en Iðnó neyddist
til að skella í lás og hefur ekki getað
tekið á móti viðburðum frá því að
rekstrarleyfi var synjað í lok maí.
„Þetta er búið að vera erfitt tímabil
fyrir alla sem að málinu koma og við
höfum öll unnið hörðum höndum
við að koma þessu í lag. Luktar dyr
er það versta sem getur komið fyrir
svona perlu eins og Iðnó er,“ segir
Boonekamp.
„Þetta hefur sérstaklega bitnað
á þeim sem voru með bókaða við-
burði hér í húsi og hafa þurft að færa
sig annað. Okkar frábæru nágrannar
í Tjarnarbíói hafa verið þeim haukur
í horni. En þetta er mikill léttir.“
Ástæðuna fyrir lokun Iðnó segir
René vera þá að innra skipulag í
húsinu hafi ekki uppfyllt bygg-
ingarreglugerðir. Því var fengið
bráðabirgðaleyfi sem rann síðan
út í byrjun árs. Á meðan umsóknin
fyrir rekstrarleyfi var á flökti í kerfinu
skapaðist óvissa sem endaði með
synjun sem varð til þess að þurfti að
loka.
„Nú hafa þessi skilyrði verið upp-
fyllt og við höfum opnað á ný,“ segir
René. „Þessi fallega bygging er lista-
verk út af fyrir sig. Hún hefur skipt
um andlit nokkrum sinnum yfir
sitt lífsskeið, en mun alltaf viðhalda
ímynd sinni, líkt og hjá okkur. Við
sjáum Iðnó sem nokkurs konar fjöl-
menningarsetur og viljum hafa gott
jafnvægi milli einkasamkvæma og
annarra samkvæma. Við hlökkum
til að taka á móti fólki með frábærar
hugmyndir og drauma og hjálpa
þeim að vakna til lífsins í Iðnó.“ – gj
Iðnó opnað á ný
Rekstraraðilum er afar létt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
PLÚSINN Í vefútgáfu Fréttablaðsins
og á appinu er framhald á ítarlegri
umfjöllun íþróttafréttamanna
og ljósmyndara Fréttablaðsins í
Rússlandi um viðureign íslenska
landsliðsins við það nígeríska. Þar
er að finna fjölda mynda úr viður-
eigninni og af íslenskum stuðnings-
mönnum.
Á Plúsnum er að auki framhald
á úttekt helgarblaðs Frétta-
blaðsins á mis-
notkun róandi
og ávanabind-
andi lyfja sem
hefur færst í
aukana undan-
farið. Fjallað
er frekar um
a f l e i ð i n g a r
slíkrar neyslu,
sölu lyfjanna á svörtum markaði og
aðgerðir stjórnvalda. Allar greinar
á Plúsnum eru aðgengilegar á
frettabladid.is. – kbg
Meira HM-fjör á
Plúsnum í dag
2 3 . J Ú N Í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
3
6
-E
D
4
8
2
0
3
6
-E
C
0
C
2
0
3
6
-E
A
D
0
2
0
3
6
-E
9
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K