Fréttablaðið - 23.06.2018, Blaðsíða 66
Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið efna til sumarlest-
urs fyrir krakka. Verið velkomin í bókasafnið í ykkar hverfi, veljið eitt
pappírsdýr sem þið finnið á safninu, skrifið nafn, símanúmer, aldur
og nafn á áhugaverðri bók sem þið hafið lesið og takið þannig þátt í
lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf
og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
Arngrímur Kárason Regal og Snæ-
björn Kárason Regal eru tvíbur-
ar, nýorðnir átta ára. Arngrímur
segir að þeir séu ekki einu tvíbur-
arnir í sínum bekk. Þar séu líka tví-
burasystur.
Argrímur: En þær eru ekkert mjög
líkar. Við erum eineggja.
Snæbjörn: Ég er núna smá tvíeggja.
Arngrímur: Af því hann er með svo
mikið hár.
Snæbjörn: Já, núna finnst mér ég
ekkert líkur Arngrími. En þegar við
vorum nýfæddir þá vorum við alveg
eins (sýnir mér mynd).
Þeir eru í skemmtilegu spili þegar
ég heimsæki þá. Það heitir (held
ég) Hver er mesta krúttið og þar er
alls konar fróðleikur um dýr. Þeir
byrja strax að miðla honum.
Snæbjörn: Border collie hundur
er með krútteinkunnina 4. Það er
ágætt því hæsta einkunn er 5.
Arngrímur: (sýnir mér spjald)
Svona lítur ljón út, dálítið fallegt en
ljónsungar eru hárlausir og blindir
fyrstu mánuðina.
Snæbjörn: Kötturinn er mest stríð-
inn.
Arngrímur: Ég get ekki átt kött, því
ég er með ofnæmi fyrir köttum.
Snæbjörn: Pabbi líka en ég bara
pínku pons.
Fótboltaspilið er á borðinu, þeir
segjast oft vera í því og þeim þyki líka
gaman að fylgjast með HM.
Snæbjörn: Við vonum að Ísland
vinni.
Arngrímur: En við höldum með
Tottenham í ensku deildinni því
afi okkar var enskur og átti heima
þar þegar hann var ungur. Svo flutti
hann hingað.
Snæbjörn: En hann er ekki til núna,
hann dó í haust.
Hafið þið sömu áhugamál?
Arngrímur: Mest skemmtilegt hjá
mér er að teikna.
Snæbjörn: Já, mitt áhugamál er að
spila í tölvunni, við höfum tölvu-
daga. Líka að synda, ég er alltaf að
synda.
Ætlið þið að ferðast eitthvað í sumar?
Snæbjörn: Ég vildi svo mikið fara í
flugvél og í eitthvert annað land en
við ætlum að gera það næsta sumar,
þegar við erum níu ára.
Arngrímur: Núna förum við í
sumar bústaði í Úthlíð og á Akur-
eyri og húsið okkar í Vatnsdalnum.
Þangað förum við á hverju sumri.
Snæbjörn: Sundlaugin á Blönduósi
er rosa skemmtileg. Svo förum við
til ömmu á Stokkseyri. Þar gerast
margar draugasögur.
En hvað langar ykkur að verða þegar
þið verðið stórir?
Snæbjörn: Grínleikari.
Arnbjörn: Ég er ekki alveg viss.
Kannski tölvufræðingur.
Snæbjörn: Síðan langar mig að
verða geimfari líka – og grafískur
hönnuður, en einu sinni ætlaði ég
að verða forngripasafnari.
Stundum eineggja
– stundum tvíeggja
Tvíburarnir Arngrímur og Snæbjörn eru mikið
fyrir að teikna, synda og spila, meðal annars
tölvuleiki, þeir hafa sérstaka tölvudaga.
Snæbjörn og Arngrímur leika sér oft í fótboltaspilinu sínu. Nema hvað.
FréttAblAðið/Sigtryggur Ari
Svo förum við til
ömmu á StokkSeyri.
Þar geraSt margar drauga-
Sögur.
Lestrarhestur vikunnar er Tristan
Ernir, 9 ára, og kemur úr Borgar-
bókasafninu í Árbænum.
Hvernig bækur þykir þér
skemmtilegastar? Spennubækur.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Óvættaför, hún er
um hugrakkan strák.
Hvaða bók ætlarðu að lesa
næst? Óvættaför aftur.
Ef þú myndir skrifa bók, um
hvað væri hún? Skrímsli og
góðan mann.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Bangsi
vinur minn.
Ferðu oft á bókasafnið? Nei,
bara í skólanum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Gæludýrin mín, handbolti og
tölvur.
Í hvaða skóla ertu? Ártúnsskóla.
Lestrarhestur vikunnar:
Tristan Ernir
Hjaltason
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
307
„Þar fór í ver,“ sagði
Konráð. „Okkur liggur
á en þurfum að
komast í gegnum þetta
völundarhús fyrst.“
Hann dæsti og bætti við
vonsvikinn, „við verðum
of sein.“ „Of sein, of sein,“
sagði Kata pirruð. „Hvað
gerir til að vera aðeins of
sein?“ bætti hún við. En
Lísaloppa og Konráð voru
ekki sammála. Þau vildu
mæta á réttum tíma.
Getur þú hjálpað þeim að komast í gegnum völundarhúsið?
?
?
?
Tveir strútar hittust á víðavangi:
Af hverju ætli við strútar stingum
alltaf hausnum í sandinn?
Ég veit ekki um þig, en ég er að leita
að olíu.
Ég var sérstaklega heppinn að
fæðast ekki í Frakklandi.
Af hverju?
Ég kann ekki orð í frönsku.
Veistu af hverju allir strætisvagnar
stoppa í dag?
Nei, er verkfall hjá bílstjórunum?
Nei, nei, það þarf að hleypa fólkinu
inn og út.
Af hverju stalstu bílnum?
Ég var að verða of seinn
í vinnuna.
Nú, gastu ekki tekið
strætó?
Nei, ég hef
ekki meira-
próf.
Brandarar
2 3 . j ú n í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R34 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
krakkar
2
3
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
3
7
-1
4
C
8
2
0
3
7
-1
3
8
C
2
0
3
7
-1
2
5
0
2
0
3
7
-1
1
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
0
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K