Fréttablaðið - 23.06.2018, Side 30
Við leitum að öflugum fyrirliða til að stýra skrifstofu
landbúnaðar og matvæla en skrifstofan er ein þriggja fagskrifstofa
sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Skrifstofustjóri stýrir og ber ábyrgð á faglegu starfi skrifstofunnar.
Í því felst stjórnun og rekstur, áætlanagerð, stefnumótun, markmiðs-
setning og mat á árangri. Lögð er áhersla á nýsköpun og gott samráð
og samstarf við stofnanir og hagaðila á málefnasviðum skrifstofunnar.
Skrifstofan fer með málefni landbúnaðar, matvæla, velferð dýra og
viðskipta- og tollasamninga. Hún fer með samskipti við
Eftirlitstofnun EFTA og stofnanir Evrópusambandsins er varða þætti
er lúta að rekstri og þróun EES samningsins sem og samskipti við
Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) og OECD á sviði viðskipta og
framleiðslu landbúnaðarvara. Þá heyra málefni norrænu
embættismannanefndarinnar um landbúnað og matvæli undir
skrifstofuna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun skilyrði
• Stjórnunarreynsla áskilin
• Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra til árangurs
• Reynsla af stefnumótunarvinnu
• Metnaður, skapandi hugsun og vilji til að ná árangri
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
• Þekking og áhugi á opinberri stjórnsýslu
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð kunnátta í ensku
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar í embættið til fimm ára
frá 15. september 2018.
Upplýsingar um starfið veitir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri, (ks@anr.is)
í síma 545 9700. Áhugasamir einstaklingar, konur og karlar, eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ítarlegt kynningarbréf ásamt rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna
embættinu. Einnig ferilskrá og upplýsingar um starfsheiti. Umsókn skal skila rafrænt á netfangið
postur@anr.is eða með bréfi til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins Skúlagötu 4, 101
Reykjavík eigi síðar en 1. júlí 2018. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari
breytingum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir.
Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila
greinargerð til ráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum nr. 393/2012, um ráðgefandi nefndir
er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands. Um embættið gilda lög nr.
115/2011, um Stjórnarráð Íslands, og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins. Um launakjör fer eftir kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra.
Skrifstofustjóri á skrifstofu
landbúnaðar og matvæla
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 3 . J Ú N Í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
3
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
3
7
-4
6
2
8
2
0
3
7
-4
4
E
C
2
0
3
7
-4
3
B
0
2
0
3
7
-4
2
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K