Fréttablaðið - 23.06.2018, Qupperneq 47
Innkaupadeild
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Grandaskóli. Múrviðgerðir utanhúss II áfangi 2018,
útboð 14281.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Auglýsing um
skipulagsmál í
Hveragerði
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Kambalands í Hveragerði.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti þann 15. júní sl. að
auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kambalands, skv. 1.
mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið afmarkast
til suðurs og vesturs af Hringvegi (Suðurlandsvegi), til norðurs af
Hamrinum og til austurs af núverandi byggð við Smyrlaheiði,
Valsheiði, Kjarrheiði, Borgarhraun og Kambahraun. Tillagan felur
í sér þéttingu byggðar á suðausturhluta Kambalands þannig að
þar verði samtals 133 íbúðir í rað- og fjölbýlishúsum í stað 81
íbúðar í einbýlis-, par- og raðhúsum. Tillagan liggur frammi á
bæjarskrifstofunni Breiðumörk 20 og er til sýnis frá og með
mánudeginum 25. júní til mánudagsins 6. ágúst 2018. Tillagan
er einnig aðgengileg á heimasíðu Hveragerðisbæjar, www.
hveragerdi.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til þriðjudagsins
7. ágúst 2018. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal þeim
skilað á bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar Breiðumörk 20 eða á
netfangið: gfb@hveragerdi.is.
Skipulagsfulltrúinn í Hveragerði.
Lögð er fram til kynningar verkefnislýsing vegna
breytinga á svæðisskipulagi Suðurnesja
2008-2024 sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Breytingar felast í breyttri afmörkun
vatnsverndarsvæða í Reykjanesbæ og nýs
flugbrautarkerfis Keflavíkurflugvallar.
Verkefnislýsing er aðgengileg á skrifstofu SSS,
Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbær, á vefsíðu
www.sss.is/svaedisskipulag og á vefsíðum
sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Athugasemdum og ábendingum varðandi
lýsinguna má skila til skrifstofu SSS eða á
netfangið sss@sss.is. Æskilegt er að þær berist
fyrir 20. ágúst 2018.
Samvinnunefnd um Svæðisskipulag
Suðurnesja
Ólafur Þór Ólafsson, formaður
Breyting á svæðisskipulagi Suðurnesja
verkefnislýsing
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Byggingar á West-End svæði
Keflavíkurflugvallar
Rafkerfisbreytingar og endurbætur
á lagna-og loftræsikerfum. Útboð nr. 20787
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Landhelgisgæslu Íslands,
óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við rafkerfisbreytingar í
byggingum á West-End svæði Keflavíkurflugvallar og auk þess
breytingar á lagna og loftræsikerfum í byggingum nr. 1760,
1776 og 1777. Með útboðsgögnum fylgir verkáætlun verkkaupa
hvenær vinna getur hafist í byggingum, hvenær byggingar eiga
að vera tilbúnar til notkunar eða í nothæfu ástandi og hvenær
verklok eru. Í nokkrum byggingum verður verktaki að gera ráð
fyrir takmörkuðu aðgengi að tilgreindum byggingum á
ákveðnum tímabilum sbr. verkáætlun.
Fara þarf inn um vaktað hlið (Silfurhlið Isavia) til þess að
komast á verkstað og skulu starfsmenn verktaka hafa
aðgangsheimild inn á vinnusvæðið og fylgja öryggisreglum og
fyrirmælum Landhelgisgæslu Íslands, Isavia og þeim reglum
sem gilda á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Vettvangsskoðun verður haldin 27. júní 2018, kl. 10:00 að
viðstöddum fulltrúa verkkaupa. Nánari upplýsingar verða birtar
á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 31. mars 2020.
Útboðsgögn verða aðgengilega á vef Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is frá og með þriðjudeginum 26. júní 2018.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 15. ágúst 2018, kl. 11:00
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Kalmanstorg – Esjubraut
Gatnagerð og veitur
Akraneskaupstaður og Veitur ohf. óska eftir
tilboðum í gatnagerð og lagnir við Kalmanstorg
og í Esjubraut á Akranesi.
Skila skal verkinu fyrir 30. nóvember 2018.
Um er að ræða endurgerð Kalmanstorgs ásamt
gönguleiðum og stígum við torgið. Í Esjubraut
austan Kalmanstorgs skal lagfæra ójöfnur í
yfirborði götunnar og malbika báðar akbrautir.
Gera skal nýja göngu- og hjólastíg að norðanverðu
með götunni.
Fyrir Veitur ohf. skal endurnýja allar lagnir í
Kalmanstorgi og lagnir með Esjubraut að
norðanverðu.
Nokkrar stærðir:
Malbik á götur og stíga 5200 m2
Steyptar stéttar 800 m2
Fráveitulagnir 750 m
Kaldavatnslagnir 380 m
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi 26. júní
með því að senda tölvupóst á netfangið
akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur
nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmer
tengiliðs.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu
Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, 1. hæð,
fimmtudaginn 12. júlí 2018 kl. 11:05.
Veitingasala
í Íþróttamiðstöðinni Versölum
Kópavogsbær óskar eftir áhugasömum rekstraraðila til að taka að sér
veitingarekstur í björtu anddyri íþróttamiðstöðvarinnar.
kopavogur.is
Sá sem annast veitingarekstur þarf að:
• Bjóða upp á einfaldar og hollar veitingar sem henta starfsemi íþrótta mið
stöðvarinnar og samræmast lýðheilsustefnu sveitarfélagsins (s.s. salöt, safa,
búst og samlokur).
• Hafa reynslu og hæfni til að sinna veitingarekstri.
• Búa yfir góðri samskiptahæfni og vera fær um að sinna fjölbreyttum hópi gesta.
• Vera tilbúinn til að þróa reksturinn í takt við starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar
hverju sinni.
Íþróttamiðstöðin Versölum er opin alla virka daga kl. 6:30–22:00. Helgaropnun er
tvískipt. Á sumrin kl. 8:00–20:00 en að vetri til kl. 8:00–18:00.
Í íþróttamiðstöðinni er að finna Salalaug, fimleikafélagið Gerplu og líkamsræktarstöð
Reebok fitness. Árlega koma um 600.000 gestir í íþróttamiðstöðina. Rekstraraðili á
jafnframt kost á að semja við Kópavogsbæ um þjónustu við starfsfólk og aðra sem
njóta niðurgreiðslu á máltíðum.
Gert er ráð fyrir að rekstraraðili starfi með forstöðumanni Salalaugar að því að setja
nýjan brag á veitingaþjónustu og ná til nýrra markhópa auk þeirra sem fyrir eru.
Tekið er á móti öllum umsóknum með opnum huga.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Guðmund Halldórsson forstöðumann
Salalaugar, fyrir 5. júlí, í gegnum netfangið: gudmundur.h@kopavogur.is
Pipar\TBW
A
\ SÍA
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 19 L AU G A R DAG U R 2 3 . J Ú N Í 2 0 1 8
2
3
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
3
7
-2
D
7
8
2
0
3
7
-2
C
3
C
2
0
3
7
-2
B
0
0
2
0
3
7
-2
9
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
0
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K