Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 2

Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 2
Veður Hvöss norðvestanátt fram eftir degi og rigning á norðausturhorninu, en mun hægari og léttir til sunnan og vestan til. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast suðaustanlands, en svalara á Norður- og Austurlandi. sjá síðu 28 Pollarnir spila af krafti Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i Ferðaþjónusta Aukið eftirlit með heimagistingu hefur skilað 75 nýskráningum á einni viku. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráð- herra ferðamála, og Þórhólfur Hall- dórsson, sýslumaður á höfuðborgar- svæðinu, samþykktu þann 27. júní síðastliðinn að auka við mannafla hjá embætti sýslumanns með það fyrir augum að efla eftirlit með skráningum heimagistinga. Um var að ræða samning sem kveður á um 64 milljóna króna fjárveitingu til embættisins. „Níutíu daga reglan þarf að opnast til framkvæmda og þá þarf fólk að skrá sig. Þannig getum við spilað eftir reglunum,“ segir Þór- dís Kolbrún í samtali við Frétta- blaðið. Öllum þeim sem leigja íbúð í skammtímaleigu er gert að sækja um rekstrarleyfi, en undan- tekning er gerð ef leigja á út fast- eign í minna en níutíu daga á ári, þó skylda sé að skrá slíka starfsemi í gegnum vef sýslumanns. „Það er ósanngjarnt gagnvart lög- legum rekstri að menn komist upp með að spila ekki eftir reglunum. Ég batt miklar vonir við þetta sam- starf við sýslumann og vænti þess að við myndum sjá stóraukinn fjölda skráninga heimagistingar og því er það mjög gleðilegt að þetta sem komið er hafi gerst á svona skömmum tíma,“ segir hún og bætir við að áfram verði skoðað hvernig bæta megi umgjörð gistist- arfsemi. „Við höldum áfram að skoða málefni tengd gististarfsemi með öðrum ráðuneytum, skattinum og öðrum aðilum stjórnkerfisins sem hafa það sameiginlega verkefni að móta heildstæða umgjörð og eftir- lit með heimagistingu.“ Um fjögur hundruð ábendingar um leyfislausar heimagistingar voru á borði sýslumanns þegar ákveðið var að auka eftirlitið. Starfsfólki sem annast eftirlitið var fjölgað úr þremur í ellefu en ríkisstjórnin taldi þess þörf í ljósi fjölgunar heima- gistinga. Slíkar gistingar hafa sótt mjög í sig veðrið að undanförnu, og þá einna helst í gegnum leigu- vefinn Airbnb. Aðeins hefur hægt á vexti tekna vegna útleigu íbúða á Airbnb en á fyrstu þremur mán- uðum þessa árs voru tekjurnar fjórir milljarðar, samanborið við þrjá milljarða króna í fyrra. Reykjavík er sú höfuðborg í Vestur-Evrópu sem er með næstflestar Airbnb-skrán- ingar miðað við höfðatölu, á eftir Lissabon í Portúgal. Áætlað er að um sex þúsund íbúðir séu í útleigu á airbnb, þar af um 1.500 til 2.000 í stöðugri útleigu, að því er fram kemur í skýrslu Íbúðalánasjóðs. sunnak@frettabladid.is Eftirlit með Airbnb skilað fjölda skráninga Aðeins rétt rúm vika er síðan eftirlit með heimagistingum hér á landi var aukið. Nýjar skráningar eru 75 talsins og búist er við að þeim muni fjölga jafnt og þétt. Ráðherra útilokar ekki frekari aðgerðir og vill móta heildstæðari umgjörð. Þórdís Kolbrún ætlar að halda áfram að skoða gististarfsemi hér á landi og hyggst fá önnur ráðuneyti að borðinu. Fréttablaðið/Sigtryggur ari Það er ósanngjarnt gagnvart löglegum rekstri að menn komist upp með að spila ekki eftir reglunum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar VísInDI Hópur belgískra vísinda- manna við Háskólann í Ghent hefur skráð afleiðingar loftslagsbreytinga með því að horfa á myndskeið af hjólakeppni í Flæmingjalandi í norð- urhluta Belgíu í aprílbyrjun á tíma- bilinu 1981 til 2016. Fyrir 1990 voru næstum engin tré á leið keppenda laufguð. Eftir 1990 hafa trén laufgast æ fyrr en meðalhitinn hefur hækkað um 1,5 gráður á svæðinu frá 1980. Stjórnandi rannsóknarinnar bendir á að vissar trjátegundir dafni betur þegar þær laufgast snemma. Hins vegar varpi trén skuggum á nærumhverfið í lengri tíma. Það geti haft áhrif á aðrar jurtir og dýr. Blóm sem vaxa undir trjánum blómstri kannski ekki ef þau fá ekki næga birtu. Afleiðingarnar geti orðið þær að skordýr fá ekki hunangslög úr blómunum. Röskun verði sem sagt á vistkerfinu. – ibs Hjólakeppni sýnir breytingar á loftslaginu Veður Líkur eru á að veðrið á suð- vesturhorni landsins muni ekki batna fyrr en í fyrsta lagi seinni hluta mánaðarins. Veðrið í júní var einkar óhagfellt íbúum höfuð- borgarinnar og nærsveita á meðan veðurguðirnir hafa svo sannarlega hugsað hlýlega til íbúa á Norður- og Austurlandi. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofunni, segir lægðirnar koma upp að landinu nánast í áætl- unarferðum og bera með sér kalt loft og vætutíð á suðvestanverðu landinu. „Ef við horfum á suðvestur- hornið þá verður þetta svona áfram inn í júlímánuð. Það verður svolítið þannig næstu tvær vikur,“ segir Óli Þór. Meðalhiti í júní var 8,7 gráður eða 0,4 gráðum undir meðaltali áranna 1961 til 1990, og nærri tveimur gráðum undir meðaltali síðustu tíu ára. Ekki hefur verið eins kalt í júnímánuði síðan 1997 og þá hefur aðeins sex sinnum mælst meiri rign- ing í Reykjavík í júnímánuði. Einn- ig mældust afar fáar sólarstundir í Reykjavík og hefur sólskinið ekki verið minna síðan árið 1914. – sa Áfram bið eftir betra tíðarfari regnhlífar eru algeng sjón í höfuð- borginni. Fréttablaðið/SteFán 8,7°C var meðalhitinn í júní. Um tvö þúsund strákar eru mættir til Akureyrar til að taka þátt á hinu árlega N1-móti í knattspyrnu. Alls munu 188 lið etja kappi á mótinu sem stendur fram á laugardag. Mótið er nú haldið í 32. sinn og er alltaf jafn vinsælt. Leikgleðin skein úr augum strákanna í gær. Fréttablaðið/auðunn 5 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M t u D a G u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 2 -1 8 F C 2 0 5 2 -1 7 C 0 2 0 5 2 -1 6 8 4 2 0 5 2 -1 5 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.