Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 4

Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 4
Reykjavík „Ég fagna því að það sé verið að ræða saman og taka stöð- una á þessum málum. Það er löngu tímabært. Við þurfum skýrar og ein- faldar reglur sem farið er eftir um hvernig þetta eigi að vera. Í gegnum tíðina hefur þetta verið svolítið stjórnlaust,“ segir Benóný Ægisson, formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur, um vinnu við nýja ferðamálastefnu borgarinnar. Að sögn Örnu Schram, sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, hafa undan- farnar vikur verið stigin fyrstu skref- in í vinnu við nýja ferðamálastefnu borgarinnar. Liður í þeirri vinnu var samráðsfundur með íbúum sem fram fór á þriðjudagskvöld en fram undan er meðal annars samráðs- fundur borgarinnar með aðilum í ferðaþjónustu. Nýja stefnan mun leysa eldri stefnu frá 2011 af hólmi. „Eins og allir sjá hefur ferðaþjónustan vaxið mjög á þeim árum sem liðin eru og tímabært að móta nýja sýn og skilgreina betur nýjar áskoranir og finna leiðir til að mæta þeim. Við viljum stuðla að enn betri sátt milli borgarbúa og ört vaxandi ferða- þjónustu,“ segir Arna. Benóný bendir á að miðborg Reykjavíkur sé stærsti ferðamanna- staður landsins. „Það kreppir mest að okkur, íbúum miðborgarinnar. Við erum að missa unga fólkið héðan því það hefur ekki lengur efni á að búa hér. Það er kominn tími til að friða miðborgina sem íbúða- hverfi,“ segir Benóný. Hann segir nauðsynlegt að sam- ræða eigi sér stað milli íbúa, ferða- þjónustunnar og borgarinnar. Dæmi um fyrirmynd að því hvernig eigi að vinna hlutina sé takmörkun á umferð hópferðabíla í miðborg- inni sem samþykkt var á síðasta ári. „Þarna unnu ferðaþjónustan og íbúar saman að tillögum og svo kom stýrihópur frá borginni inn í málið. Við þurfum að skoða fleiri hluti með þeim gleraugum. Ég er á því að með samráði getum við gert þetta þannig að við getum öll verið hér. Þetta er ekki stórt svæði og það þarf ekki mikið að breytast til að það verði varla hægt að búa hér,“ segir Benóný. Arna segir áskorun felast í því að tryggja góða sambúð milli ferða- þjónustu og borgarbúa. Meðal þeirra þátta sem íbúar nefni í því samhengi sé mikilvægi hreinlætis, sorphirðu og þrifa á götum. Einn- ig hafi ýmsir áhyggjur af einsleitri þjónustu og verslun í miðborginni og mögulegum neikvæðum áhrifum heimagistingar. „Þetta er víðfeðm stefna en við viljum hafa hana raunsæja. Henni mun fylgja aðgerðaáætlun og inn- leiðingaráætlun. Borgarstjórn þarf auðvitað að samþykkja stefnuna en við vonumst til að þetta klárist næsta vetur.“ sighvatur@frettabladid.is Tími kominn til að friða miðborgina sem íbúðahverfi Unnið er að gerð nýrrar ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar sem leysa á stefnu frá 2011 af hólmi. Formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur segir löngu tímabært að setja skýrar reglur um sambúð ferðaþjónust- unnar og íbúa borgarinnar. Áskorun að tryggja góða sambúð milli ferðaþjónustunnar og borgarbúa. Frá samráðsfundi borgarinnar með íbúum vegna vinnu við nýja ferðamálastefnu. Benóný Ægisson, formaður Íbúa- samtaka miðborgar Reykjavíkur, segir nauðsynlegt að íbúar, ferðaþjónusta og borgin tali saman. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR DÓMSMÁL Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í fyrradag lögmann í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa dregið sér rúmar 53 milljónir í starfi sínu sem skiptastjóri dánarbús. Fjármunina nýtti hann til reksturs lögmannsstofu sinnar og eigin nota. Brotin stóðu yfir frá 2013 til 2016. Lögmaðurinn játaði brot sitt ský- laust fyrir dómi og bar við áfengis- og vímuefnafíkn sem hann hafi glímt við á þessum tíma. Hann hefur látið af lögmannsstörfum og var litið til þess við ákvörðun refsingar. Það var metið honum til refsiþyngingar að um stór- felld og ítrekuð brot var að ræða í opinberu starfi sem ollu erfingjum búsins fjártjóni. Maðurinn var dæmdur til að endurgreiða hið illa fengna fé. Þá var hann ekki sviptur lögmannsréttind- um sínum þar sem hann hafði þegar skilað þeim inn. – jóe Lögmaður dró sér fé úr dánarbúi DÓMSMÁL Landsdómur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykja- víkur um farbann yfir pólskum karlmanni til 14. desember næst- komandi. Maðurinn var upphaf- lega úrskurðaður í farbann þann 23. október í fyrra eftir að lögreglan hér á landi hafði haft afskipti af honum. Þegar hann var handtekinn kom í ljós að maðurinn var eftirlýstur í heimalandinu fyrir stórfelld fíkni- efnabrot. Lögreglu barst framsalsbeiðni frá pólskum yfirvöld í Bialystok í Póllandi í gegnum upplýsingakerfi Schengen ásamt evrópskri hand- tökuskipun. Maðurinn er eftirlýstur fyrir brot sem geta varðað allt að 12 ára fangelsi samkvæmt pólskum lögum. Hann er grunaður um með- ferð, vörslu og sölu og dreifingu á miklu magni af fíkniefnum. Þar á meðal einu kílógrammi af kanna- bisplöntum og -efnum og talsverðu magni af amfetamíni. Maðurinn hefur verið búsettur hér á landi og kom hingað í atvinnu- leit en þar sem hann andmælti framsalsbeiðni pólskra yfirvalda og mál hans mun fyrirsjáanlega taka langan tíma í meðförum íslenskra stjórnvalda telur ríkissaksóknari nauðsynlegt að tryggja nærveru hans hér meðan framsalsmálið er til meðferðar. Ætla megi að hann reyni að flýja land. Á það féllst Landsdóm- ur líkt og héraðsdómur þar áður og sætir maðurinn því farbanni í hálft ár til viðbótar. – smj Pólverji áfram í löngu farbanni SLyS Tveir voru fluttir á slysadeild eftir bílveltu við Úlfljótsvatn á Þing- völlum á sjötta tímanum í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var köll- uð út á hæsta forgangi vegna slyssins en ekki hafa fengist upplýsingar um líðan hinna slösuðu. Skömmu áður hafði þyrlan verið kölluð út vegna konu sem lærbrotnaði í Reynisfjöru, en í ljósi alvarleika bílveltunnar var önnur þyrla send í Reynisfjöru. Alls var þyrlan kölluð þrisvar út í gær, en fyrsta útkallið var um hádegisbil vegna veikinda. – sks Gæslan kölluð út í þrígang Maðurinn var eftirlýstur fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN Þyrla Landhelgisgæslunnar við Úlf- ljótsvatn. MyNd/LANdhELgISgÆSLAN kjaRaMÁL Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra og samninganefnd ríkisins þurfa að beita sér af alvöru í því verkefni að koma fram með nýjar og betri aðferðir við að semja við heil- brigðisstéttir um launakjör. Þetta segir Félag íslenskra hjúkrun- arfræðinga í yfirlýsingu vegna kjara- deilu ljósmæðra. Bjarni lét hafa eftir sér í vikunni að aðferðir Íslendinga við að ná fram niðurstöðu í kjara- deilum væru meingallaðar. Birting fjármálaráðuneytisins á launatölum ljósmæðra og samanburði við aðrar stéttir hefur vakið hörð við- brögð og er ráðherrann sakaður um að að hella olíu á eldinn í viðkvæmri og alvarlegri deilu. Hjúkrunarfræðingar segja tölurnar ekki gefa rétta mynd. „Ljósmæður eru að hætta störfum, uppsagnir hafa tekið gildi og eru fleiri uppsagnir yfirvofandi. Hjúkr- unarfræðingar hafa horft upp á það í lengri tíma að hjúkrunarfræðingar eru að hætta í starfi, fara í önnur betur launuð störf og sífellt fleiri hjúkrunarfræðinga vantar til starfa. Skrifaðar hafa verið skýrslur, m.a. af Fíh og Ríkisendurskoðun um málið þar sem lagðar eru til leiðir til að bregðast við en lítið ber á raunveru- legum aðgerðum til þess að breyta þessu ástandi. Það sama virðist vera að gerast hjá ljósmæðrum,“ segir í yfir- lýsingu hjúkrunarfræðinga. Minna þeir á að íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á að landsmenn njóti fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu og að ljósmæður eigi stóran hlut í þeim árangri sem náðst hafi á síðustu ára- tugum í ungbarna- og mæðravernd. „Þeim árangri er stefnt í hættu með aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda. Staðan er grafalvarleg og skorar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga því á fjármálaráðherra og samninganefnd ríkisins að ganga nú þegar til samn- inga við ljósmæður.“ – smj Segja aðgerðalaus stjórnvöld stefna árangri í voða guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh. FRÉTTABLAÐIÐ/VILhELM 5 . j ú L í 2 0 1 8 F I M M T U D a G U R4 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 2 -2 C B C 2 0 5 2 -2 B 8 0 2 0 5 2 -2 A 4 4 2 0 5 2 -2 9 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.