Fréttablaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 12
Ford Focus er fimur bíll enda þekktur fyrir frábæra aksturs- eiginleika og framúrskarandi gæði. Hann er ríkulega búinn, með fimm stjörnu öryggi, Bluetooth samskiptakerfi, leiðsögukerfi með Íslands- korti, nálægðarskynjurum, 8” snerti/litaskjá, My Key, upphitanlegri framrúðu o.fl. Aukabúnaður innifalinn: Dökkar rúður í farþegarými og málmlitur. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 FORD FOCUS FIMASTUR! ford.is Ford er frábær! Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford Focus FOCUS TREND EDITION 3.105.000 KR. TILBOÐSVERÐ: 2.795.000 KR. Ford_Focus_5x15_20180604.indd 1 04/06/2018 14:22 SVÍÞJÓÐ Sjö einstaklingar hafa látist í skotárásum í Svíþjóð síðastliðnar tvær vikur. Þar af létust þrír eftir skotárásir á þriðjudag og þriðju- dagskvöld. Einn lést í Malmö og tveir í Örebro en einn er í haldi lögreglu grunaður um verknaðinn í Örebro. Stefan Löfven, forsætisráð- herra landsins, segir í samtali við Aftonbladet ljóst að yfirvöld glími nú við aumkunarverða og kald- rifjaða morðingja, líkt og hann orðaði það þegar hann greindi frá ákvörðun sinni. Hann segir að stjórnvöld hafi veitt lögreglu allan þann stuðning sem óskað hafi verið eftir og meira til. Sé þörf á frekari úrræðum verði orðið við því. „Við höfum varið auknu fé í löggæslu en við munum halda áfram að gera það sem við þurfum,“ sagði Löfven. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sýna fram á að sam- félagið hefur að lokum alltaf betur en glæpamenn.“ Anders Thorberg ríkislögreglu- stjóri segir í samtali við sænska ríkissjónvarpið (SVT) að ástandið nú sé grafalvarlegt. Það hafi róast eftir hrinu skotárása í vor en nú sé aftur að verða mikil aukning. Hann segir að lögreglan beiti öllum sínum úrræðum og kröftum í þessum málum sem séu í algjörum forgangi. Morgan Johansson, dóms- og inn- anríkismálaráðherra, tekur í samtali við SVT undir með ríkislögreglu- stjóranum. Ástandið sé alvarlegt og styrkja þurfi lögregluna enn frekar. Það þurfi að nýta þær lagaheimildir sem til staðar séu. Hann bendir á að handtökum lögreglu hafi fjölgað milli ára. Málið snúist um að halda áfram að láta hart mæta hörðu. Johansson mun í kjölfar skotárás- anna í Malmö og Örebro funda með lögregluyfirvöldum til að ræða hvað ríkisstjórnin geti gert til að aðstoða lögregluna enn frekar. Hann segist sannfærður um að lögreglan geri allt sem í hennar valdi stendur. Tomas Tobé, talsmaður sænska hægriflokksins Moderaterna í lög- gæslumálum, gagnrýnir hins vegar ríkisstjórnina og segir aðgerðir hennar ekki duga til. Hann segir Löfven forsætisráðherra sýna lin- kind í málinu. Nú sé ekki tími til að kalla eftir upplýsingum um stöð- una, heldur þurfi að koma fram til- lögur sem skerpi á viðurlögum gegn glæpagengjum. Hægriflokkurinn leggur til að refsingar glæpagengja verði tvöfald- aðar og að símhleranir veði notaðar í auknum mæli í baráttunni gegn þeim. Tobé segir ljóst að ríkisstjórn- inni hafi mistekist í þeirri baráttu. Það sé allt of auðvelt fyrir gengin að fá til liðs við sig ungmenni og komast upp með mildar refsingar. sighvatur@frettabladid.is Sænsk stjórnvöld hafa áhyggjur af tíðum skotárásum í landinu Sjö einstaklingar hafa látist í skotárásum í Svíþjóð undanfarnar tvær vikur. Stjórnvöld segja ástandið mjög alvarlegt og þessi mál eru í algjörum forgangi hjá sænsku lögreglunni. Málin varða flest uppgjör glæpagengja. fréttablaðið/EPa Sænska ríkisstjórnin og lögregluyfirvöld ræða til hvaða aðgerða sé hægt að grípa vegna fjölda skotárása í landinu undanfarið. Sjö hafa látist í árásum síðast- liðnar tvær vikur. Ríkis- lögreglustjórinn segir ástandið grafalvarlegt. TAÍLAND Björgunaraðilar leggja nú allt kapp á að kenna taílensku fót- boltastrákunum, sem hafa verið fastir í helli í norðanverðu landinu síðastliðna 12 daga, sund og köfun. Flóknar aðgerðir standa nú yfir við að koma strákunum heilum á húfi úr hellinum. Meðal annars er um 1,6 millj- ónum lítra af vatni dælt úr hell- inum á hverri klukkustund. Reuters fréttstofan hefur eftir Prawit Wong- suwan aðstoðarforsætisráðherra að ef komi til þess að flóð réni og vatns- magnið í hellinum minnki nógu mikið verði reynt að koma strák- unum út á skjótan hátt. – sar Strákarnir læra sund og köfun Við erum að glíma- við aumkunarverða en kaldrifjaða morðingja. Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar BreTLAND Efni sem notað var til að eitra fyrir pari í Amesbury á Eng- landi er sama eitrið og notað var gegn rússneska gagnnjósnaranum Sergei Skripal og dóttur hans Yuliu í mars síðastliðnum. Frá þessu greindi breska lögreglan á blaða- mannafundi í gærkvöld. Parið fannst meðvitundarlaust í húsi í bænum og hefur lögregla staðfest að um hafi verið að ræða Novichok- taugaeitur. Ekki er vitað um tilefni árásarinnar, að því er fram kom á blaðamannafundinum. Parið er í lífshættu. – bsp Taugaeitri beitt á breskt par lögregla boðaði til blaðamanna- fundar seint í gærkvöld vegna árásarinnar. fréttablaðið/EPa 5 . J ú L Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U r12 F r é T T I r ∙ F r é T T A B L A Ð I Ð 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 2 -3 B 8 C 2 0 5 2 -3 A 5 0 2 0 5 2 -3 9 1 4 2 0 5 2 -3 7 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.