Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 14
Sjá nánar á
Fréttablaðið+
Lengri umfjöllun má
lesa á frettabladid.is.
Einhver stórkostlegasta náttúrusmíð á Íslandi er Stórurð við rætur Dyrfjalla á Héraði. Þarna er að finna grettistök sem eru á stærð við heilu húsin, en inn á milli leynast spegilsléttar tjarnir þar sem vatnið hefur sérkennilegan
sægrænan blæ. Ólíkt Dyrfjöllum, sem sjást víða að,
er Stórurð falinn gimsteinn sem flestir hreinlega
keyra fram hjá á leið sinni austur á Borgarfjörð
eystri og Víkur. Engu að síður er ekki flókið að
komast í Stórurð gangandi og eru nokkrar leiðir í
boði, allar greiðfærar. Algengast er að ganga hring
sem hefst og endar við Vatnsskarð eystra, Héraðs-
megin, en að uppgöngustaðnum er aðeins hálftíma
keyrsla frá Egilsstöðum. Þetta er um 16 km ganga
og ágætt að taka heilan dag til að njóta hennar.
Stígarnir eru stikaðir og á leiðinni býðst frábært
útsýni yfir Njarðvík og upp í Ytra-Dyrfjall, en ekki
síður yfir Úthérað og Héraðsflóann. Upplifunin
að koma að björgunum í Stórurð, sem eru eins
og risavaxnir legókubbar sem fljóta á sægrænu
jökulvatni, er engu lík. Talið er að þessi stóru
mosavöxnu björg hafi borist niður úr Dyrfjöllum
með skríðandi jökli eða hlaupi af einhverju
tagi. Græna vatnið er jökul bráð úr jöklum í
hlíðum Dyrfjalla sem skapa ómótstæðilegt
baksvið Stórurðar. Það er ekki hægt annað
en heillast af náttúrufegurðinni í Stórurð og
ótrúlegt að slík náttúruperla skuli hvorki
vera friðland né tilheyra þjóðgarði. En
sjón er sögu ríkari.
Mosavaxnir
risakubbar
Inni á milli bjarganna í Stórurð er jökulbráðið vatn sem hefur einkennandi sægrænan blæ. FréttablaðIð/SIgtryggur arI
Horft til Dyrfjalla frá Úthéraði. Stórurð er í urðardal undir sjálfum dyrunum. FréttablaðIð/SIgtryggur arI
gengið ofan af
Súlum niður í
urðardal.
FréttablaðIð/
ÓlaFur Már
grettistökin
í Stórurð eru
mörg hver á
stærð við fjöl-
býlishús.
FréttablaðIð/
ÓlaFur Már
Náttúrulega Ísland
Upplifunin að
koma að
björgunum í
Stórurð, sem
eru eins og
risavaxnir
legókubbar
sem fljóta á
sægrænu
jökulvatni, er
engu lík.
tómas guðbjarts-
son læknir og
náttúruunnandi
og Sigtryggur ari
Jóhannsson ljós-
myndari fjalla um
sérstæðar perlur í
íslenskri náttúru.
Hér má sjá urðardal og Stórurð ofan af Dyrfjöllum. FréttablaðIð/ÓlaFur Már
5 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R14 F R é T T I R ∙ F R é T T A B l A ð I ð
0
5
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
2
-2
7
C
C
2
0
5
2
-2
6
9
0
2
0
5
2
-2
5
5
4
2
0
5
2
-2
4
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K