Fréttablaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 17
Stokkhólmur – Það var 1766 að Svíar settu sér stjórnarskrá sem mælti fyrir um frelsi fjölmiðla
og upplýsingaskyldu stjórnvalda.
Svíar skildu það fyrr en aðrar þjóðir
að réttur almennings til upplýsinga
og gegnsæis er óaðskiljanlegur frá
öðrum mannréttindum. Í Svíþjóð
er þessi meginregla kennd við „sól-
skinslög“. Ekki færri en 30 önnur
lönd hafa sett svipuð ákvæði í sínar
stjórnarskrár. Þær eiga það sam-
merkt allar nema ein að hafa verið
endurskoðaðar eftir aldamótin 2000.
Nýja stjórnarskráin frá 2011-2013
sem Alþingi heldur enn í gíslingu
geymir í þessum anda mikilvæg ný
ákvæði um upplýsingarétt og frelsi
fjölmiðla, ákvæði sem er ætlað að
hjálpa til við að vinda ofan af þeirri
leynd og spillingu sem loða við opin-
bera stjórnsýslu í landinu. Tilefnin
eru mörg og brýn þótt hér verði tvö
dæmi látin duga.
Mál 1: Kjararáð
Fyrir nokkru var frá því sagt að Kjara-
ráð vill ekki afhenda Fréttablaðinu
fundargerðir sínar, en blaðið óskaði
í nóvember 2017 eftir aðgangi að
fundargerðunum. Úrskurðarnefnd
um upplýsingamál hefur nú eftir
langt þóf fellt úr gildi synjun ráðsins
á beiðni blaðsins. Málið er brýnt þar
eð bæði Samtök atvinnulífsins og
ASÍ hafa sakað Kjararáð um að taka
rangar ákvarðanir sem ógna vinnu-
friði og auka hættuna á kollsteypu á
vinnumarkaði. Hvað gerði Alþingi?
Það lagði Kjararáð niður með manni
og mús. Enn er óvíst hvort hægt
verður að fá úr því skorið sem fram
fór á fundum Kjararáðs. Þetta gæti
ekki gerzt í Svíþjóð og ekki heldur
á Íslandi hefði Alþingi staðfest nýju
stjórnarskrána 2013 eins og því bar.
Mál 2: Seðlabankinn
Fundargerðir Seðlabanka Íslands
eru ekki aðgengilegar almenningi
og þá ekki heldur blaðamönnum.
Það er bæði óheppilegt og óeðlilegt
þar eð í lögum um Seðlabankann
(28. gr.) segir: „Bankaráð hefur eftirlit
með því að Seðlabanki Íslands starfi
í samræmi við lög sem um starf-
semina gilda.“ Fulltrúum stjórnmála-
flokkanna í bankaráðinu ber því
lagaskylda til að fylgjast með því að
starfsmenn bankans fari að lögum.
Þar eð fundargerðum banka-
ráðsins er haldið leyndum getur
fólkið í landinu ekki vitað hvort eða
hvernig bankaráðsfulltrúar hafa rækt
þessa lagaskyldu. Málið er brýnt m.a.
vegna þess að vitað er um lögbrot í
bankanum. Kastljós RÚV greindi frá
því 2016 að hátt settur starfsmaður
bankans hefði viðurkennt fyrir
sérstökum saksóknara 2012 að hafa
rofið trúnað 2008. Málið var talið
hafa fyrnzt 2010 þar eð lög kveða
á um fyrningu á tveim árum þegar
ekki liggur þyngri refsing við broti
en eins árs fangelsi. Maðurinn starfar
enn í bankanum eins og ekkert hafi
í skorizt.
Einnig er vitað um a.m.k. tvö
meint lögbrot í bankanum sem
Kastljós RÚV greindi einnig frá 2016,
annars vegar gálaust lán Seðla-
bankans til Kaupþings 2008 og hins
vegar birtingu Morgunblaðsins 2017
á útskrift af símtali seðlabankastjóra
og forsætisráðherra þar sem ráðherr-
ann segir um lánveitinguna: „Ég býst
við því að við fáum þessa peninga
[75 milljarða króna] ekki til baka“.
Seðlabankinn neitaði árum saman
að upplýsa almenning og Alþingi um
símtalið og bar við bankaleynd þótt
hún komi málinu ekki við. Morgun-
Grugg eða gegnsæi?
Þorvaldur
Gylfason
Í dag blaðið birti útskriftina í nóvember
2017 án þess að vitað sé hvernig
blaðið komst yfir svo vandlega
varðveitt leyniskjal né heldur hvort
viðeigandi yfirvöld hafi rannsakað
gagnalekann. Málið er brýnt m.a. af
því að hátt settur embættismaður
fékk fangelsisdóm 2014 fyrir að
stuðla að birtingu leynilegs gagns úr
banka og einnig af því að Stundin
hefur mátt una því mánuðum saman
að mega ekki birta lekin bankagögn
sem virðast eiga erindi við almenn-
ing. Sá gagnaleki var rannsakaður í
þaula.
Það er sjálfstætt álitamál hvernig
taka beri á bankaráðsfulltrúum ef
ljóst þykir að þeir kunni að hafa van-
rækt skýrar lagaskyldur sem á þeim
hvíla.
Jafnræði fyrir lögum
Fólkinu í landinu hefur engin
skýring verið gefin á því hvers
vegna sumir bankamenn hafa sætt
rannsókn og fengið dóma fyrir
gáleysisleg útlán og meðfylgjandi
umboðssvik og aðrir ekki. Engin
skýring hefur heldur verið gefin á
því hvers vegna sum trúnaðarbrot í
bönkum hafa sætt rannsókn og leitt
til fangelsisdóma og önnur ekki.
Dómskerfið í landinu mun ekki vaxa
í áliti almennings ef lögbrot eru látin
viðgangast án þess að lögbrjótum sé
gerð refsing fyrir brotin skv. lögum,
t.d. vegna slakrar framfylgdar laga
eða jafnvel vegna þess að yfirvöld
dragi taum vel tengdra lögbrjóta og
vanvirði þannig þá frumreglu réttar-
ríkisins um jafnræði fyrir lögum.
Réttarvitund almennings stafar
hætta af refsileysi – þ.e. því að lögum
sé helzt ekki framfylgt þegar valds-
menn eða aðrir vel tengdir menn
eiga í hlut eins og ég lýsi í ritgerð
minni „Samstæð sakamál“ í Tímariti
Máls og menningar í febrúar sl.
569 6900 09:00–16:00www.ils.is
Opið er fyrir
umsóknir um
stofnframlög
Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta
húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og
eignamörkum við upphaf leigu. Stofnframlög eru
veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum.
Við mat á umsóknum er lögð sérstök áhersla
á eftirfarandi þætti:
Nýbyggingar og ölgun leiguíbúða.
Íbúðir á svæðum þar sem þörf er fyrir leiguíbúðir
fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum.
Auk þess verður lögð áhersla á:
Hagkvæmar íbúðir hvað stærð og herbergja-
ölda varðar sbr. viðmiðunarstærðir.
Hagkvæmar aðferðir við íbúðabyggingar í því
skyni að lækka byggingarkostnað.
Íbúðir sem uppfylla þarfir íbúa á hverju svæði.
Íbúðir sem uppfylla mismunandi þarfir ólíkra hópa.
Að stuðla að ölbreyttri samsetningu íbúa og
félagslegri blöndun.
Viðmiðunarstærðir
Við úthlutun verður horft til þess að íbúðir séu að
jafnaði ekki stærri en eftirfarandi tafla segir til um:
Hámarksstærð
Fjöldi herbergja m.v. herbergjaölda
Einstaklingsíbúð 50 m²
2ja herbergja íbúð 60 m²
3ja herbergja íbúð 80 m²
4ra herbergja íbúð 95 m²
5 herbergja íbúð 110 m²
Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi
á heimasíðu sjóðsins. Umsóknarfrestur er til
og með 31. október 2018.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Íbúðalánasjóðs, www.ils.is.
Auglýst er eftir umsóknum fyrir árið 2018
um stofnframlög ríkisins til byggingar eða
kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr.
52/2016 og reglugerð nr. 555/2016.
Umsóknarfrestur:
31. október 2018
•
•
•
•
•
•
•
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 5 . j ú L Í 2 0 1 8
0
5
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
2
-1
D
E
C
2
0
5
2
-1
C
B
0
2
0
5
2
-1
B
7
4
2
0
5
2
-1
A
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K