Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 22
Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
atvinnukylfingur úr GR, hefur leik
á Thornberry Creek Classic-mótinu
í golfi í Oneida, Wisconsin í dag. Er
þetta fjórða helgin
í röð sem Ólafía
leikur á LPGA-
mótaröðinni en
hún rétt missti af
niðurskurðinum á
PGA-meistaramótinu
um síðustu helgi.
Er þetta annað árið
í röð sem hún leikur á
þessu móti en hún náði
niðurskurði í fyrra og
hafnaði í 36. sæti ásamt
öðrum kylfingum á tíu
höggum undir pari.
Fer hún snemma af
stað eða klukkan 7.41
að morgni til að staðar-
tíma og er í öðrum ráshóp mótsins.
Hefur hún leik á fyrsta teig og er
með Mina Harigae og Allison Emrey
í ráshóp en Ólafía ætti að kannast
við þær báðar. Lék hún um tíma
með Allison í Wake Forest í banda-
ríska háskólagolfinu en hún var í
ráshóp með Mina í Lotte meistara-
mótinu í apríl síðastliðnum. – kpt
Ólafía hefur leik
í Wisconsin
Handbolti Handboltamarkvörð-
urinn Aron Rafn Eðvarðsson er að
öllum líkindum á leið frá ÍBV til
þýska B-deildarliðins Hamburger
Sport-Verein. Aron Rafn sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að viðræður
hans við félagið væru komnar á
lokastig og í raun formsatriði að
binda alla lausa hnúta.
„Ég býst við því að skrifa undir hjá
þeim á næstu dögum. Það er hins
vegar ekkert í höfn enn og ég veit
það vel að hlutir geta verið fljótir
að breytast í þessum bransa. Eins og
staðan er hins vegar núna er aftur á
móti ekkert sem getur í komið veg
fyrir að ég verði orðinn leikmaður
liðsins öðrum hvorum megin við
helgina,“ sagði Aron Rafn þegar
Fréttablaðið kannaði stöðu mála á
félagaskiptum hans til þýska liðsins.
Hann staldraði ekki lengi við á
Íslandi en hann samdi við ÍBV síð-
asta sumar.
„Það var á stefnuskránni að taka
bara eitt keppnistímabil hér heima
og fara svo aftur út. Tímabilið gat
ekki gengið betur og það er gaman
að kveðja ÍBV sem þrefaldur meist-
ari og hafa verið valinn mikilvægasti
leikmaður úrslitakeppninnar var
góður bónus. Eftir erfiða byrjun á
leiktíðinni var gott hvernig málin
þróuðust hjá mér og að ég hafi
náð að bæta minn leik svo eftir var
tekið,“ sagði Aron.
Sofandi risi
Hamburger Sport-Verein hefur
gengið í gegnum miklar sveiflur
á síðustu árum. Liðið varð bikar-
meistari 2010, Þýskalandsmeistari
2011 og vann Meistaradeild Evrópu
2013.
Síðan lenti félagið í miklum fjár-
hagsvandræðum og eftir að hafa
barist í bökkum var það úrskurðað
gjaldþrota í desember árið 2015.
Félagið var í kjölfarið dæmt niður
í þriðju efstu deild. Næstu ár þar á
eftir fóru í endurskipulagningu á
rekstri félagsins og uppbyggingu á
leikmannahópi liðsins. Liðið vann
C-deildina í vor og mun þar af
leiðandi vera nýliði í B-deildinni á
næstu leiktíð.
„Ég hef engar áhyggjur af því að
það sé ekki allt í toppmálum hvað
fjármálin varðar hjá félaginu. Mér
skilst að það séu bæði fleiri og
öflugri bakhjarlar hjá félaginu en
þegar það fór á hausinn. Þá hafi
verið teknar skynsamlegri ákvarð-
anir hvað varðar útgjöld og boginn
ekki spenntur jafn hátt í leikmanna-
kaupum og launakostnaði. Ég er
bara mjög spenntur fyrir þessu og
vona að ég geti hjálpað liðinu að
komast í efstu deild sem er mark-
miðið hjá liðinu,“ sagði Aron Rafn
um stöðu mála hjá Hamburger
Sport-Verein.
Ef að líkum lætur verður Hambur-
ger Sport-Verein fjórða erlenda liðið
sem Aron Rafn leikur með, en þessi
uppaldi Haukamaður hefur áður
leikið með þýska liðinu SG BBM Bie-
tigheim, sænska liðinu Eskilstuna
Guif og danska liðinu Álaborg.
Aron Rafn er þriðji íslenski
markvörðurinn sem heldur út í
atvinnumennsku í sumar, en Ágúst
Elí Björgvinsson fór frá FH til Eskil-
stuna Guif. Þá söðlaði Björgvin Páll
Gústavsson um og gekk til liðs við
Skjern frá Haukum. Það eru góð
tíðindi fyrir íslenska landsliðið að
þeir íslensku markmenn sem hafa
séð um að verja mark liðsins undan-
farið verði allir á mála hjá erlendum
liðum á næsta keppnistímabili.
hjorvaro@frettabladid.is
Býst við að skrifa undir hjá
Hamburg á allra næstu dögum
Aron Rafn Eðvarðsson, sem varði mark ÍBV með miklum ágætum í Olísdeild karla í handbolta á síðustu
leiktíð, er kominn langt í viðræðum sínum við Hamburger Sport-Verein um félagaskipti til Þýskalands.
Aron Rafn stefndi að því að staldra stutt við hér heima og svo virðist sem það ætli að ganga eftir hjá honum.
Körfubolti Ísland mætir kunnug-
legum andstæðingi í undankeppni
EuroBasket 2021 en dregið var í
undanriðlana í gær. Með Íslandi í
riðli eru Belgía og Portúgal og fara
fyrstu leikirnir fram í september og
lýkur riðlakeppninni með leik Belg-
íu og Íslands ytra þann 24. febrúar
næstkomandi.
Virtist Craig Pedersen, þjálfari
landsliðsins, vera nokkuð bjartsýnn
á möguleika Íslands á að komast á
EuroBasket þegar hann ræddi fram-
tíð sína á dögunum.
Mætti Ísland liði Belgíu í undan-
keppni EuroBasket 2017 þar sem
liðin unnu sitt leikinn hvort en
Ísland hefur mætt Belgíu fimm
sinnum á síðustu þremur árum.
Lengra er síðan íslenska karla-
landsliðið mætti Portúgal eða sex-
tán ár en þá vann Ísland nauman
sigur á Portúgal ytra. – kpt
Belgía og
Portúgal með
Íslandi í riðli
Þjálfarateymið ætti að kannast við
belgíska liðið. Fréttablaðið/SteFán
aron rafn var valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins en góð frammistaða hans hjá ÍbV er að skila honum öðru tækifæri í atvinnumennsku. Fréttablaðið/ernir
Grindavík - Kr 2-1
1-0 Helga Guðrún Kristinsdóttir (28.), 2-0
Rio Hardy (29.), 2-1 Mia Annete Gunter (40.)
Selfoss - breiðablik 0-1
0-1 Selma Sól Magnúsdóttir (47.).
Stjarnan - FH 6-2
0-1 Jasmín Erla Ingadóttir (17.), 1-1 Telma
Hjaltalín Þrastardóttir (28.), 2-1 Telma
Hjaltalín (29.), 3-1 Telma Hjaltalín (40.), 4-1
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (52.), 5-1
Telma Hjaltalín (73.), 6-1 María Eva Eyjólfs-
dóttir (87.), 6-2 Marjani Hing-Glover (89.).
Pepsi-deild kvenna
Körfubolti Grindavík fékk góðan
liðsstyrk fyrir komandi tímabil í
Domino’s-deild karla í gær þegar
bakvörðurinn Sigtryggur Arnar
Björnsson samdi við liðið út næsta
tímabil.
Var hann einn af bestu leik-
mönnum deildarinnar í fyrra þegar
hann lék með Tindastóli en hann
hefur einnig leikið með Skallagrími
í efstu deild.
Hafa Stólarnir sótt góðan liðs-
styrk á undanförnum vikum en
Urald King, Brynjar Þór Björnsson
og Danero Axel Thomas hafa allir
gengið til liðs við Stólana.
Átti Sigtryggur stóran hlut í frá-
bærum árangri Stólanna á síðasta
tímabili þegar félagið vann fyrsta
titil sinn ásamt því að leika til
úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.
Var hann með 19,4 stig, 3,3 stoð-
sendingar og fjögur fráköst á þeim
30 mínútum sem hann fékk að
meðaltali.
Skilaði það honum sæti í íslenska
landsliðshópnum í vetur en hann
gat ekki tekið þátt í verkefninu
vegna meiðsla.
Mun hann leysa af hólmi Dag
Kára Jónsson sem yfirgaf Grindavík
á dögunum og samdi við uppeldis-
félag sitt, Stjörnuna. – kpt
Sigtryggur Arnar samdi við Grindvíkinga
Það var á stefnu-
skránni að taka eitt
keppnistímabil hér heima og
fara svo aftur út.
Aron Rafn Eðvarðsson
5 . j ú l í 2 0 1 8 f i M M t u d a G u r22 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
0
5
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
2
-4
A
5
C
2
0
5
2
-4
9
2
0
2
0
5
2
-4
7
E
4
2
0
5
2
-4
6
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
4
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K