Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 29

Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 29
Framhald á síðu 2 ➛ Landsmót UMFÍ F I M MT U DAG U R 5 . j ú l í 2 0 1 8 Kynning: Ungmennafélag Íslands, Skagafjörður Landsmót UMFÍ fer fram á Sauðárkróki dagana 12.–15. júlí. Eins og fyrri ár geta þátt- takendur keppt í fjölda íþrótta- greina auk þess sem ýmiss konar skemmtun og fróðleikur verður í boði fyrir keppendur og aðra fjölskyldumeðlimi. Landsmótið er sannkölluð íþróttaveisla og fastur liður í lífi margra íþróttamanna og fjölskyldna þeirra en mótið hefur þó gengið í gegnum gríðarlega miklar áherslubreytingar undan- farið ár að sögn Auðar Ingu Þor- steinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ. „Við kynnum nú í rauninni til sögunnar nýtt landsmót með nýjum áherslum. Landsmótið mætir bæði þörfum þeirra sem vilja keppa og þeirra sem vilja vera með og taka þátt. Helsta breytingin er sú að Landsmótið er opið öllum 18 ára og eldri og geta þátttakendur sett saman sitt eigið mót. Þeir geta keppt, látið vaða, prófað og fengið kennslu, leikið sér og skemmt sér því rúmlega 30 greinar eru í boði á mótinu og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Einfalt að taka þátt Auður segir Landsmótið vera miklu meira en íþróttamót. „Þetta er íþróttaveisla þar sem íþróttir verða í aðalhlutverki á daginn og skemmtun í góðum félagsskap ráðandi á kvöldin. Nú þegar liggur fyrir að Auddi Blö og Steindi munu stýra götupartíi á milli þess sem þeir prófa ýmsar íþróttagreinar. Svo munu bæði Páll Óskar og hljómsveitin Albatross halda uppi stuðinu og Geirmundur Valtýsson tryllir lýðinn í ekta skagfirskri sveiflu.“ Önnur áhersla á Landsmótinu er fólgin í því að einfalt er að setja saman lið í hverri grein. „Í flestum tilvikum eru aðeins 2–3 í hverju liði. Þá er leiktíminn í styttri kant- inum og því má búast við stuttum og hröðum leikjum. Það getur svo „Við kynnum nú í rauninni til sögunnar nýtt landsmót með nýjum áherslum,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. MYND/ERNIR Sannkölluð íþróttaveisla landsmót UMFí verður haldið á Sauðárkróki 12.–15. júlí. Mótið er skemmtileg samverustund fyrir fjölskyldur og vini þar sem hreyfing og íþróttir eru í forgrunni. Boðið er upp á keppni í rúmlega 30 greinum, bæði þekktum og nýjum, auk skemmtiatriða og fróðleiks. Kynningarblað 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 2 -3 6 9 C 2 0 5 2 -3 5 6 0 2 0 5 2 -3 4 2 4 2 0 5 2 -3 2 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.