Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 30

Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 30
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442 Skotfimi er vinsæl grein á Landsmótinu sem sífellt fleiri taka þátt í. Ungir og eldri keppendur fjölmenna í blakið sem er alltaf vinsæl íþrótt. Keppt er í rótgrónum íþróttum eins og glímu. MYND/UMFÍ Það sjást oft skemmtileg tilþrif hjá keppendum á öllum aldri. myndað skemmtilegar aðstæður og mikla spennu. Þátttakendur greiða aðeins eitt þátttökugjald sem er stillt í hóf til þess að sem flestir geti verið með.“ Fjöldi nýrra greina Mikil áhersla er lögð á nýjar íþróttagreinar og um leið nýjar og spennandi útfærslur á öðrum greinum. „Í ár verður keppt í fyrsta skipti hér á landi í nokkrum greinum. Þar má til dæmis nefna krolf og biathlon, fótboltapanna og margar fleiri. Ef einhverja dreymir um að hlaupa á strönd með Drang- ey í bakgrunni þá verður það að veruleika á Landsmótinu á Sauðár- króki. Þar að auki eru fjölmargar greinar tengdar ströndinni skag- firsku. Greinarnar eru svo margar að við hvetjum fólk til að kynna sér þær á vef okkar, landsmotid.is.“ Enn ein breytingin sem UMFÍ kynnir á Landsmótinu í ár er sú að afþreyingin á mótinu er meira hreyfitengd en áður. „Þar má nefna að á svæðinu verður 50 metra löng þrautabraut, fótboltapílukast, spikeball og alls konar þrautir og leikir fyrir alla fjölskylduna. Það er því upplagt að koma til Sauðár- króks í sannkallaða íþróttaútilegu.“ Auður segir Landsmótið sameina andlega, líkamlega og félagslega heilsu fólks. „Það sama á við um unglingalandsmótið sem er annar viðburður á vegum UMFÍ fyrir börn og ungmenni á aldrinum 11-18 ára og fer fram um verslunarmanna- helgina. Báðir þessir viðburðir skapa aðstæður þar sem auðvelt er að stunda heilbrigða lífshætti, efla vitund og vitneskju fólks ásamt því að skapa félagslega samveru og eftirminnilega upplifun.“ Betra samfélag Samfélagið hefur verið að þróast og þar eru íþróttir og hreyfing ekki undanskilin að sögn Auðar. „Fram- tíðarsýn UMFÍ er að mæta þörfum og bæta samfélagið. Þar af leiðandi þarf að taka tillit til breyttra þarfa fólks. Landsmótið var á sínum tíma einn af fáum íþróttaviðburðum sem í boði voru á Íslandi. En í dag er til fullt af flottum innlendum og erlendum íþróttaviðburðum þar sem afreksfólk er í fararbroddi. Grasrótin í ungmennafélagshreyf- ingunni vildi færa nálgunina yfir á breiðara svið svo fleiri gætu tekið þátt og haft gaman af því að hreyfa sig. Landsmótið er niðurstaðan af þeirri stefnumótun sem fór fram og á að stuðla að því að bæta sam- félagið með þátttöku fleira fólks í íþróttum.“ Hún bendir á að áherslur í alþjóðlegu samhengi séu að breytast hratt. Sama hvar stigið er niður sé val lykilorðið. „Fólk vill geta valið hvaða íþróttir það stundar, hvar það stundar þær, hvenær og hvernig. Við sjáum að hefðbundnar staðalímyndir eru alls staðar á undanhaldi. Við hlustum á fleiri og tökum tillit til þarfa þeirra. Íþrótta- og ungmennafélög eru mikilvægasti liðurinn í því þar sem grasrótarstarfið fer fram á þeirra vegum.“ Fólk nýtir sér tæknina í meiri mæli en nokkru sinni áður segir Auður. „Við sjáum til dæmis í lönd- unum í kringum okkur að e-íþróttir (rafrænar íþróttir) eru í mikilli upp- sveiflu en þar er til dæmis átt við íþróttir í tölvuleikjum. Við höfum ekki orðið vör við slíka þróun hér á landi og verður forvitnilegt að sjá hvernig málin þróast á Íslandi.“ Skemmtileg samverustund Auður ætlar að sjálfsögðu að taka þátt í Landsmótinu með fjölskyldu sinni og hlakkar mikið til. „Ég hef sett mér markmið um að prófa þrjár til fjórar íþróttagreinar. Vin- konur mínar úr íþróttunum í gamla daga eru orðnar mjög spenntar fyrir Landsmótinu og hafa sett saman lið í bæði brennó og strandblaki og skorað á maka sína til þátttöku í fleiri greinum. Þeir eru til dæmis búnir að búa til lið í knattspyrnu. Einhverjir ætla líka að skella hjólunum aftan á bílinn og taka þátt í götuhjólreiðum eða fjallahjól- reiðum. Utan þess geri ég ráð fyrir að koma að framkvæmd Lands- mótsins með Ómari Braga Stefáns- syni, framkvæmdastjóra mótsins, verkefnastjórunum Thelmu Knúts- dóttur og Pálínu Hraundal og öllum þeim frábæru sjálfboðaliðum sem hjálpa til við að halda Landsmótið, en mótshaldið er samstarfsverkefni UMFÍ, héraðssambandsins UMSS og sveitarfélagsins Skagafjarðar.“ Hún hvetur sem flesta til að taka þátt og skrá sig til leiks á lands- motid.is. „Landsmót UMFÍ mun halda áfram að þróast og verða skemmtileg samverustund fyrir fjölskyldur og vini þar sem hreyfing og íþróttir verða í forgrunni enda öflugur liður í forvarnarstarfi og bættri lýðheilsu þjóðarinnar.“ Ég hef sett mér markmið um að prófa þrjár til fjórar íþróttagreinar. Vin- konur mínar úr íþrótt- unum í gamla daga eru orðnar mjög spenntar fyrir Landsmótinu og hafa sett saman lið í bæði brennó og strand- blaki og skorað á maka sína til þátttöku í fleiri greinum. 2 KYNNINGARBLAÐ 5 . j Ú L Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RLANDSMót UMFÍ 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 2 -3 1 A C 2 0 5 2 -3 0 7 0 2 0 5 2 -2 F 3 4 2 0 5 2 -2 D F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.