Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 36
Skokk, sandhlaup og sjósund verða
meðal greina sem stunda má á
grænum svæðum mótsins.
Græn svæði víðsvegar um keppnissvæði Landsmóts UMFÍ verða öllum opin
þegar ekki fer þar fram keppni,
kennsla eða kynning. Mótsgestir
geta nýtt sér svæðin til leiks og
skemmtunar. Í dagskrá mótsins
eru svæðin merkt grænum lit.
Meðal greina sem merktar verða
grænu eru bandí, brennibolti,
fjallahjólreiðar og fótabilljard,
frisbígolf, körfubolti, krolf og
mínígolf, pútt, skokk, sandhlaup,
sjósund og margt margt fleira.
Landsmótið fer fram á Sauðár-
króki dagana 12. til 15. júlí. Á vef-
síðunni landsmotid.is er að finna
lista yfir keppnisgreinarnar og
grænu svæðin og upplýsingar um
hverja grein.
Leiktu þér
á Landsmóti
UMFÍ rekur ungmenna- og tómstundabúðir á Laugum í Dalabyggð yfir vetrar-
tímann. Búðirnar eru ætlaðar
nemendum í 9. bekk í grunnskóla
og þeim stendur til boða að dvelja
þar í fimm daga, frá mánudegi til
föstudags, við leik og störf.
Dvölin á Laugum á að hjálpa
unglingunum að styrkja félags-
færni sína, auka vitund þeirra
um umhverfi sitt og samfélag og
gera þeim grein fyrir mikilvægi
þess að lifa heilbrigðum lífsstíl.
Aðaláherslurnar eru á félagsfærni,
útivist, hreyfingu og menningu og
viðburðirnir eru í formi námskeiða
sem tengjast þessum meginstoðum
búðanna.
Ungmenna- og tómstunda-
búðirnar hafa verið reknar síðan
í janúar 2005 og árlega koma um
1.800 unglingar í búðirnar. Skóla-
stjórnendur geta pantað dvöl í
búðunum og það er alltaf opið
fyrir pantanir, en fyrstur kemur,
fyrstur fær.
Dvöl í búðunum kostar 25.000
krónur á mann veturinn 2018-
2019 og innifalið í því er dagskrá,
sem er yfirleitt milli 9.30 og 17 á
daginn, gisting, matur, drykkjar-
flaska og bolur.
UMFÍ er með
ungmennabúðir
Það er mikið stuð í ungmenna-
búðum UMFÍ. MYND/FACEBOOK
Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Sími 580 2500 | www.lotto.is
Íslensk getspá er í eigu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands,
Öryrkjabandalagsins og Ungmennafélags Íslands.
ÍSLENSK
GETSPÁ
ÞAÐ ER ALDREI AÐ VITA
Í HVAÐA ÍÞRÓTT BARNIÐ
ÞITT BLÓMSTRAR.
ÞESS VEGNA STYÐJUM
VIÐ ÞÆR ALLAR.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
0
1
7
8 KYNNINGARBLAÐ 5 . j ú L Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RLANDSMót UMFÍ
Fjölda áhugaverðra uppákoma og viðburða er að finna í dagskrá Landsmótsins.
Meðal annars verður boðið upp
á örfyrirlestra um ýmis málefni í
hádeginu alla mótsdagana. Hver
fyrirlestur hefst klukkan 12.15
og er aðeins fimmtán mínútur að
lengd. Fyrirlestrarnir fara fram í
húsi Frítímans.
Þá fer samhliða Landsmótinu
fram ráðstefna þar sem bæði inn-
lendir og erlendir fyrirlesarar flytja
erindi um lýðheilsu. Ráð stefnan
fer fram á föstudag milli klukkan
16 og 18 í húsi Frítímans.
Á sunnudaginn munu hesta-
menn fara hópreið um götur
bæjarins í fullum skrúða milli
klukkan 13 og 14.
Þeir sem ekki vilja missa af
HM í fótbolta geta horft á leikina
í HM-veitingatjaldinu alla
mótsdagana.
Upplýsingar um viðburði og greinar
er að finna á landsmotid.is
Áhugaverðir fyrirlestrar og spennandi dagskrá Landsmótsins
Hestamenn
munu fara
hópreið um
götur bæjarins á
sunnudaginn.
MYND/ANtON
BRINK
0
5
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
2
-3
6
9
C
2
0
5
2
-3
5
6
0
2
0
5
2
-3
4
2
4
2
0
5
2
-3
2
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
4
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K