Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 44

Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 44
 Þín eigin skrifborðskæling! Kæli-, raka- og lofthreinsitæki, allt í einu tæki. Kynningarverð aðeins kr. 37.227 m.vsk. Segðu bless við sköfuna og hitaðu bílinn með Webasto bílahitara – Webasto bílahitari -8° -6° -7° 0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 4 27.10.17 14:2 BÍLASMIÐURINN HF BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 567-2330 www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is Webasto Air Top olíumiðstöðvar í húsbíla, 2 - 5,5kW Verð frá kr. 166.000,- Njóttu þess að fara í sund / sjósund Verndaðu eyrun með Ear Band-It Ultra eyrnaböndum og eyrnatöppum Hannað af háls- nef- og eyrnalæknum Fyrirbyggjandi vörn gegn eyrnabólgu og nauðsynlegt fyrir þá sem eru með rör í eyrum eða viðkvæm eyru. Til í þremur stærðum. S - frá 1. til 3. ára M - frá 4. til 9 ára L - frá 10 ára og eldri ( fullorðnir ) Fæst í apótekum, Sundlaug Kópavogs, Útilíf, Heimkaup og barnavöruverslunum. Pakkinn inniheldur bæði eyrnatappa og eyrnaband. Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir Pantaðu tiltekt á appotek.is eða í síma 568 0990 Garðs Apótek - í leiðinni Fáðu lyfin send heim með póstinum Pantaðu sendingu á appotek.is Garðs Apótek - um land allt Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar Mark Mark úr víti Keflavík Fylkir Víkingur R. Breiðablik ÍBVKR Grindavík KA Valur Fjölnir FH Stjarnan Stjarnan Stjarnan Stjarnan StjarnanStjarnan Stjarnan Stjarnan Stjarnan Stjarnan Stjarnan 2 3 3 1 22 1 2 2 6 3 2 0 3 0 13 1 1 2 1 2 Stoðsending ✿ Ótrúlegur fyrri hluti móts Hilmars Árna Halldórssonar FÓtbolti Hilmar Árni Halldórsson var maður leiksins þegar Stjarnan vann 2-3 sigur á FH í Kaplakrika í Pepsi-deild karla á mánudaginn. Hann lagði fyrsta mark Stjörnunnar upp fyrir Brynjar Gauta Guðjónsson, jafnaði svo metin í 2-2 með skoti í slá og inn áður en hann skoraði sigur- markið með skoti beint úr auka- spyrnu. Það verður ekki annað sagt en að Hilmar Árni hafi átt frábæra fyrri umferð í Pepsi-deildinni. Hann er markahæstur með 12 mörk í 11 leikjum. Næsti maður, Steven Lenn- on hjá FH, er með sjö mörk. Þar að auki er Hilmar Árni búinn að leggja upp þrjú mörk fyrir samherja sína. Hilmar Árni hefur skorað í níu af 11 leikjum Stjörnunnar í Pepsi- deildinni og komið með beinum hætti að marki í 10 af 11 leikjum Garðbæinga. Eini leikurinn þar sem hann kom ekki að marki var 1-1 jafnteflið við Grindavík á Samsung- vellinum. Ef Hilmar Árni heldur uppteknum hætti í seinni umferðinni er líklegt að hann geri atlögu að markametinu í efstu deild. Nítján marka menn- irnir eru fimm talsins: Pétur Péturs- son, Guðmundur Torfason, Þórður Guðjónsson, Tryggvi Guðmundsson og Andri Rúnar Bjarnason. Enginn þeirra byrjaði af jafn miklum krafti og Hilmar Árni hefur gert í sumar. Pétur var með átta mörk eftir fyrstu 11 umferðirnar 1978, Guð- mundur 11 mörk 1986, Þórður níu 1993, Tryggvi átta 1997 og Andri Rúnar 10 2017. Þessi byrjun hjá Hilmari Árna er sú besta í efstu deild síðan Steingrímur Jóhannesson skoraði 14 mörk í fyrstu 11 umferð- unum fyrir ÍBV 1998. Hilmar Árni hefur einnig látið til sín taka í Mjólkurbikarnum. Í þrem- ur bikarleikjum Stjörnunnar í sumar hefur hann skorað tvö mörk og gefið tvær stoðsendingar. Mörkin í sumar eru því alls 14 og stoðsendingarnar fimm. Hilmar Árni hefur bætt sig í markaskorun á hverju tímabili síðan hann byrjaði að spila í Pepsi- deildinni 2015. Á fyrsta tímabilinu skoraði hann fjögur mörk fyrir Leikni R. sem féll. Hilmar Árni gekk þá í raðir Stjörnunnar. Hann skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuliðið í Pepsi- deildinni 2016 og 10 mörk í fyrra. Hann er þegar búinn að bæta sitt persónulega met í markaskorun og Stjarnan á enn eftir að leika 11 leiki í Pepsi-deildinni. Stjörnumenn voru lengi í gang og unnu aðeins einn af fyrstu sex leikjum sínum í Pepsi-deildinni. Þeir hafa hins vegar unnið fimm síðustu leiki sína og eru aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Vals. Varnar- leikur Stjörnunnar hefur ekki verið neitt sérstakur og aðeins Keflavík (20) og Fjölnir (19) hafa fengið á sig fleiri mörk en Garðbæingar (16). En Stjörnumenn hafa skorað langmest í deildinni; 27 mörk, átta mörkum meira en næstu lið. Hilmar Árni á þar stærstan hlut að máli og ef hann heldur uppteknum hætti í seinni umferðinni er ljóst að Stjarnan á möguleika á að vinna annan Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins. ingvithor@frettabladid.is Mögnuð fyrri umferð hjá Hilmari Árna Það þarf að fara 20 ár aftur í tímann til að finna dæmi um leikmann sem skoraði jafn mikið í fyrstu 11 umferðunum í efstu deild og Stjörnumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson í sumar. Hann er langmarkahæstur í Pepsi-deildinni. Markametið í efstu deild er í hættu annað árið í röð ef Hilmar Árni heldur áfram uppteknum hætti. FRéttABlAðið/eyþóR 5 . j ú l í 2 0 1 8 F i M M t U D A G U R24 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 2 -4 5 6 C 2 0 5 2 -4 4 3 0 2 0 5 2 -4 2 F 4 2 0 5 2 -4 1 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.