Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 52

Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 52
Þetta er langhlaup Þannig að Það gildir að gefast ekki upp ef manni finnst maður hafa eitthvað að segja. eftir sautján ár líður mér eins og ég sé loks að uppskera.Rósa Sigrún Jónsdóttir myndlistarkona er á leið á listahátíðina Art Stays í Slóveníu þar sem hún sýnir verk sitt Svelgir. Boðið kom í kjölfar þess að Svelgir var valið til sýninga á Arte Laguna Prize í Fen- eyjum fyrr á þessu ári, en þar sýndu rúmlega hundrað listamenn verk sín. Rósa hefur gert mikið af svo- nefndum svelgjum, stórum skúlp- túrum sem eru prjónaðir eða hekl- aðir, þeir urðu til árið 2015. „Þá var ég í Ketilhúsinu á Akureyri þar sem er stór salur og opið á milli hæða þannig að hægt er að standa á efri hæðinni og horfa niður í sal- inn sjálfan. Mig langaði til að gera þarna stóra innsetningu og sá fyrir mér form sem eru eins og svelgir í jöklum. Nokkrum mánuðum síðar fékk ég sýningarpláss og bjó til snið með formum sem voru víð efst og þrengdust niður á við. Ég fékk hóp handverkskvenna til liðs við mig og þær höfðu frjálsar hendur um lita- röðun og munsturgerð. Samstarfið skilaði fjórtán svelgjum, sumir voru allt að fjórir metrar að lengd.“ Svelgir í gömlu klaustri Svelgina hefur Rósa sett upp á fjór- um stöðum innanlands. Þeir eru einnig komnir í útrás, hafa verið á sýningum á Norður-Írlandi, í Fen- eyjum og halda nú til Slóveníu þar sem þeir verða til sýnis í gömlu klaustri. Listahátíðin stendur í eina viku en myndlistarsýningarnar standa fram í september. Rósa segir svelgina hafa vakið nokkra athygli. „Í myndlistarheim- inum er talsverður áhugi á á textíl. Þetta er listform sem á sér djúpar rætur og er hluti af menningararfi allra þjóða. Textíllinn er tímalaus en í nútímamyndlist er verið að teygja þanþol hans og sýna hann í nýju ljósi en um leið geta allir auð- veldlega tengt við hann.“ „Ég trúi á fegurðina,“ segir Rósa. „Það skiptir mig miklu máli að það sem ég bý til sé fallegt.“ Fegurðin er einmitt mjög áberandi í textíl- verkum sem hún hefur unnið og sýna íslenskar lækningajurtir. Þar á meðal er verk sem er blómabeð. „Ég vann það þannig að ég tók myndir af jurtum, safnaði litaprufum, heklaði jurtirnar og bjó til blóma- beð. Ég er hrifin af hinum fíngerða, veikburða styrk sem jurtir búa yfir,“ segir hún. Innsetning í Amsterdam Rósa fór tiltölulega seint í listnám, var 35 ára þegar hún fékk inngöngu í Myndlista- og handíðaskólann og útskrifaðist 2001. „Þetta er lang- hlaup þannig að það gildir að gef- ast ekki upp ef manni finnst maður Ég trúi á fegurðina rósa sigrún jónsdóttir sýnir verk sín á listahátíð í slóveníu. gluggainnsetning í amsterdam í vetur og sýning í flórens. Rósa sýnir verk sín víða um heim og er á leið á listahátíð í Slóveníu. FRéttAblAðIð/SIgtRygguR ARI Rósa sýnir svelgi eins og þessa í Sló- veníu. Mynd/ Páll áSgeIR áSgeIRSSon Hér blandar Rósa saman teikningu og útsaumi. FRéttAblAðIð/ SIgtRygguR ARI Heklaðar jurtir og grös skapa þetta fallega blómabeð. Mynd/PekkA eloMAA Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is hafa eitthvað að segja. Eftir sautján ár líður mér eins og ég sé loks að uppskera,“ segir hún. T.I.N.A. Art Prize er verkefni sem tengir saman listamenn og gallerí en listamenn senda myndir af verkum sínum og dómefnd velur síðan lista- menn til samstarfs. Rósa hefur tvisv- ar sótt um þátttöku og fékk jáyrði í bæði skiptin. Í desem ber fer hún til Amsterdam og gerir innsetningu í tólf glugga í listagalleríi. „Þetta eru djúpir gluggar sem snúa út að torgi og sumir þeirra eru tvisvar sinnum þrír metrar. Þetta verður heilmikil vinna sem ég er byrjuð á og saman- stendur af hekluðum íslenskum lækningajurtum.“ Ýmis önnur verkefni eru á döf- inni, þar á meðal þátttaka í samsýn- ingu í Listasafni Árnesinga í ágúst. Sú sýning er tileinkuð Halldóri Ein- arssyni útskurðarmeistara og er efnt til samtals milli verka hans og verka nokkurra núlifandi listamanna. Þar sýnir Rósa textílskúlptúra en hún vinnur einnig að verkum þar sem hún blandar saman blýantsteikn- ingu og útsaumi og þar koma lækn- ingajurtir enn við sögu. Í febrúar á næsta ári sýnir hún í Gróttu og vorið 2019 er sýning í galleríi í Flórens. Margvísleg önnur verkefni eru einn- ig fram undan innan lands og utan. Heimasíða Rósu er: rosasigrun. com. 5 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R32 M e n n I n G ∙ F R É T T A B l A ð I ð 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 2 -2 C B C 2 0 5 2 -2 B 8 0 2 0 5 2 -2 A 4 4 2 0 5 2 -2 9 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.