Fréttablaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 54
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
www.artasan.is
Fæst í næsta
apóteki og helstu
stórmörkuðum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í
morgun?
Tannlæknar mæla með GUM tannvörum
GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
5. júlí 2018
Tónlist
Hvað? Krummi og hinir Alpafuglarnir
Hvenær? 20.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Hljómsveitin „Krummi og hinir
Alpafuglarnir“, sem skipuð er fjór-
um hljóðfæraleikurum og íslenskri
söngkonu, Ellen Freydísi Martin,
leiðir saman gamlar íslenskar
þjóðvísur sungnar á íslensku og
tóna austurrísku Alpanna. Úr
verður einstök blanda ólíkra tón-
listarhefða og tónlistarstíla sem
bæði gleður og örvar ímyndunarafl
hlustandans.
Hvað? Hausar
Hvenær? 21.00
Hvar? Paloma, Naustunum
Hausar rúlla áfram fyrsta fimmtu-
dagskvöld í hverjum mánuði á
Paloma. Allt það nýjasta í drum
& bass í bland við gamla klassík í
Funktion-One kerfi!
Hvað? Plug & Play #9 á Boston
Hvenær? 22.00
Hvar? Boston, Laugavegi
Plug & Play kvöld #9 á Boston
verður haldið fimmtudaginn 5.
júlí. Það er frítt og stútfullt kvöld af
skemmtilegri „live“ tónlist.
Hvað? Olga Vocal Ensemble
Hvenær? 22.00
Hvar? Vinaminni, Akranesi
Alþjóðlegi sönghópurinn Olga
Vocal Ensemble heimsækir Akra-
nes. Fjölbreytni í lagavali og tón-
listarstíl ræður ríkjum í efnisvali
Olgu-manna og allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi. Hafa þeir
félagar fengið mikið lof fyrir söng
sinn og framkomu.
Viðburðir
Hvað? Bókmenntaganga um skáld-
söguna Mánastein eftir Sjón
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Grófinni
Ana Stanicevic leiðir kvöldgöngu
Borgarbókasafnsins um slóðir
skáldsögunnar Mánasteins eftir
Sjón. Sagan gerist í Reykjavík árið
1918, í skugga Kötlugoss, spænsku
veikinnar, frostavetrarins mikla og
annarra hörmunga.
Hvað? Menningar- og heilsuganga:
Keilir
Hvenær? 18.00
Hvar? ÓB við Fjarðarkaup, Hafnarfirði
Fjallagarparnir Valgeir Skagfjörð
og Þorsteinn Jakobsson leiða
göngu á Keili. Betra að vera vel
skóaður. Safnast verður saman í
bíla hjá ÓB við Fjarðarkaup. Gang-
an tekur um 2-3 klst.
Hvað? Sonur skóarans og dóttir
bakarans eftir Jökul Jakobsson
Hvenær? 17.30
Hvar? Iðnó, Vonarstræti
Leiklestur á síðasta leikriti Jökuls
Jakobssonar. Jökull var ein skær-
asta stjarna íslensks leikhúss og
skrifaði mörg leikrit. Hann dó á
meðan æfingar á þessu verki stóðu
yfir.
Hvað? Prjóna- og heklkaffi Laugar-
dagsklúbbsins
Hvenær? 18.00
Hvar? Litla prjónabúðin, Faxafeni
Konurnar í Laugardagsklúbbnum
standa fyrir prjóna- og hekl-
kaffi fyrsta fimmtudagskvöldið í
hverjum mánuði í Litlu prjóna-
búðinni. Heitt á könnunni og allir
velkomnir!
Sýningar
Hvað? Opnun – Litka í sumarskapi
Hvenær? 17.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Spönginni
Litka er félag fólks á öllum aldri
sem sameinast í áhuga sínum á
myndlist. Félagið var stofnað árið
2009 og hefur síðan þá haldið úti
blómlegu starfi og sýnt á fjölmörg-
um stöðum. Litka hefur á að skipa
rúmlega hundrað félagsmönnum,
hópurinn er fjölbreyttur og ein-
staklingarnir með ýmiss konar
bakgrunn. Fjölbreytnin endur-
speglast gjarnan í samsýningum
hópsins, en í sumar sýnir hópur
félagsmanna vatnslitamyndir og
olíumálverk á Borgarbókasafninu,
Menningarhúsinu í Spönginni. Á
sýningunni eru vatnslitamyndir
og olíumálverk. Allir eru vel-
komnir.
Hvað? Einskismannsland: Leiðsögn
listamanna
Hvenær? 20.00
Hvar? Hafnarhúsið
Leiðsögn með Pétri Thomsen og
Steinunni Gunnlaugsdóttur sem
eiga verk á sýningunni Einskis-
mannsland: Ríkir þar fegurðin ein?
Á sýningunni er sjónum beint að
verkum listamanna sem endur-
spegla tengsl Íslendinga við víð-
erni landsins og breytilegt verð-
mætamat gagnvart náttúrunni.
Sýningin rekur sögu hugmynda
Íslendinga um víðerni landsins
með augum myndlistarmanna.
Hvað? Listamannaspjall
Hvenær? 20.00
Hvar? Nýlistasafnið, Grandagarði
Nýlistasafnið býður ykkur velkom-
in á listamannaspjall með Kristínu
Helgu Ríkarðsdóttur og Sögu Sig-
urðardóttur ásamt Becky Forsythe,
safneignarfulltrúa Nýlistasafnsins,
fimmtudaginn 5. júlí kl. 20.00.
Spjallið er opið öllum.
intellecta.is
RÁÐNINGAR
Ana Stanicevic leiðir kvöldgöngu Borgarbókasafnsins um slóðir skáldsögunnar Mánasteins eftir Sjón. fréttABlAðið/Stefán
Það verður fjör í Hannesarholti í kvöld þegar Krummi og hinir Alpafuglarnir spila.
5 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R34 M e n n I n G ∙ F R É T T A B l A ð I ð
0
5
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
2
-4
0
7
C
2
0
5
2
-3
F
4
0
2
0
5
2
-3
E
0
4
2
0
5
2
-3
C
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
4
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K