Fréttablaðið - 28.08.2018, Side 11

Fréttablaðið - 28.08.2018, Side 11
Um eitt þúsund aðilar nýta sjávarauðlindina og greiða veiðigjald. Fjárhagsleg staða þeirra er æði misjöfn, en allir þessir aðilar skapa sannan- lega störf og virðisauka fyrir samfélagið. Gjaldtaka úr hófi mun einfaldlega fækka þessum aðilum. Sjávarútvegur á Íslandi er ekki á nástrái, svo sem lesa mátti í leiðara Kristínar Þorsteins- dóttur, útgefanda Fréttablaðsins, á dögunum. Svo virðist sem það valdi henni hugarangri. Það sem verra er, að mati Kristínar, er að einstaka sjávarútvegsfyrirtæki, eða hluthafar þeirra, fjárfesta í öðrum rekstri. Fjár- festingar í öðru en kjarnarekstri ættu ekki að vera framandi þeim sem hafa fylgst með samtímasögunni af sæmi- legri athygli. Ekki fyrir svo mörgum árum fjárfestu sumir í flestu því sem á vegi þeirra varð. Bönkum, búðum og fjölmiðlum, heima og að heiman. Með misjöfnum árangri þó. Frumvarp til laga um veiðigjald var lagt fram í vor og verður væntanlega lagt fram aftur í haust. Aðalástæða þess, að það var lagt fram, var sú, að ekki var heimild til þess að leggja á veiðigjald eftir 1. september í ár. Þá var það einnig tilgangur frum- varpsins að færa gjaldtökuna nær í tíma því álagt veiðigjald nú byggist á afkomu greinarinnar árið 2015. Síðan þá hefur gengi krónunnar styrkst mikið og mun minna fæst núna fyrir afurðirnar en fyrir þremur árum. Hin mikla styrking á gengi krónunnar sem orðið hefur var ekki fyrirséð, en það hefur að jafnaði verið um 24% sterkara á yfirstandandi fiskveiði- ári en það var á árinu 2015. Þessa fjórðungs breytingu kallar Kristín „… þegar gengi krónunnar …, hreyfist aðeins …“. Fjórðungs breyting er stór- felld, um það þarf ekki að hafa fleiri orð. En frumvarpið náði ekki fram að ganga þrátt fyrir augljósar réttar- bætur og reikniregla veiðigjalds sem styðst við afkomu árið 2015 var fram- lengd til áramóta. Gengið skiptir máli Þegar haft er í huga að 98% af íslensku sjávarfangi eru flutt úr landi, er augljóst að gengi íslensku krón- unnar hefur mikið um það að segja hver afkoman er í greininni hverju sinni. Þess vegna er svo mikilvægt að færa gjaldtökuna nær í tíma. Og það verður að segjast alveg eins og er, að það verður að gera sér upp þekk- ingarleysi á eðli gjaldmiðla til þess að átta sig ekki á þessu samhengi. Rétt er að geta þess að sjávarútvegsfyrir- tæki, eða önnur útflutningsfyrirtæki hér á landi, geta ekki skellt kostnað- arhækkun sem bundin er við Ísland út í verð afurða sinna eða þjónustu, líkt og fyrirtæki í samkeppni innan- lands geta gert. Sem rökstuðning fyrir því að sjávarútvegur sé ekki á nástrái, kýs Kristín að nýta eina kennitölu; arð- semi eigna. Val á þessari kennitölu verður að telja nokkuð misráðið, hvort heldur það stafi af ásetningi eða vanþekkingu á rekstri sjávarút- vegsfyrirtækja, nema hvort tveggja sé. Tvennt er við þetta að athuga. Í fyrsta lagi er varhugavert að nota kennitöluna til að bera saman ólíkar atvinnugreinar þar sem eignasam- setning er mjög ólík þeirra á milli. Samanburður í þessa veru gefur því engar vísbendingar. Í öðru lagi er íslenski fiskiskipaflotinn enn gam- all, þrátt fyrir töluverðar, en hvergi nægilegar, fjárfestingar á umliðnum árum. Stór hluti flotans hefur því verið afskrifaður. Af þessum sökum eru veltuberandi eignir í bókhaldi sjávarútvegs oft og tíðum ekki miklar miðað við umfang rekstrar. Það leiðir til þess að arðsemi eigna verður jafnan töluvert hátt hlutfall og síst lýsandi við mat á rekstrarlegri stöðu sjávarútvegs. Í þessu samhengi er einnig rétt að árétta að sjávarút- vegur telur ekki eitt, tvö eða þrjú stórfyrirtæki. Um eitt þúsund aðilar nýta sjávarauðlindina og greiða veiðigjald. Fjárhagsleg staða þeirra er æði misjöfn, en allir þessir aðilar skapa sannanlega störf og virðis- auka fyrir samfélagið. Gjaldtaka úr hófi mun einfaldlega fækka þessum aðilum. Erfiðar aðstæður Líkt og fram hefur komið í skýrslum Deloitte umliðin ár, má telja óum- deilt að aðstæður í sjávarútvegi eru verulega erfiðar – og hafa raunar ekki verið verri síðan fyrir árið 2009. Á milli áranna 2015 og 2016 varð 22% samdráttur í EBITDA í sjávarútvegi og samkvæmt nýlegri skýrslu Deloitte, sem unnin var fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið, er gert ráð fyrir 3,6-7,7% sam- drætti í EBITDA á milli áranna 2016 og 2017. Árið 2015 var hagnaður frá rekstri í sjávarútvegi 42 milljarðar króna, en árið 2016 var hann 26 milljarðar króna. Miðað við áður- greinda skýrslu Deloitte má ráðgera að hagnaður frá rekstri árið 2017 hafi verið enn minni, en þær tölur ættu að liggja fyrir á næstu vikum. Sjávar- útvegur hefur á umliðnum árum lagt verulega til nauðsynlegs og heil- brigðs hagvaxtar hér á landi. Þeim sem fá skilið hvað skapar hagsæld ætti því að vera áhyggjuefni hversu verulega sverfur að atvinnugreinum sem leggja henni til mikilvæg lóð á vogarskálar. Kristín klykkir út með því að segja að ná verði sátt um „sanngjarnt“ gjald á sjávarútveginn og gjaldið eigi að nota til þess að reka skóla, sjúkra- hús og menningarstarfsemi. Því ber að geta þess að sjávarútvegsfyrir- tæki á Íslandi greiddu í tekjuskatt og veiðigjald hátt í 100 milljarða króna á árunum 2012-2017. Þeir peningar hafa meðal annars runnið til þeirra málefna sem útgefandinn tiltekur. Ef svo fer fram sem horfir eru raunar líkur á að hluti af þeim renni til þess að styrkja sjálfstæða fjölmiðla. Það er að segja, ef tillögur nefndar um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjöl- miðla frá því í vor, ná fram að ganga. Af sanngirni og kennitölum í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmda- stjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS SLÖKKTU Á EYÐSLUNNI OG KVEIKTU Á SPARNAÐINUM FYRIR HUGSANDI FÓLK HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að nna á www.hekla.is/abyrgd Mitsubishi Outlander PHEV er glæsilega hannaður, rúmgóður og háþróað fjórhjóladrið kemur þér lengra allt árið. Þú getur ekið á hreinni íslenskri orku svo að bíllinn verður sparneytnari og umhversvænni. Outlander PHEV var vinsælastur í okki jeppa og jepplinga árið 2017. Nú fylgir 350.000 kr. sumarauki ásamt hleðslustöð að verðmæti 150.000 með öllum nýjum Mitsubishi Outlander PHEV bílum keyptum hjá HEKLU. Slökktu á eyðslunni og kveiktu á sparnaðinum í nýjum Outlander PHEV. Hlökkum til að sjá þig! Outlander Instyle PHEV Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá: 5.490.000 kr. Mitsubishi PHEV kemur þér inn í framtíðina Sumarauki&hleðslu stöð samtals að verðmæ ti 500.000kr. fylgir! S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 2 8 . á G ú S T 2 0 1 8 2 8 -0 8 -2 0 1 8 0 5 :1 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 A B -2 6 A 8 2 0 A B -2 5 6 C 2 0 A B -2 4 3 0 2 0 A B -2 2 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 2 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.