Fréttablaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 8
GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Renault KADJAR & CAPTUR Sparneytnir sportjeppar Renault Captur, verð frá: 2.790.000 kr. Renault Kadjar, verð frá: 3.650.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 3 2 9 R e n a u lt K a d ja r- C a p t u r c ro s s o v e r 5 x 2 0 á g ú s t MjanMar Sjálfstæð rannsóknar- nefnd á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna mælir með því að yfirmenn mjanmarska hersins verði sóttir til saka fyrir alvarlegustu brot á alþjóðalögum. Það er að segja þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyn- inu og stríðsglæpi. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var í gær. Málið snýst að mestu um meint brot mjanmarska hersins, að frum- kvæði hershöfðingja, gegn þjóð- flokknum Róhingjum í Rakhineríki. Saga ranglætis í garð Róhingja er ára- tugalöng. Þann 25. ágúst í fyrra gerði Frelsisher Róhingja árás á lögreglu- og herstöðvar í ríkinu í von um að vekja heimsathygli. Mjanmarski herinn brást við af mikilli hörku, samkvæmt rannsóknarnefndinni úr öllu sam- hengi við árásirnar, og leiddi það til þess að um 750.000 Róhingjar flúðu til Bangladess. Lýsingarnar á brotum hersins í skýrslunni eru ógeðfelldar. Meðal annars er sagt frá því börn hafi oft verið drepin fyrir framan foreldri sín. Þá er einnig talað um að herinn hafi staðið að nauðgunum í stórum stíl. „Stundum var allt að 40 konum og stelpum hópnauðgað á sama tíma. Nauðganir fóru fram á opnum vettvangi, fyrir framan fjölskyldur og samfélagið allt, til að hámarka skömmina og áfallið. Mæðrum var nauðgað fyrir framan börn sín. Árás- unum var sérstaklega beint gegn konum og stelpum frá þrettán ára til 25, þungaðar konur voru einnig skotmörk,“ er á meðal þess sem segir í skýrslunni. Enn fremur er sagt frá því að mik- ill fjöldi hafi verið myrtur og líkin brennd eða grafin í fjöldagröfum. Húsum hafi verið læst og Róhingjar brenndir inni. Aung San Suu Kyi, ríkisráðgjafi Mjanmars og raunverulegur þjóðar- leiðtogi, er sögð hafa hvorki notað stöðu sína né siðferðislegt vald sitt til þess að koma í veg fyrir atburðina. Heldur hafi ríkisstjórn hennar logið um meinta glæpi, neitað því að her- inn hafi brotið af sér og komið í veg fyrir óháðar rannsóknir. Suu Kyi fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1991. Ríkisstjórnin kom í veg fyrir að rannsóknarnefndin fengi að fara til Mjanmar. Þess í stað tók hún hund- ruð viðtala við sjónarvotta og fórnar- lömb, studdist við skjöl, gervihnatta- myndir, ljósmyndir og myndskeið. „Þau stórfelldu mannréttindabrot sem framin hafa verið í Kachin-, Rak- hine- og Shanríkjum eru sláandi í ljósi hrollvekjandi eðlis þeirra. Mörg þess- ara brota samsvara án nokkurs vafa alvarlegustu brotum á alþjóðalög- um,“ segir meðal annars í skýrslunni. Mælst er til þess að öryggisráðið komi sér saman um að sjá til þess að réttlætinu verði fullnægt. Annað- hvort með því að vísa málinu til Alþjóðaglæpadómstólsins eða með því að samþykkja skipun sjálfstæðs stríðsglæpadómstóls. Samkvæmt blaðamanni BBC í Suðaustur-Asíu er ólíklegt að fyrri valkosturinn verði að raunveruleika þar sem Mjanmar er ekki aðili að sáttmálanum um stofnun dómstólsins. Þá er ekki útséð með hvort Kína beiti neitunarvaldi. Einnig er mælst til þess að alþjóða- samfélagið nýti sitt vald til þess að aðstoða fórnarlömbin og vernda. Þar til öryggisráðið kemst að niðurstöðu er mælst til þess að Allsherjarþingið eða Mannréttindaráðið stofni óháða nefnd til að safna saman og greina brotin. thorgnyr@frettabladid.is Vilja ákæra fyrir glæpi gegn mannkyni Mjanmarski herinn sakaður um ógeðfelld brot gegn Róhingjum. Rannsóknarnefnd SÞ mælir með því að herforingjar verði ákærðir fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu. Friðarverðlaunahafinn Suu Kyi sögð koma í veg fyrir rannsóknir á meintum glæpum. Róhingi við bænahald í Kutupalong-flóttamannabúðunum. NoRdicphotos/AFp Orð fórnarlamba l „Í Rakhineríki búa múslimar liggur við í búrum. Við fáum ekki að ferðast. Það eru engin mannréttindi. Ég veit ekki hvers vegna guð sendi okkur hingað.“ l „Við grétum þegar við flúðum. Afrakstur 25 ára erfiðisvinnu tapaðist. Tími minn er senn á enda en hvað verður um börn mín og barna- börn?“ l „Það hlupu allir eins og fætur toguðu til að sleppa á lífi. Ég gat ekki einu sinni borið börnin mín.“ l „Ég var heppin. Það nauðguðu mér bara þrír menn.“ l „Ég sný ekki aftur heim fyrr en þau viðurkenna mannréttindi okkar. Ég myndi frekar deyja hér.“ l „Hermennirnir koma ekki fram við okkur eins og fólk heldur skepnur. Þeir horfa á okkur eins og við ættum ekki að fá að vera til.“ heimild: Úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar 2 8 . á g ú s t 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D a g U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a Ð I Ð 2 8 -0 8 -2 0 1 8 0 5 :1 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 A B -0 9 0 8 2 0 A B -0 7 C C 2 0 A B -0 6 9 0 2 0 A B -0 5 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 2 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.