Fréttablaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 8
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Renault KADJAR & CAPTUR
Sparneytnir sportjeppar
Renault Captur, verð frá: 2.790.000 kr.
Renault Kadjar, verð frá: 3.650.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
2
9
R
e
n
a
u
lt
K
a
d
ja
r-
C
a
p
t
u
r
c
ro
s
s
o
v
e
r
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
MjanMar Sjálfstæð rannsóknar-
nefnd á vegum Mannréttindaráðs
Sameinuðu þjóðanna mælir með því
að yfirmenn mjanmarska hersins
verði sóttir til saka fyrir alvarlegustu
brot á alþjóðalögum. Það er að segja
þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyn-
inu og stríðsglæpi. Þetta kemur fram
í skýrslu sem birt var í gær.
Málið snýst að mestu um meint
brot mjanmarska hersins, að frum-
kvæði hershöfðingja, gegn þjóð-
flokknum Róhingjum í Rakhineríki.
Saga ranglætis í garð Róhingja er ára-
tugalöng. Þann 25. ágúst í fyrra gerði
Frelsisher Róhingja árás á lögreglu- og
herstöðvar í ríkinu í von um að vekja
heimsathygli. Mjanmarski herinn
brást við af mikilli hörku, samkvæmt
rannsóknarnefndinni úr öllu sam-
hengi við árásirnar, og leiddi það til
þess að um 750.000 Róhingjar flúðu
til Bangladess.
Lýsingarnar á brotum hersins í
skýrslunni eru ógeðfelldar. Meðal
annars er sagt frá því börn hafi oft
verið drepin fyrir framan foreldri sín.
Þá er einnig talað um að herinn hafi
staðið að nauðgunum í stórum stíl.
„Stundum var allt að 40 konum
og stelpum hópnauðgað á sama
tíma. Nauðganir fóru fram á opnum
vettvangi, fyrir framan fjölskyldur
og samfélagið allt, til að hámarka
skömmina og áfallið. Mæðrum var
nauðgað fyrir framan börn sín. Árás-
unum var sérstaklega beint gegn
konum og stelpum frá þrettán ára
til 25, þungaðar konur voru einnig
skotmörk,“ er á meðal þess sem segir
í skýrslunni.
Enn fremur er sagt frá því að mik-
ill fjöldi hafi verið myrtur og líkin
brennd eða grafin í fjöldagröfum.
Húsum hafi verið læst og Róhingjar
brenndir inni.
Aung San Suu Kyi, ríkisráðgjafi
Mjanmars og raunverulegur þjóðar-
leiðtogi, er sögð hafa hvorki notað
stöðu sína né siðferðislegt vald sitt
til þess að koma í veg fyrir atburðina.
Heldur hafi ríkisstjórn hennar logið
um meinta glæpi, neitað því að her-
inn hafi brotið af sér og komið í veg
fyrir óháðar rannsóknir. Suu Kyi fékk
friðarverðlaun Nóbels árið 1991.
Ríkisstjórnin kom í veg fyrir að
rannsóknarnefndin fengi að fara til
Mjanmar. Þess í stað tók hún hund-
ruð viðtala við sjónarvotta og fórnar-
lömb, studdist við skjöl, gervihnatta-
myndir, ljósmyndir og myndskeið.
„Þau stórfelldu mannréttindabrot
sem framin hafa verið í Kachin-, Rak-
hine- og Shanríkjum eru sláandi í ljósi
hrollvekjandi eðlis þeirra. Mörg þess-
ara brota samsvara án nokkurs vafa
alvarlegustu brotum á alþjóðalög-
um,“ segir meðal annars í skýrslunni.
Mælst er til þess að öryggisráðið
komi sér saman um að sjá til þess
að réttlætinu verði fullnægt. Annað-
hvort með því að vísa málinu til
Alþjóðaglæpadómstólsins eða með
því að samþykkja skipun sjálfstæðs
stríðsglæpadómstóls. Samkvæmt
blaðamanni BBC í Suðaustur-Asíu
er ólíklegt að fyrri valkosturinn verði
að raunveruleika þar sem Mjanmar
er ekki aðili að sáttmálanum um
stofnun dómstólsins. Þá er ekki útséð
með hvort Kína beiti neitunarvaldi.
Einnig er mælst til þess að alþjóða-
samfélagið nýti sitt vald til þess að
aðstoða fórnarlömbin og vernda. Þar
til öryggisráðið kemst að niðurstöðu
er mælst til þess að Allsherjarþingið
eða Mannréttindaráðið stofni óháða
nefnd til að safna saman og greina
brotin. thorgnyr@frettabladid.is
Vilja ákæra fyrir glæpi gegn mannkyni
Mjanmarski herinn sakaður um ógeðfelld brot gegn Róhingjum. Rannsóknarnefnd SÞ mælir með því að herforingjar verði ákærðir
fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu. Friðarverðlaunahafinn Suu Kyi sögð koma í veg fyrir rannsóknir á meintum glæpum.
Róhingi við bænahald í Kutupalong-flóttamannabúðunum. NoRdicphotos/AFp
Orð fórnarlamba
l „Í Rakhineríki búa múslimar liggur við í búrum. Við fáum ekki að
ferðast. Það eru engin mannréttindi. Ég veit ekki hvers vegna guð
sendi okkur hingað.“
l „Við grétum þegar við flúðum. Afrakstur 25 ára erfiðisvinnu tapaðist.
Tími minn er senn á enda en hvað verður um börn mín og barna-
börn?“
l „Það hlupu allir eins og fætur toguðu til að sleppa á lífi. Ég gat ekki
einu sinni borið börnin mín.“
l „Ég var heppin. Það nauðguðu mér bara þrír menn.“
l „Ég sný ekki aftur heim fyrr en þau viðurkenna mannréttindi okkar. Ég
myndi frekar deyja hér.“
l „Hermennirnir koma ekki fram við okkur eins og fólk heldur skepnur.
Þeir horfa á okkur eins og við ættum ekki að fá að vera til.“
heimild: Úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar
2 8 . á g ú s t 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D a g U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a Ð I Ð
2
8
-0
8
-2
0
1
8
0
5
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
A
B
-0
9
0
8
2
0
A
B
-0
7
C
C
2
0
A
B
-0
6
9
0
2
0
A
B
-0
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K